Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Vantar nýjan þjálfara og drulla mönnum burt
    Umferðinni í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær, átta leikir af tíu fóru fram - tveimur var frestað út af svolitlu.
    Sæbjörn Steinke fékk þá Arnór Gauta Ragnarsson og Sigurð Gísla Bond Snorrason til að gera upp helgina með sér og ræða stóru málin.
    Benítez var látinn fara frá Everton, Manchester United tapaði niður tveggja marka forskoti, Manchester City vann stórleikinn, Liverpool kláraði Brentford og Leeds lagði West Ham á útivelli.
    Arnór er stuðningsmaður Southampton og ræddi um hvers vegna. Bond er stuðningsmaður Man Utd og hann sagði hvern hann vill sjá taka við liðinu í sumar.
    Þátturinn er í boði White Fox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).
    57 min
  • Útvarpsþátturinn - Enska hringborðið og Pálmi Rafn
    Elvar Geir og Benedikt Bóas sjá um útvarpsþátt vikunnar.
    Hringt er í Pálma Rafn Pálmason spilandi íþróttastjóra KR og Kristján Atli Ragnarsson mætir við enska hringborðið í annað fjórðungsuppgjör. Allt það helsta úr enska boltanum.
    Einnig er rætt um íslenska fótboltalandsliðið og gerð heiðarleg en misheppnuð tilraun til að hafa handboltahorn.
    1 hr 49 min
  • Ungstirnin - Football Manager Special
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir eru ekki bara tveir í þættinum að þessu sinni en góðvinur þeirra Kristinn Helgi Jónsson er einnig.
    Aðalumræðuefnið í þessum þætti er fótboltaleikurinn vinsæli Football Manager og er rætt fram og til baka um hann. Mörg ungstirni sem koma við sögu í spjallinu.
    1 hr 19 min
  • Ítalski boltinn - Íslendingar á suðrænum slóðum
    Íslendingar eignuðust nýjan leikmann í Serie A um nýliðna helgi þegar Bjarki Steinn Bjarkason kom inná fyrir Venezia gegn AC Milan. Nú er útlit fyrir að hann sé á leið á láni suður á bóginn til Catanzaro.
    Fiorentina er búið að finna arftaka Dusan Vlahovic sem er á útleið, en um er að ræða gamla hetju úr ítalska boltanum. Leik Internazionale og Juventus í ofurbikarnum lauk með hótunum um barsmíðar.
    31 min
  • Fantabrögð - No Salah, Macintosh molar og klippikort
    Aron og Gylfi stigu villtan dans í hljóðverinu þar sem þeir fóru óvenju langt út fyrir efnið. Það kom ekki að sök, einhvers staðar innan um þennan 65 mínútna hafsjó orða má heyra umræðu um Fantasy.
    Chelsea á skrítið prógram framundan. Baugarnir á Tsimikas. Hið stórkostlega AFCON er að hefjast. Tvöföld umferð er framundan hjá mörgum liðum og enn herjar á okkur veiran skæða.
    Þetta og margt annað. Allt í boði Nemíu, Massabón og fyrst og fremst Patreon.
    Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér.
    1 hr 6 min
  • Útvarpsþátturinn - Boltafréttir og breytt Íslandsmót
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 8. janúar.
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í boltanum. Sæbjörn Steinke er með þeim í þættinum.
    Farið er yfir innlendar og erlendar fréttir. Þórir Hákonarson fer yfir leikjafyrirkomulag Íslandsdeildarinnar og breytt umhverfi íslenska boltans.
    48 min
  • Heimavöllurinn - NÝÁRSBOMBAN: Hápunktar ársins og góðir gestir
    Nýtt fótboltaár er hafið og spennandi tímar framundan. Nú þegar árið 2021 er liðið og rúmlega það er við hæfi að líta aðeins til baka yfir það helsta sem gerðist á liðnu ári og auðvitað að velta fyrir sér hvað nýtt fótboltaár ber í skauti sér. Heimavöllurinn fær til sín geggjaða gesti. Landsliðskonurnar Berglind Rós Ágústsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir mæta í sett ásamt hinni einu sönnu Helenu Ólafsdóttur sem fer yfir hápunkta síðasta árs.
    1 hr 43 min
  • Enski boltinn - 'Clear and obvious' Arsenal á uppleið
    Enski boltinn snýr aftur á nýju ári og var umferðin um liðna helgi gerð upp í dag. Átta leikir fóru fram en tveimur leikjum var frestað vegna smita.
    Það var Fylkisþema í þættinum því þeir Egill Sigfússon og Kristján Gylfi Guðmundsson voru gestir Sæbjarnar Steinke - báðir gestirnir þjálfarar hjá Fylki.
    Farið var yfir vafaatriðin í leik Arsenal og Manchester City, önnur stór atvik umferðarinnar og rýnt í stórleik Chelsea og Liverpool.
    Þeir Egill og Krissi eru báðir Man Utd menn og var farið í leik liðsins gegn Wolves og hvað þarf að gera til að breyta gengi liðsins. Hvaða leikmenn á Newcastle að kaupa, David Moyes og margt fleira.
    Þátturinn er í boði Dominos.
    1 hr 2 min
  • Enski boltinn - Óskiljanleg úrslit í hátíðartörn
    Hlaðvarpsþátturinn Enski boltinn og útvarpsþátturinn Fótbolti.net sameinast í þætti þar sem rætt er um hátíðartörnina í enska boltanum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir málin.
    Stuðningsfólk Liverpool og Manchester United er svekkt eftir úrslit vikunnar en Leicester kom gríðarlega á óvart með sigri í gær. United var heppið að ná stigi gegn Newcastle. Falla norðanmenn?
    Manchester City er að síga fram úr í titilbaráttunni og ungstirni Arsenal skína skært.
    1 hr 8 min
  • Heimavöllurinn: Rússíbanaár hjá Svíþjóðarmeistaranum
    Guðrún Arnardóttir er gestur í jólaþætti Heimavallarins. Guðrún varð sænskur meistari með stjörnuprýddu liði Rosengård í haust eftir að hafa verið keypt til liðsins frá Djurgarden á miðju tímabili. Hún fer yfir frábært fótboltaár og rúmlega það með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
    1 hr 11 min