Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski extra - Ole ekki lengur við stýrið
    Ole Gunnar Solskjær var látinn taka pokann sinn í morgun eftir tæp þrjú ár í starfi hjá Manchester United.
    Fótbolti.net ákvað að taka aukaþátt þar sem rætt var um Manchester United. BÁN teymið; þeir Sæbjörn Steinke, Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræddu um United.
    Hver tekur við?
    Af hverju var Ole einn látinn fara? Af hverju ekki fyrr?
    Hver á að taka við? Síðasti naglinn í kistuna og margt fleira á rúmlega 40 mínútum.
    48 min
  • Útvarpsþátturinn - Stóru málin í íslenska og enska boltanum
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. nóvember.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Benedikt Bóas fara yfir það helsta í boltanum. Leikmannaskipti, íslenska landsliðið, undankeppni HM, stjóramálin í enska og fleira til umfjöllunar.
    Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ er í viðtali, Kristján Atli ræðir um enska boltann, Þóroddur Hjaltalín um dómaramál og Sævar Pétursson um afreksþjálfun á Íslandi.
    1 hr 39 min
  • Birkir Már - Farið yfir ferilinn með Vindinum
    Birkir Már Sævarsson lagði landsliðsskóna á hilluna á sunnudag.
    Birkir Már lék 103 landsleiki og fór með íslenska liðinu á tvö stórmót. Hann var fastamaður í liðinu um árabil.
    Birkir fer yfir ferilinn með landsliðinu, aðallega gullaldarárin, og ferilinn til þessa með landsliðinu.
    Það var Sæbjörn Steinke sem ræddi við Birki.
    1 hr 43 min
  • Fantabrögð - Megi landsliðin öll rotna
    Eftir áralanga dvöl í óbyggðunum mættust stálin stinn í dag þegar Gunni og Gylfi, umdeilanlega þeir bestu í bransanum, fóru yfir 11. umferð og margt annað. Lífið er lag sem þeir sungu saman tveir. Eins og alltaf.
    Dýrir varnarmenn eru betri en dýrir miðjumenn. Arsenal eru bestir. Antonio er ekki allur þar sem hann er séður. Salah rýfur 400 stiga múrinn og Reece James skorar 29,8 mörk í vetur.
    Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér.
    Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þeir vilja í hlaðvarpið.
    Smelltu hér til að ganga í Fantasy-deild Fantabragða. Kóðinn á deildina er 0dmju7
    1 hr 22 min
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Jón Rúnar og fótboltafréttir
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. nóvember.
    Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs og fyrrum starfsmaður KSÍ, gerir upp landsleikinn gegn Rúmenum og horfir til framtíðar.
    Jón Rúnar Halldórsson, stjórnarmaður í ÍTF, er gestur þáttarins. Rætt er við hann um breytingar á íslensku deildinni, sjónvarpssamninga og fleira tengt íslenska boltanum.
    Þá fara Elvar Geir og Tómas Þór yfir fótboltafréttir vikunnar, bæði innlendar og erlendar.
    1 hr 40 min
  • Enski boltinn - Talandi um endastöð og stefnuleysi
    Það er komið landsleikjafrí í ensku úrvalsdeildinni. Tólfta umferðin fór fram um helgina og var farið yfir það helsta.
    Manchester City rústaði grönnum sínum í United, en þó einungis með tveimur mörkum. Liverpool lá gegn West Ham og tveir stjórar voru reknir. Hverjir taka við Norwich og Aston Villa?
    Þeir Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum og þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke.
    Enski boltinn er í boði Dominos.
    1 hr 42 min
  • Davíð Snorri: Þegar dugnaðurinn er á hreinu þá koma gæðin líka
    Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins valdi í síðustu viku hóp fyrir tvo leiki sem framundan eru. Ísland mætir Liectenstein næsta föstudag og Grikklandi þriðjudaginn 16. nóvember. Báðir leikirnir eru liður í undankeppni EM 2023.
    Davíð var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddi um komandi leiki og riðil Íslands.
    11 min
  • Fótboltafréttir vikunnar - Landsliðsval og leikmannaskipti
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már fara yfir fótboltafréttir vikunnar.
    Byrjað er að ræða landsliðsvalið og síðustu tvo leikina í undankeppni HM. Magnús Már velur byrjunarlið Íslands úr hópnum sem opinberaður var í vikunni.
    Annað til umræðu: Pétur Theodór slítur krossbandið í þriðja sinn, sóknarmannaleit Breiðabliks, Aron Jó í Val, staða Hannesar, óvæntustu skipti haustsins, Emil Pálsson fór í hjartastopp, Nuno út og Conte inn, Howe tekur við Newcastle og Xavi við Barcelona.
    51 min
  • Ítalski boltinn - Juventus í æfingabúðum og Bjarki Steinn með nýjan samning
    Í þætti vikunnar verður farið yfir vandræðaganginn í Juventus sem endaði á því að liðið var sent í æfingabúðir. Bjarki Steinn skrifaði undir nýjan samning hjá Venezia, hvernig lítur framhaldið út hjá honum? Sampdoria saknar Claudio Ranieri og toppbaráttan er hnífjöfn á milli Napoli og AC Milan.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
    38 min