Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Tveir af skemmtilegri leikjum vetrarins
    Það var létt yfir mönnum í þætti dagsins. Þeir Ísak Máni Wium og Tómas Steindórsson sátu með Sæbirni Steinke og þá var Ingimar Helgi Finnsson á línunni, reif upp tólið á Tenerife.
    Ísak er stuðningsmaður Manchester United, Tómas heldur með West Ham og Ingimar er Tottenham-megin í lífinu. Rætt var um leiki umferðarinnar og aðeins spáð í leiki Liverpool, Man Utd og Chelsea í miðri viku.
    Hversu góður er Harry Kane? - Skiptingin á Paul Pogba - Kaupstefna West Ham - Wout Weghorst - Roy Hodgson og svo margt fleira.
    Enski boltinn er í boði WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).
    1 hr 13 min
  • Útvarpsþátturinn - Nýir tímar í íslenska boltanum
    Útvarpsþátturinn 19. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í upphafi þáttar er yfirferð yfir Lengjubikarinn og fréttir úr íslenska boltanum.
    Gestir þáttarins eru Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF og Þórir Hákonarson íþróttastjóri og sérfræðingur þáttarins. Rætt er um nýja samninga í íslenska boltanum, peningastreymi og komandi ársþing. Þeir spá jöfnum og spennandi formannskosningum.
    Í lok þáttar er síðan skoðað hvað er í gangi í enska boltanum.
    1 hr 44 min
  • Heimavöllurinn: Kemur alltaf einhver kona til að hleypa vindlareyknum út
    Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þær Ingunn Haraldsdóttir og Katrín Ómarsdóttir. Ingunn er nýkomin heim úr atvinnumennsku í Grikklandi og Katrín er orðin aðstoðarþjálfari Hauka. Stelpurnar okkar byrja á sigri í fyrsta leik á She Believes Cup og Dagný setti þar hraðamarkamet. Árið 2022 erum við enn að verða vitni að ótrúlegum atvikum en Þróttarar fengu engan bikar afhentan kvöldið sem þær urðu Reykjavíkurmeistarar. Slíkar uppákomur og ýmislegt annað hefur orðið til þess að Ingunn, Katrín og vaskur hópur fólk eru að endurvekja Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna og gestirnir segja frá þeim.
    0 min
  • Ítalski boltinn - Íslenskt vor í lofti og ljótir söngvar í Bergamo
    AC Milan fór á toppinn og miðað við leikjaprógramið framundan fara þeir ekki þaðan í bráð. Nýr Íslendingur var í hóp hjá Venezia og Björn Már skoðar hvaða ungu Íslendingar eru líklegastir til að fá tækifærið í Serie A næst.
    Stuðningsmenn Atalanta verða sér til skammar með söngva um Dusan Vlahovic og Albert Guðmundsson þreytir frumraun sína í deildinni þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.
    34 min
  • Enski boltinn - Tvær umferðir og Meistaradeild
    Það er loksins komið að því, tvær síðustu umferðir í ensku úrvalsdeildinni gerðar upp og leikir vikunnar í Meistaradeildinni.
    Þeir Arnar Laufdal Arnarsson og Egill Sigfússon ræddu málin með Sæbirni Steinke.
    Þrír sigrar hjá Liverpool, þrír sigrar hjá Man City en ekki gekk eins vel hjá Man Utd og Tottenham. Þá var hringt í Þórodd Hjaltalín Jr. og hann spurður út í tvöfalda gula spjaldið á Gabriel Martinelli í leik Arsenal og Wolves.
    Laufið segir frá því þegar hann hitti Steve Sidwell, Vicente Guaita, Pedro Leon. Egill mætti þá á sínum tíma Mohamed Elyounoussi í Futsal - eðlilega.
    Þátturinn er í boði WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).
    1 hr 15 min
  • Fantabrögð - Triple captain time
    Aron, Heiðmar og Ásgeir hittust og ræddu umferð 25 í Fantasy sem "réðist" á síðustu sekúndu. Strákarnir skoðuðu risavaxna umferð 26 og ræddu möguleikana sem flestir velta fyrir sér eins og Triple captain á Salah, Bench boost, Free Hit og hvað þetta allt heitir nú.
    Þátturinn er í boði hlustenda sem styrkja okkur á Patreon, Nemíu og Massabón.
    1 hr 18 min
  • Útvarpsþátturinn - Íslensk lið styrkja sig og enski boltinn aftur á fulla ferð
    Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþætti vikunnar.
    Farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og heyrt í Rúnari Kristinssyni þjálfara KR og Hólmari Erni Eyjólfssyni sem er kominn heim úr atvinnumennskunni og samdi við Val.
    Enski boltinn er einnig til umfjöllunar en Sæbjörn Steinke er nýkominn til landsins eftir rannsóknarleiðangur til Englands þar sem hann skellti sér á þrjá leiki.
    1 hr 35 min
  • Fantabrögð - Fantabrögð x Lélega Fantasy Podcastið
    Fantabrögð og Lélega Fantasy podcastið tóku höndum saman þessa vikuna og voru með sameiginlegan þátt. Fjórmenningarnir fóru yfir stigin sín, planið framundan, möguleg Wildcard lið og fleira.
    Annað sem kom fram í þættinum:
    - Hver væri hvað í hinu podcastinu?
    - Á hvaða heimavist í Hogwarts væri Gummi Fel?
    - Hvað kom fyrir Pálma í dag?
    - Hver verður fyrirliði í umferð 25?
    1 hr 10 min
  • Ítalski boltinn - Aukaspyrnutvenna og titilbaráttan galopnast
    AC Milan vann óvæntan sigur í Derby della Madonnina og galopnaði titilbaráttuna. Dusan Vlahovic skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Juventus. Simone Verdi stóð undir nafn sem aukaspyrnusérfræðingur deildarinnar og botnbaráttan harðnar enn.
    Ítalski boltinn - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
    35 min
  • Sævar fer gegn Vöndu: Sér fram á tvísýna baráttu
    Það verður kosningabarátta um formannssæti KSÍ á ársþingi sambandsins þann 26. febrúar. Í dag tilkynnti Sævar Pétursson að hann hefði ákveðið að taka slaginn og bjóða sig fram gegn Vöndu Sigurgeirsdóttur.
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke slógu á þráðinn norður til Akureyrar og heyrðu í Sævari.
    Hann býst við jafnri baráttu, telur sig hafa breiðari þekkingu úr hreyfingunni en segist verða fyrsti maðurinn til að óska Vöndu til hamingju ef hann ber ekki sigur úr býtum í kosningunni.
    Í viðtalinu ræðir hann um sína stefnu, staða yfirmanns fótboltamála og þjóðarleikvangurinn koma að sjálfsögðu við sögu.
    24 min