Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Ítalski boltinn - Juventus í æfingabúðum og Bjarki Steinn með nýjan samning
    Í þætti vikunnar verður farið yfir vandræðaganginn í Juventus sem endaði á því að liðið var sent í æfingabúðir. Bjarki Steinn skrifaði undir nýjan samning hjá Venezia, hvernig lítur framhaldið út hjá honum? Sampdoria saknar Claudio Ranieri og toppbaráttan er hnífjöfn á milli Napoli og AC Milan.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
    38 min
  • Ungstirnin x Garðabær
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Drengirnir fjalla um Luka Sucic (Salzburg) sem er enn einn spennandi leikmaðurinn í Salzburg og Kaiky Melo (Santos) sem hefur verið mikið líkt við varnarmanninn öfluga Thiago Silva.
    Þeir ungu og mjög efnilegu leikmenn Stjörnunnar Eggert Aron Guðmundsson og Óli Valur Ómarsson koma í heimsókn og takast drengirnir á í spurningakeppni. Þeir eru spurðir út í hvað hefur verið að gerast á þeirra ferli.
    1 hr 6 min
  • Fantabrögð - Salah slakar á og #SkáldaFPL
    Það kom að því. Mo Salah skoraði ekki. En lagði þó upp mark svo það voru ekki 100% vonbrigði hjá þeim metfjölda sem setti bandið á hann í þessari umferð.
    Aron og Gunni mættu í stúdíóið yfir leik Wolves og Everton og fóru yfir það helsta sem hafði gerst í umferðinni:
    - Reece James með tvennu og 21 stig!
    - Brentford ekki að gefa
    - Hvernig munu Spurs verða undir Conte?
    - #SkáldaFPL
    Að auki drógum við út sigurvegara í gjafaleik Massabón 🤩
    54 min
  • Enski boltinn - Nuno sparkað, Ramsdale lygasagan og kraftaverk Moyes
    Tíundu umferðinni í enska boltanum lýkur í kvöld með viðureign Wolves og Everton.
    Þeir Andri Geir Gunnarsson úr hlaðvarpsþættinum Steve Dagskrá og Arnar Laufdal Arnarsson, annar af umsjónarmönnunum Ungstirnanna, ræddu um það helsta í umferðinni.
    Í upphafi þáttar var hringt í Ingimar Helga Finnsson, stuðningsmann Tottenham, og farið yfir tíðindi dagsins. Andri er stuðningsmaður Barcelona og var spænska félagið til umræðu í lok þáttar.
    Arnar er mikill Ajax maður og ræddi um stöðu Donny van de Beek og fleira.
    Enski boltinn er í boði Domino's.
    1 hr 22 min
  • Útvarpsþátturinn - Enska hringborðið og Aron Þrándar
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 30. október.
    Enska úrvalsdeildin er í aðalhlutverki í þætti vikunnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Kristján Atli og Tryggvi Páll ræða um gang mála og valið er úrvalslið fyrsta fjórðungs.
    Staða Ole Gunnar Solskjær og þjálfaraskipti Barcelona er meðal umræðuefna í þættinum.
    Þá er Aron Elís Þrándarson, leikmaður OB, í áhugaverðu viðtali.
    1 hr 33 min
  • Fantabrögð - 9. umferð - Að gera sér dagamun
    Aron og Ásgeir mættu glaðir í stúdíóið, enda voru þeir báðir með Salah sem fyrirliða í liðinni umferð.
    Einhverjir þáttastjórnendur forfölluðust í kjölfarið á ákvörðunum sínum, en bekkjabræður fóru yfir það helsta, eins og:
    - Munur á gengi milli daga
    - Hvernig fór Kai Havertz að því að blanka?
    - Á að kaupa Mason Mount?
    - Munum við einhverntímann velja annan fyrirliða en Salah?
    - Hver er pókerhöndin þín í Fantasy?
    1 hr 2 min
  • Enski boltinn - Íslandsmeistarar rýndu í stöðu Solskjær
    Níundu umferðinni í enska boltanum lauk í gær með stórleik Manchester United og Liverpool. Íslandsmeistararnir Júlíus Magnússon og Eiður Ben Eiríksson fóru yfir umferðina og ræddu málin með Sæbirni Steinke.
    Eins og flestir vita lauk leiknum með risasigri Liverpool og var rýnt í leikinn og stöðu Ole Gunnar Solskjær hjá United. Júlli fór á Emirates og fór yfir málin hjá Arsenal og þá var aðeins skoðað hver gæti tekið við Newcastle.
    Í lok þáttar var farið yfir stuttlega yfir tímabilið hjá Víkingi með Júlla og Eiður rýndi aðeins í kvennalandsliðið.
    Enski boltinn er í boði Domino's.
    1 hr 16 min
  • Útvarpsþátturinn - Bak við tjöldin hjá meisturunum og enski
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 23. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Gestur: Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs Víkings. Farið er yfir leiðina að tvennunni, stefnu félagsins, hæðir og lægðir meðan Heimir hefur starfað bak við tjöldin, ráðninguna á Arnari Gunnlaugs, leikmannamál og ýmislegt fleira.
    Einnig er farið yfir íslenskar fréttir og hitað upp fyrir Manchester United - Liverpool með Kristjáni Atla Ragnarssyni.
    1 hr 48 min
  • Fantabrögð - Uppgjör á 8. umferð
    Þáttur vikunnar er mættur. Ásgeir og Heiðmar fóru yfir allt það helsta í umferðinni og spáðu í spilin fyrir komandi umferðir.
    Þurfa leikmenn á borð við Ronaldo, Benhrama og Jota að víkja fyrir Vardy, Son eða Toney?
    Er Lukaku að upplifa kulnun í starfi?
    Er Salah á móti Man Utd betri fyrirliðakostur en flestir aðrir?
    Alonso kominn í kælingu, af hverju spilar Tuchel ekki bara með tvo vinstri bakverði í kerfinu sínu?
    Þetta og margt fleira var rætt í þættinum!
    Ps minnum á föstudagsdeadline í vikunni.
    1 hr 29 min