Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Ástríðan - 4. umferð - Til hamingju Njarðvík og Dalvík
    Fullur bátur fór yfir 4. umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Baráttan um 2. sætið í báðum deildum, Garðurinn endurheimti virðinguna, ÍR að leika sér, hver ætlar að skora á móti Ægi, hver ætlar að tapa á móti Reyni, ÍH vantar nýjan fjármálastjóra, bestu vinunum gengur vel.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40% afslátt og Acan Wines inná acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 49 min
  • Innkastið - Mjög vont verður enn verra hjá Val og FH
    Sverrir Mar Smárason er umsjónarmaður í Innkastinu eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Með honum eru Baldvin Már Borgarsson og Aron Elí Sævarsson, leikmaður Aftureldingar.
    Valur lenti í hremmingum gegn Fram og tapaði fjórða leik sínum í röð, Kjartan Henry á skotskónum og hrakfarir FH halda áfram, Breiðablik heldur áfram að vinna og Leiknir heldur áfram að tapa, Víkingar á sigurbraut en KA tapaði öðrum leik sínum í röð, Stjarnan vann ÍBV naumlega og Gaui Lýðs í agabanni, Keflavík komið í gírinn en ÍA í frjálsu falli.
    1 hr 20 min
  • Heimavöllurinn: Þriðjungsuppgjör Bestu og allt eftir bók í bikar
    Það er þegar búið að spila þriðjung Bestu deildarinnar og knattspyrnuþjálfararnir Guðni Þór Einarsson og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir mæta og fara yfir deildina til þessa – að sjálfsögðu í boði Heklu og Dominos. Lengjudeildin er einnig til umræðu sem og bikarkeppnin en nú er ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit.
    1 hr 28 min
  • Útvarpsþátturinn - Bikardraumar, París og lið ársins
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 28. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í fyrri hlutanum er rætt um íslenska boltann, Mjólkurbikarinn og landsliðið.
    Í seinni hlutanum velur Kristján Atli lið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og heyrt er í Hafliða Breiðfjörð sem verður á úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
    1 hr 46 min
  • Hjörvar um Viaplay - Meistaradeildin, landsliðið og margt fleira
    Streymisveitan Viaplay er eitthvað sem margir Íslendingar hafa kynnst í vetur, flestir lesendur eflaust í kringum Meistaradeildina í fótbolta.
    Framundan er úrslitastund í Meistaradeildinni því á laugardagskvöld fer fram sjálfur úrslitaleikurinn. Þeir Hörður Magnússon og Heimir Hallgrímsson munu lýsa úrslitaleiknum frá Stade de France.
    Hjörvar Hafliðason er íþróttastjóri Viaplay og ræddi við Sæbjörn Steinke um Viaplay og það sem framundan er þar.
    Eftir úrslitaleikinn er komið að Þjóðadeildinni þar sem íslenska landsliðið spilar í B-deildinni. Leikir landsliðsins í júní verða í opinni dagskrá.
    44 min
  • Enski boltinn - Fagnaði titlinum í hjarta samfélagsins
    Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni var gerð upp í dag með því að fá stuðningsmann Manchester City og stuðningsmann Liverpool í hljóðver.
    Þeir Eiríkur Þorvarðarson, markmannsþjálfari og stuðningsmaður City, og Sveinn Waage, fyrrum fyndnasti maður Íslands og stuðningsmaður Liverpool, fóru yfir upplifun sína af lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar með Sæbirni Steinke.
    Sveinn var á Anfield á sunnudag en á sama tíma var Eiríkur staddur í Garðabæ. Fyrstu 35 mínúturnar eða svo fóru í að ræða City og Liverpool og svo í kjölfarið af því voru önnur mál rædd.
    Þátturinn er í boði Domino's (fyrir alla) og WhiteFox (fyrir átján ára og eldri).
    1 hr 11 min
  • Innkastið - Stefnuleysi og stór lið komin í mikil vandræði
    Innkastið eftir sjöundu umferð Bestu deildarinnar er aðeins seinna á ferðinni en venja er. Þar er þó boðið upp á beinskeytta yfirferð yfir allt það sem skiptir máli.
    Elvar Geir stýrir þættinum en sérstakir gestir eru Magnús Haukur Harðarson FH-ingur og fjölmiðlamaðurinn Þór Bæring sem fjallar um deildina fyrir Morgunblaðið.
    Blikar eru í bílstjórasætinu eftir markasúpu gegn Fram, FH-ingar halda sig í neðri hlutanum, Valsmenn hafa tapað tveimur leikjum í röð, KR er með erfiðan heimavöll, Víkingar eru óstöðugir, Stjörnumenn eru í stuði og í Vestmannaeyjum er pirringur milli manna.
    55 min
  • Ástríðan - 3. umferð - Magnaður Kristófer og ekki tala við okkur um virðingu
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir þriðju umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Garðurinn fékk virðingu en fleygði henni, KFG heldur áfram að skora eftir þörfum, Káramenn steinlágu á Króknum, Völlarar rændir og nú þurfa nokkur lið að fara að vakna.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40% afslátt og Acan Wines inná acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 47 min
  • Fótboltafréttir vikunnar og spennandi lokaumferð
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í óhefðbundnu formi þessa vikuna þar sem þáttastjórnendur eru uppteknir í steggjun. En í staðinn er þessi sérstaka hlaðvarpsútgáfa þar sem Elvar Geir Magnússon ræðir við góða menn.
    Farið er yfir helstu fótboltafréttir vikunnar með Sæbirni Steinke, Úlfur Blandon skoðar Lengjudeildina og Bestu deildina og Kristján Atli Ragnarsson spáir í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.
    1 hr 3 min
  • Fantabrögð - LOKAUMFERÐ
    Þá er komið að því. Þetta skrýtna fantasy tímabil með allar sínar tvöföldu umferðir er að verða búið. Bara ein umferð eftir og eins og venjulega með lokaumferðir þá eru allir leikirnir á sama tíma. Blautir draumar fantasy spilarans.
    Aron og Heiðmar hittust í stúdíóinu og köstuðu fram alls konar hugmyndum að leikmönnum til að kaupa og capteina. Þeir voru samt eiginlega ósammála um allt. Flippuð fyrirliðavöl og er Pukki partýið að byrja aftur? Hver veit?
    1 hr 3 min