Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Fantabrögð - Þú sagðir ekki Ólsen!
    Aron, Gunni og Heiðmar gerðu upp 15. umferðina í Fantasy Premier League.
    Aron var dapur, Gunni var með dólg og Heiðmar skipti einum Tottenham manni út fyrir annan. Strákarnir fengu flóð af spurningum, rýndu í lið Manchester United, reyndu að skera úr um besta kostinn á miðju Man. City og reyndu að velja annan fyrirliða en Salah.
    1 hr 19 min
  • Enski boltinn - Lundúnarþema og baráttan um fimmta sætið
    Fimmtánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina, umferðin kláraðist með leik Everton og Arsenal í gær.
    Guðmundur Gunnar Guðmundsson er stuðningsmaður Arsenal, Ingimar Helgi Finnsson er stuðningsmaður Tottenham og Tómas Steindórsson er stuðningsmaður West Ham.
    Farið var yfir umferðina, Antonio Conte og þurrkur Harry Kane komu við sögu, verðmiðinn á Jarrod Bowen og Declan Rice og loks Arsenal og Mikel Arteta.
    Þátturinn er í boði Domino's.
    1 hr 18 min
  • Heimavöllurinn: Bílstjórasætið í árslok, best í Barca og bolti til breytinga
    Íslenska landsliðið er í bílstjórasætinu í undankeppni HM eftir stóran útisigur á Kýpur – en þjóðin vildi fleiri mörk. Gullknötturinn var afhentur í þriðja skipti í kvennaflokki og fór til Barcelona. Þá var haldið hér á landi alþjóðlegt fótboltamót sem snerist um svo margt annað en bara fótbolta, Global Goals World Cup. Gestir okkar í dag eru fyrrverandi og núverandi knattspyrnukonurnar Guðrún Valdís Jónsdóttir og Kristín Sverrisdóttir sem eru í hópi ungra athafnakvenna sem skipulögðu mótið.
    1 hr 9 min
  • Fantabrögð - Hvað á að gera í umferð 14?
    Þáttur vikunnar af Fantabrögðum var eingöngu skipaður Íslandsmeisturum í Fantasy, því það voru Gunni og Heiðmar sem tækluðu umferð 13.
    Þeir áttu ekki góðar umferðir af ýmsum ástæðum en fóru yfir allt það helsta, m.a. Marcos Alonso, Diogo Jota, hvað á að vera með marga spilandi á bekknum um jólin?
    Fantabrögð eru í boði hlustenda sem styrkja Fantabrögð á patreon.com/fantabrogd. Einnig í boði Nemíu og Massabón.
    1 hr 6 min
  • Enski boltinn - Svefntruflanir og Ronaldo á bekknum
    Níu leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Leik Burnley og Tottenham var frestað.
    Félagarnir Jóhann Már Helgason og Orri Freyr Rúnarsson fara yfir umferðina, Sæbjörn Steinke stýrir þættinum.
    Byrjað er á viðureign Arsenal og Newcastle og þaðan unnið sig í gegnum umferðina þar til kemur að lokaleiknum, stórleik Chelsea og Manchester United. Jói er Chelsea maður og Orri er United maður og eru málefni liðanna rædd. Hvernig mun Rangnick spila? Verður Ronaldo hafður á bekknum? Er Werner alveg búið spil?
    Þátturinn er í boði Domino's.
    56 min
  • Útvarpsþátturinn - Rangnick og Peningar
    Útvarpsþátturinn 27. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Fótboltafréttir vikunnar. Tryggvi Páll Tryggvason, fréttamaður og sérfræðingur um Manchester United, ræðir um komu Ralf Rangnick á Old Trafford.
    Björn Berg Gunnarsson ræðir um Peninga. Hann var að gefa út bók fyrir jólabókaflóðið og í spjalli við hann er meðal annars talað um peningana í kringum boltann, Ronaldo, HM í Katar og fleira.
    1 hr 44 min
  • Ungstirnin x Róbert Orri
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Arnar Laufdal kemur með mjög spennandi slúðurpakka um unga og efnilega leikmenn á Íslandi þar sem stórar fréttir líta dagsins ljós.
    Drengirnir fjalla um Victor Kristiansen (FCK) sem er enn einn spennandi leiknaðurinn úr verksmiðju Kaupmannahafnar og Samuele Ricci (Empoli) sem hefur verið orðaður við Arsenal og Leicester
    Róbert Orri Þorkelsson leikmaður Montreal í MLS deildinni kemur í heimsókn þar sem mikið er rætt um dvölina í Kanada og Róbert fékk einnig sendar spurningar frá hlustendum.
    1 hr 31 min
  • Fantabrögð - Bakvarðasveitin og vinnueftirlitið
    Fantasy snýst um bakverði. Bakverði og aftur bakverði.
    Ásgeir og Aron mættu í stúdíóið og ræddu það sem skiptir máli í Fantasy í dag - varnarmenn. Ásgeir viðurkenndi að hafa brotið vinnureglur og Aron tók hálfan þáttinn í að þylja upp stig af bekknum. Ekkert nýtt undir sólinni þar.
    - Af hverju keyptum við Bryan Mbeumo?
    - Hvað er Jota búinn að fá í bónus á leiktíðinni?
    - Af hverju er Benteke besti framherjinn í dag?
    - Raphinha hringir sig inn veikan
    1 hr 14 min
  • Enski boltinn - Keflvískt bakvarðauppgjör
    Tólfta umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina. Sæbjörn Steinke fékk Keflvíkingana Ástbjörn Þórðason og Rúnar Þór Sigurgeirsson með sér til að fara yfir umferðina.
    Ástbjörn er stuðningsmaður Liverpool og Rúnar er stuðningsmaður Arsenal. Hvaða lið endar í topp fjórum? Getur Norwich haldið sér uppi? Reece James eða Trent Alexander-Arnold og margt fleira.
    Í gær kom út aukaþáttur þar sem eingöngu var rætt um Manchester United og er hægt að nálgast þann þátt í hlaðvarspforritum og á Fótbolta.net.
    Þátturinn er í boði Domino's.
    1 hr 5 min