Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Ungstirnin - Tchouameni, Babadi, FM og Wirtz
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Drengirnir fjalla um Aurélien Tchouaméni (Mónakó) sem hefur verið orðaður við Chelsea og Real Madrid og Isaac Babadi (PSV) sem er talinn vera mesta efnið úr PSV akademíunni síðan Memphis Depay.
    Meðal umræðuefnis er Football Manager 22, Florian Wirtz sem var nýlega valinn leikmaður mánaðarins í Bundesligunni, Evrópukeppni unglingaliða sem og margt fleira.
    1 hr
  • Enski boltinn - Salah, tap Man Utd og allt um eigendaskiptin
    Áttunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina og er komið að því að gera upp umferðina.
    Sæbjörn Steinke fékk þá Jón Júlíus Karlsson og Jóhann Má Helgason til að fara yfir stóru málin. Jón Júlíus er mikill Newcastle maður og Jóhann er harður stuðningsmaður Chelsea.
    Farið var yfir eigendaskipti Newcastle, tap Manchester United gegn Leicester og annað markvert.
    Hlarðvarpsþátturinn Enski boltinn er í boði Domino's.
    1 hr 26 min
  • Útvarpsþátturinn - Barist um bikar og landsliðsuppgjör
    Útvarpsþátturinn Fotbolti.net er í hlaðvarpsformi þessa vikuna þar sem umsjónarmenn hafa öðrum hnöppum að hneppa á hefðbundnum útsendingartíma.
    Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Skagamaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Sverrir Mar Smárason er með þeim í þættinum.
    Það er vel við hæfi enda er bikarúrslitaleikur Víkings og ÍA framundan á laugardaginn.
    Í þættinum er einnig rætt um íslenska landsliðið og tíðindi úr íslenska fótboltanum.
    52 min
  • Landsliðsumræða - Tómlegur völlur og döpur úrslit
    Fyrri hluti útvarpsþáttarins 9. október.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gera upp 1-1 jafnteflisleikinn gegn Armeníu. HM-draumurinn er algjörlega dauður og sárafáir mættu á Laugardalsvöll.
    Slakt lið Armena fékk stig gegn Íslandi en Ísak Bergmann varð yngsti markaskorari landsliðsins frá upphafi. Farið er yfir frammistöðu leikmanna og framhaldið.
    Einnig er rætt um komandi bikarúrslitaleik Víkings og ÍA sem verður næsta laugardag.
    51 min
  • Fantabrögð - Afsakið (landsleikja)hlé
    Umferð 7 var versta umferðin í Fantasy það sem af er tímabili. Meðalskorið var einungis 38 stig og þó Fantabræður hafi flestir verið yfir því þá er ekki hægt að segja að þeir hafi riðið feitum hesti.
    Aron og Heiðmar gerðu upp umferðina og fóru yfir allt það helsta (og versta).
    - Spurningar hlustenda
    - Hvað þarf að hafa í huga þegar maður tekur Wildcard í landsleikjahléi?
    - Chelsea og City varnarmenn
    - Hver er þessi Haraldur?
    1 hr 13 min
  • Ítalski boltinn - Emil snýr aftur og fimm bestu í deildinni valdir
    Emil Hallfreðsson er genginn til liðs við Virtus Verona, en hvaða lið er þetta eiginlega? Íslensku miðverðirnir eru farnir að byrja leiki, hinn tónelski Mourinho vill fá að stjórna tónlistinni og svo verða valdir í þættinum fimm bestu leikmenn deildarinnar í fyrstu sjö umferðunum.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
    32 min
  • Vanda Sig er sest í formannsstólinn - Ætlar að koma KSÍ úr krísunni
    Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net heimsótti Vöndu Sigurgeirsdóttur á skrifstofu hennar í Laugardalnum.
    Vanda er tekin við sem formaður KSÍ og er fyrsta konan sem tekur við formennsku í aðildarfélagi hjá UEFA.
    Í viðtalinu ræðir hún um tiltektina sem framundan er, hvort hún sé komin til að vera, gagnrýni í Podcöstum, stuðningsyfirlýsingu við Arnar, traust framkvæmdastjórans, ímynd KSÍ, yfirmann fótboltamála, Laugardalsvöll, reynsluna frá ferli hennar og "Vanda Sig" brandarana.
    26 min