Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • „Sýnir hvað Stjarnan er að vinna gott starf"
    „Þetta er bara fínt, þetta er betra en í fyrra minnir mig og ef þetta gengur eftir þá erum við í þessum efri hluta þegar deildinni verður skipt upp. Þar vilja öll lið vera," sagði Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, í viðtali við Fótbolta.net í dag.
    Tilefni viðtalsins var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en Stjörnunni er spáð 6. sætinu í ár.
    12 min
  • Útvarpsþátturinn - Besta yfirferðin með Tom og Atla Viðari
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net þessa vikuna er frumfluttur í hlaðvarpi. Tómas Þór Þórðarson sér um þáttinn.
    Atli Viðar Björnsson, markahrókur og margfaldur Íslandsmeistari, mætir og tekur yfirferð með Tómasi um um öll liðin í Bestu deildinni.
    Elvar Páll Sigurðsson, fyrrum leikmaður Breiðabliks og Leiknis, sem er í dag markaðssérfræðingur og markaðsstjóri alþjóðlega fyrirtækisins Men and Mice fer yfir samfélagsmiðlana hjá félögunum og hvernig hægt sé að gera betur þar.
    1 hr 36 min
  • Fantabrögð - Lokaspretturinn

    "Eftir" umferð 31 (stórleikur Everton og Burnley var eftir) fékk Aron góðvin þáttarins, Snorra Heiðar Andrésson til að fara yfir síðustu umferðir í Fantasy Premier League og spá í spilin fram að lokum leiktíðar.

    Meðal annars:

    - Hvenær er best að nota Free Hit?
    - Hvenær er best að bench boosta ef maður á það eftir?
    - Á að selja Kane til að kaupa Son eða öfugt?
    - Hvað gerðist hjá Arsenal og Chelsea?
    - Hvaða lið á að targeta fyrir lokaumferðirnar?

    51 min
  • Enski boltinn - Áfram þrot hjá United og Everton gæti fallið
    Sæbjörn Steinke ræddi við þá Gunnar Gunnarsson og Ingimar Helga Finnsson.
    Rætt var um liðna umferði í enska boltanum og einnig um leikina í Meistaradeildinni. Getur Everton í alvöru fallið? Þeirri spurningu er svarað og þá er baráttan um efsta sætið og Meistaradeildarsætið mjög hörð.
    Paul Pogba er gagnslaus, Daniel Amartey er einn af grínköllunum, Harry Kane fer hvergi og Oliver Skipp hornið er á sínum stað. Menn hallast að sigri Liverpool á Etihad - allt undir á sunnudag!
    Enski boltinn er í boði WhiteFox (18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla)
    1 hr 32 min
  • Veit ekki hvort Guðjón Orri Carragher Sigurjónsson gefi kost á sér
    „Nei, það væri ekki ásættanlega niðurstaða. Við ætlum hærra en það. Við erum nýliðar í deildinni og kemur ekki á óvart að okkur sé spáð 9. sæti."
    „Við erum alveg með okkar markmið um hvað við ætlum að gera og það er eitthvað ofar en 9. sætið, við förum hærra en það og verðum helvíti fúlir með sjálfa okkur ef sú spá rætist."
    Þetta sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, við Fótbolta.net í gær.
    Rætt var við hann í tilefni af því að ÍBV er spáð 9. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina.
    Sjá einnig:
    Spá Fótbolta.net - 9. sæti: ÍBV
    14 min
  • Útvarpsþátturinn - Styttist í Bestu deildina og enski farinn aftur af stað
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 4. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Íslenski boltinn er aðalmálið í fyrri hlutanum og farið yfir fréttir vikunnar. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA og Baldur Sigurðsson eru á línunni.Í seinni hlutanum fer Kristján Atli yfir enska boltann og gefur skýrslu úr leik Liverpool og Watford sem Liverpool vann 2-0.
    1 hr 34 min
  • Ungstirnin - MLS og NxGn topp 50 listinn
    Við kíkjum til Bandaríkjanna og kynnum hlustendum fyrir Gabriel Slonina (2004 / Chicago Fire) sem er einn mest spennandi markmaður heims og var nánast kominn til Chelsea þangað til allt vesenið í kringum Roman Abramovich byrjaði.
    Einnig kynnum við Caden Clark (2003 / NY Red Bulls) sem er búinn að skrifa undir hjá RB Leipzig og lítur virkilega vel út.
    Boðið er upp á stutta kynningu á Tobias Gulliksen (2003 / Stromsgodset) sem gæti orðið næsti Martin Ödegaard en þeir eru báðir uppaldir hjá Strömsgodset.
    NxGn listi Goal kom út á dögunum sem fjallar um 50 bestu Ungstirni heims 2003 og yngri. Einnig er rætt um yngri landslið Íslands.
    1 hr 24 min
  • Innkastið - Leitin erfiða að jákvæðum punkti
    Það var urmull landsleikja á dagskrá í dag og þeir Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fylgdust með öllu því sem átti sér stað.
    Athygli þeirra beindist helst að vináttulandsleik Spánar og Íslands sem var leikur kattarins að músinni.
    Einnig er rætt um baráttuna um HM sæti, yngri landsliðin, nýjan þjóðarleikvang og fréttir úr Bestu deildinni.
    45 min
  • Útvarpsþátturinn - Vetrarverðlaun og Óli Jó
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Hitað er upp fyrir Bestu deildina og bestu menn undirbúningstímabilsins valdir, úrvalslið, besti leikmaðurinn og besti þjálfurinn.
    Hver er líklegastur til að verða besti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar?
    Þá mætir sjálfur Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, í þáttinn og rætt er um komandi tímabil og fleira.
    1 hr 44 min