Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Heimavöllurinn: Rússíbanaár hjá Svíþjóðarmeistaranum
    Guðrún Arnardóttir er gestur í jólaþætti Heimavallarins. Guðrún varð sænskur meistari með stjörnuprýddu liði Rosengård í haust eftir að hafa verið keypt til liðsins frá Djurgarden á miðju tímabili. Hún fer yfir frábært fótboltaár og rúmlega það með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
    1 hr 11 min
  • Fantabrögð - Frestunarárátta
    Gunni og Heiðmar gerðu upp "umferð" 18 í Fantasy Premier League. En enska úrvalsdeildin er haldin frestunaráráttu þessa dagana og það bitnar heldur betur á Fantasy liðunum okkar. Mjög erfitt er að reikna út hvaða leikir verða spilaðir og þ.a.l. hvar er möguleiki á stigum. Heiðmar og Gunni fóru yfir þessa fjögurra leikja umferð og reyndu að giska á hvað gerist næst.
    - 1,3 milljón spilarar keyptu Ollie þegar hann átti svo ekki leik
    - Hemson tók séns með fyrirliðavalið sem gekk svo upp
    - Einn úr Fantabrögðum tók Free Hit í umferðinni
    - Forráðamenn deildarinnar segja nei við hléi á deildinni
    1 hr 17 min
  • Ungstirnin - Tveir af okkar efnilegustu í hátíðarþætti
    Ungstirnin eru í hátíðarskapi og fá til sín tvo af efnilegustu leikmönnum Íslands. Gestir þáttarins eru unglingalandsliðsmennirnir Kristian Hlynsson og Orri Steinn Óskarsson sem báðir eru sautján ára, fæddir 2004.
    Kristan er í herbúðum Ajax og skoraði á dögunum sitt fyrsta mark fyrir aðallið félagsins. Orri er hjá FCK í Danmörku þar sem hann hefur raðað inn mörkum fyrir unglingaliðið og verið orðaður við stórlið í Evrópu.
    Arnar Laufdal Arnarsson heldur um stjórnartaumana í þættinum og gestastjórnandi er Elvar Geir Magnússon. Þeir ræða við þá Kristian og Orra og er víða komið við.
    Í þættinum er einnig rætt um leikmenn sem voru stjörnur ungir að árum en náðu alls ekki að standa undir væntingum þegar á hólminn er komið og Arnar kynnir þjóðinni fyrir Julian Alvarez sem er orðaður við Manchester United.
    1 hr 20 min
  • Enski boltinn - Máni og Steini Halldórs um Leeds og Man City
    Sjö leikir fóru fram í liðinni umferð, þremur leikjum var frestað.
    Fjölmiðlamaðurinn Máni Pétursson er mikill Leedsari og landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson er stuðningsmaður City.
    Hluti þáttarins fór í að ræða þessi tvö lið og svo farið yfir þá leiki sem voru spilaðir. Það er Sæbjörn Steinke sem stýrir þættinum.
    Þátturinn er í boði Domino's.
    1 hr 10 min
  • Fantabrögð - Fantasy Pandemic League
    Gylfi Tryggvason gaf sér tíma til að mæta í sitt eigið podcast eftir að hafa mátt þola háðsglósur á netinu í vikunni. Hann og Aron fóru yfir stóru málin í umferð 16 og það sem er framundan í Fantasy heimum.
    - Er Maddison í forgangi?
    - Hvernig er best að fá stig á bekkinn?
    - Á að nota triple captain í næstu umferð?
    1 hr 6 min
  • Enski boltinn - Víti eða ekki víti?
    Vítaumferðin mikla fór fram um helgina og voru vítadómarnir fyrirferðamiklir í þætti dagsins.
    Þeir Eiður Ben Eiríksson, þjálfari Þróttar Vogum, og Gunnar Gunnarsson, leikmaður Fram, fóru yfir málin með Sæbirni Steinke.
    Eiður var með kenningu um drættina hjá UEFA og Gunnar þurfti að taka það á sig að hrósa leikmanni United. Eiður átti þá samlíkingu dagsins sem tengdist vítaspyrnu Liverpool.
    Þátturinn í dag var í boði Domino's, Fast próteinstykkjanna og Celsius orkudrykksins.
    1 hr 3 min
  • Útvarpsþátturinn - Freysi, Eyjar og Emil Páls
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 11. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Farið yfir helstu fótboltafréttir vikunnar og hringt til Kóngsins Lyngby og spjallað við Frey Alexandersson en komið er vetrarhlé í dönsku deildinni.
    Rætt er við Daníel Geir Moritz, eiganda ÍBV. Vestmannaeyingar hafa verið að styrkja sig og þá stefna þeir á að leggja gervigras á heimavöll sinn.
    Gestur þáttarins er miðjumaðurinn Emil Pálsson sem fór í hjartastopp en var endurlífgaður í leik með Sogndal í Noregi á fyrsta degi nóvembermánaðar.
    1 hr 42 min
  • Ástríðan á aðventunni - Hvað er að frétta?
    Strákarnir í Ástríðunni, Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári, hittust og spjölluðu um allt sem tengist 2. og 3. deild karla í fótbolta og það sem tengist þeim ekki neitt.
    Meðal umræðuefna voru öll helstu félagaskipti liða í deildunum, þjálfaramál, sameining Leiknis F. og Fjarðabyggðar, óeining í Kormáki/Hvöt og hvaða lið eru ný í deildunum.
    Einnig tilkynntu þeir Bola-Mann Ársins í ástríðunni og Sverrir Mar sagði skemmtilega frá frægðarför Óskars Smára í MK.
    Þátturinn er í boði Bola og Ölgerðarinnar og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
    1 hr 52 min
  • Ítalski boltinn - Langi armur laganna og lið ársins hingað til
    Lögreglan hefur á undanförnum dögum heimsótt bæði forseta Sampdoria og höfuðstöðvar Juventus. Hvers vegna? Roma tapar illa gegn Internazionale sem er allt í einu orðið líklegasta liðið til að vinna titilinn og Íslendingaliðið Venezia tapar illa í Veneto-nágrannaslagnu eftir að hafa komist 3-0 yfir. Þetta og fleira í ítalska boltanum, þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
    47 min