Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Hannes og hans magnaði fótboltaferill
    Hannes Þór Halldórsson lagði hanskana á hilluna á dögunum. Hannes átti magnaðan fótboltaferil og leið hans á stærsta svið fótboltans er uppfull af sögum.
    Hannes mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net í drottningarviðtal.
    56 min
  • Enska hringborðið - Háspenna um alla deild
    Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 19. mars.
    Enska hringborðið var dregið fram og Kristján Atli Ragnarsson ræddi um ensku úrvalsdeildina við þá Elvar og Tómas.
    Titilbarattan, fallbaráttan, baráttan um fjórða sætið, úrvalslið þriðja fjórðungs. Þetta er allt á sínum stað.
    59 min
  • Aukaþáttur - Fótboltafréttir vikunnar og landsliðsval
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað á morgun laugardag þar sem boðið verður upp á pakkfulla dagskrá.
    Boðið er upp á sérstakan aukaþátt á föstudegi þar sem Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Þá er rætt við Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara.
    Landsliðsval fyrir vináttuleiki gegn Finnum og Spánverjum, Lengjubikarinn, Meistaradeildardráttur og enski boltinn koma við sögu í yfirferðinni.
    50 min
  • Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir neðri deildir 2022
    Í boði Dominos og Heklu Bílaumboðs halda ótímabærar spár Heimavallarins áfram og nú er komið að því að skoða 2. og Lengjudeild. Knattspyrnuþjálfararnir Margrét Magnúsdóttir og Ruth Þórðardóttir mæta og fara yfir spánna ásamt þáttastýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
    1 hr 53 min
  • Enski boltinn - Ástríða, Meistaradeild og saxað á City
    Farið var um víðan völl í Enska boltanum þessa vikuna. Farið var yfir síðustu umferð og tengt það við leiki ensku liðanna í Meistaradeildinni.
    Þeir Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason ræddu málin með Sæbirni Steinke.
    Manchester United er úr leik í Meistaradeildinni og átti ekkert skilið í gær, City getur ekki skorað gegn Palace og Liverpool vélin mallar og mallar. Arsenal er líklegast í 4. sætið en liðið á erfiða leiki eftir.
    Hvað gera liðin sem eru örugg um að falla ekki en eiga ekki möguleika á Evrópusæti? Chelsea harkar út sigra í mótlætinu en Gylfi gefur lítið fyrir að menn séu tilbúnir að keyra rútur og greiða ferðakostnað úr eigin vasa. Þetta og margt fleira í þætti kvöldsins.
    Enski boltinn er í boði Domino's (fyrir alla - allir að fá sér Góðgerðarpizzuna) og WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri).
    1 hr 5 min
  • Ungstirnin - Prófessorinn og Thor
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.
    Alejandro Garnacho (Man Utd) og Arda Guler (Fenerbahce) eru til umfjöllunar í þættinum að þessu sinni.
    Þá eru tvö viðtöl, við Ólaf Kristjánsson sem tók nýlega við sem yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki og Þorleif Úlfarsson, Thor, leikmann Houston Dynamo í MLS-deildinni bandarísku.
    1 hr 27 min
  • Fantabrögð - Frekjuköst og forföll

    Strákarnir í Fantabrögðum tóku upp þátt um leið og umferð 28 kláraðist í Fantasy Premier League. Þeir fóru stuttlega yfir síðustu umferð en einbeittu sér fyrst og fremst að komandi umferðum, 29 og 30.  Strákarnir tóku spurningar hlustenda, m.a.

    - Á að selja Reece James?

    - Á að kaupa Doherty og Kulusevski?

    - Hvenær er rétti tíminn til að nota Wildcard ef maður á það eftir?

    - Hvað er að gerast hjá Chelsea og hvernig hefur það áhrif á Fantasy?

    52 min
  • Enski boltinn - Chelsea í fordæmalausri stöðu
    Sérstakur aukaþáttur vegna stórfrétta dagsins af málum Chelsea. Rússneski eigandinn Roman Abramovich var beittur refsiaðgerðum af breskum stjórnvöldum og eignir hans frystar.
    Chelsea hefur notið mikillar velgengni í eignartíð Abramovich en nú eru framundan nýir og breyttir tímar.
    Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke fara yfir tíðindin og með þeim er stuðningsmaður Chelsea, Ágúst Reynir Þorsteinsson.
    32 min