Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Fantabrögð - Stærsta umferð tímabilsins framundan
    Framundan í fantasy er stærsta umferð tímabilsins - umferð 36. Stóru liðin spila öll tvöfalt og flestir þurfa ekki að hafa mikið fyrir því að ná 11 spilandi mönnum með tvo leiki.
    Aron og Ásgeir ræddu það helsta í umferð 35 sem einkenndist af 19 stigum Son, en eyddu megninu af tímanum í að ræða það sem er framundan.
    52 min
  • Innkastið - Stórfengleg skemmtun og skrópað í viðtöl
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir 3. umferð Bestu deildarinnar.
    Sóknarmenn í ham en varnarmenn í basli í besta leik í sögu Bestu deildarinnar, drama á Dalvík, allir komnir á blað nema Keflvíkingar, Blikar rúlluðu yfir FH-inga og hasar á Hlíðarenda þar sem Valur vann KR.
    58 min
  • Númer sex eins og Tinna Mark og LeBron
    Bjarni Mark Duffield er staddur á Íslandi í stuttu fríi þar sem ekki var spilað í norsku B-deildinni um helgina. Sæbjörn Steinke fékk Bjarna í spjall sem hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan og í öllum hlaðvarpsveitum.
    Bjarni er leikmaður Start í Noregi en hann söðlaði um og gekk í raðir félagsins eftir nokkur í ár í Svíþjóð þar á undan.
    Hann er Siglfirðingur sem skipti yfir í KA þegar hann komst nálægt meistaraflokksaldri og lék með KA í efstu deild tímabilið 2018. Síðan hafði hann verið í Svíþjóð þangað til á þessu ári þegar hann fékk símtalið frá Start.
    Bjarni fer yfir skiptin í Start, nýja leikstöðu, fyrstu mánuðina í Start, spjallið sem hann átti við Túfa, landsliðið og ýmislegt fleira á rúmum tuttugu mínútum.
    23 min
  • Útvarpsþátturinn - Sú Besta og Lengjudeildarspáin
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 30. apríl
    Elvar Geir, Tómas Þór og Rafn Markús ræða um Bestu deildina og opinbera spá fyrir Lengjudeildina.
    Farið er yfir öruggan sigur Íslandsmeistara Víkings gegn Keflavík og hitað upp fyrir 3. umferðina. Þá er rætt um öll liðin tólf í Lengjudeildinni.
    Einnig mætir Oscar Clausen formaður Leiknis og ræðir um áhugavert verkefni í Breiðholti.
    1 hr 34 min
  • Enski boltinn - Leeds niður og West Ham Evrópumeistari?
    Enski boltinn í dag fór mest í að ræða málefni West Ham og Leeds þar sem gestir þáttarins eru á þeirri hlið í lífinu.
    Þeir Máni Pétursson og Tómas Steindórsson ræddu málin við Sæbjörn Steinke.
    Evrópuævintýri West Ham er í fullum gangi en liðið þarf að ná í sigur í Þýskalandi í seinni undanúrslitaleiknum. Leeds er fimm stigum fyrir ofan fallsæti en Máni er þó á því að liðið falli úr úrvalsdeildinni.
    Þetta og miklu meira í þættinum sem er í boði Domino's og WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri).
    47 min
  • Fantabrögð - Allt í skrúfunni
    Aron og Gunni hittust og ræddu síðustu umferðir í Fantasy og stemminguna í kringum leikinn þessa dagana, en hlutirnir ganga nokkuð erfiðlega.
    Meðal efnis í þættinum:
    - Reece James og brotin loforð
    - Á að selja Tottenham menn?
    - Á að Free Hitta í umferð 36 eða 37?
    - Hvað er að frétta af Gylfa?
    - Verða róteringar hjá Liverpool?P.S. eftir að þátturinn var tekinn upp kom í ljós að leikur Wolves og Man City verður í umferð 36 og því eiga þau lið bæði tvöfalda umferð þá.
    50 min
  • Innkastið - Sitt sýndist hverjum í Vesturbænum
    Innkastið breytir ekki sigurliði og heldur sig við sama byrjunarlið og í fyrstu umferð. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Sverrir Mar fara yfir allt það helsta úr 2. umferð.
    KR fór illa með tækifærin sín í stórleiknum, Endurkomusigur FH í Kaplakrika, Íslandsmeistararnir voru teknir í bakaríið af Skagamönnum, ljótt mark færði Val sigur, Stjörnumenn skelltu Leiknismönnum í Breiðholti og KA skildu Eyjamenn eftir í sárum.
    55 min
  • Ungstirnin - Úrslitaleikur, spennandi leikmenn og ungir í Bestu
    37. þátturinn af Ungstirnunum er mættur.
    Hitað er upp fyrir úrslitaleik Salzburg vs Benfica sem fer fram Í DAG og er sýndur á Stöð 2 Sport 2 klukkan 16:00 og hvetjum við alla til þess að horfa.
    Danilo (2001 / Palmeiras) sem var orðaður við Arsenal í janúar og Vinicius Tobias sem var keyptur til RM frá Shaktar út af því sem gengur á í Úkraínu ( 2004/R. Madrid) eru kynntir fyrir þjóðinni.
    Rætt er um Football Manager þar sem að Lorenzo Lucca er besti leikmaðurinn í leiknum
    Farið er yfir ungu leikmenn Bestu Deildarinnar sem og margt margt fleira.
    Lofum góðum gestum í næsta þætti en eins og alltaf takk fyrir að hlusta og sýna stuðning.
    1 hr 23 min
  • Útvarpsþátturinn - Upphitun fyrir Bestu og enskt hringborð
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. apríl.
    Elvar Geir og Benedikt Bóas hita upp fyrir 2. umferð Bestu deildarinnar og Úlfur Blandon spáir í spilin fyrir umferðina.
    Í seinni hlutanum mætir Kristján Atli og fer yfir allt það helsta í enska boltanum. Mun Erik Ten Hag fá þá þolinmæði sem hann þarf á Old Trafford?
    1 hr 34 min