Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Fótboltafréttir, Andri Rúnar og Vanda
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. febrúar.
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Formannsslagurinn, undirbúningstímabilið, þjálfaramál, enski boltinn og fleira koma við sögu.
    Sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason kemur í þáttinn en hann er mættur aftur úr atvinnumennskunni erlendis og ætlar sér stóra hluti með ÍBV í sumar.
    Þá er Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ á línunni en hún býður sig áfram fram í formannsstólinn. Það eru þrjár vikur í ársþing.
    1 hr 43 min
  • Ítalski boltinn - Loftbrúin til Ítalíu stendur enn og glugginn gerður upp
    Félagsskiptagluggi ítölsku liðanna gerður upp með einkunnagjöf. Albert Guðmundsson fetar í fótspor langafa síns í Serie A. Litríkur forseti Palermo fellur frá en skilur eftir sig ótrúlega sögu. Óttar Magnús yfirgefur Siena þar sem allt er í vafasamri upplausn og ungir Íslendingar vilja hvergi annars staðar spila enn á Ítalíu - eðli máls samkvæmt.
    talski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.
    52 min
  • Fantabrögð - Tilfinningalegt uppgjör
    Aron og Gunni hittust og reyndu að setja tilfinningar sínar í garð Watford leikmanna í orð. Það var erfitt, en einhver þarf að gera þetta.
    Strákarnir tóku fyrir spurningar hlustenda, veltu fyrir sér hverja þeir myndu kaupa á Wildcardi og hvernig næstu umferðir myndu spilast.
    Fantabrögð eru í boði hlustenda sinna sem styrkja okkur á Patreon, einnig í boði Nemíu og Massabón.
    Takk fyrir að hlusta.
    54 min
  • Enski boltinn - Gluggayfirferð með BÁN-bræðrum
    Félagaskiptaglugganum á Englandi var skellt í lás klukkan 23:00 í gærkvöldi og voru sum félög að græja síðustu skiptin í blálok gluggans.
    Pierre-Emerick Aubameyang, Aaron Ramsey, Dele All, Donny van de Beek og fleiri öflugir skiptu um félag í gær.
    Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræða málin við Sæbjörn Steinke (BÁN-bræður). Farið er yfir félögin í ensku úrvalsdeildinni, rætt um skipti Alberts Guðmundssonar, stærstu skiptin á Ítalíu og aðeins spáð í spilin með sumargluggann.
    Þátturinn er í boði Domino's (fyrir alla) og White Fox (fyrir 18 ára og eldri).
    1 hr 25 min
  • Útvarpsþátturinn - Þjálfarahræringar, Damir og glugginn
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. janúar.
    Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas.
    Rætt er um fréttir vikunnar, þjálfaraleit ÍA, formannsslag KSÍ og fleira. Eggert Ingólfur Herbertsson, formaður ÍA, er á línunni og einnig Sæbjörn Steinke sem horfði á Stjörnuna vinna Breiðablik í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins.
    Gestur þáttarins er Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks.
    Einnig er fjallað um enska boltann og félagaskiptagluggann.
    1 hr 40 min
  • Heimavöllurinn: Rússíbanaár hjá Svíþjóðarmeistaranum
    Guðrún Arnardóttir er gestur í jólaþætti Heimavallarins. Guðrún varð sænskur meistari með stjörnuprýddu liði Rosengård í haust eftir að hafa verið keypt til liðsins frá Djurgarden á miðju tímabili. Hún fer yfir frábært fótboltaár og rúmlega það með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
    1 hr 11 min
  • Enski boltinn - Átti markið að standa?
    23. umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina og loksins fóru allir leikir fram!
    Þeir Magnús Þór Jónsson (Liverpool) og Birgir Ólafsson (Tottenham) fara yfir það helsta með Sæbirni Steinke.
    Tottenham þarf að bakka Conte upp, Liverpool þyrfti að fá miðjumann, West Ham olli vonbrigðum, City missteig sig, mark dæmt af Kane en ekki af Uxanum, sautján endursýningar, Hodgson kominn aftur, allt í rugli hjá Everton og margt fleira.
    Enski boltinn er í boði Domino's (fyrir alla) og White Fox (fyir 18 ára og eldri).
    1 hr 23 min
  • Heimavöllurinn: Atvinnukonurnar okkar, landsliðshópar og vetrarveisla í efstu deild
    Bára Kristbjörg aðstoðarþjálfari Selfoss og Aníta Lísa þjálfari Fram eru gestir Heimavallarins. Við förum yfir U23 og U19 ára landsliðshópana sem voru tilkynntir í síðustu viku ásamt því að rýna í stöðu nýrra atvinnukvenna erlendis. Við fáum einnig innsýn inn í hugarheim og vinnu þjálfara hjá gestum þáttarins.
    Það eru einnig 3 mánuðir í að Íslandsmótið verði flautað í gang. Við gátum ekki sleppt gestunum án þess að fara yfir liðin tíu sem mæta til leiks í apríl. Við förum yfir leikmannamarkaðinn hjá liðunum ásamt því að skyggnast í vetrarmótin.
    1 hr 45 min
  • Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra spáin 2022
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. janúar.
    Algjörlega ótímabær spá fyrir Íslandsmótið 2022. Elvar Geir, Tómas Þór og Sverrir Mar ræða um öll liðin tólf í Íslandsdeildinni,
    Hverjir eru komnir og farnir og hverjir verða bestir næsta sumar?
    1 hr 47 min
  • Fantabrögð - Bruno Fernandes Special
    Ásgeir og Hemson tóku upp þátt yfir leik Brentford og Man Utd þar sem Hemson gat varla einbeitt sér, verandi með bandið á Bruno.
    - Á meðan Salah tekur frí frá Fantasy, þá stíga gömlu kanónurnar upp á móti. Bruno, Kane, De Bruyne mennirnir.
    - Er Aston Villa liðið til að horfa til núna? Gerrard að smíða stórvirki í Birmingham.
    - Er 7M€ fyrir Coutinho alltof lítið?
    - Er Fantasy orðið 50% heppni og 50% gæði?
    - Burnley á 5 leiki inni, hvort myndir þú velja Cancelo í einn leik eða Lowton með 5 leiki?
    - Hvernig á að plana fram í tímann við þessar aðstæður?
    - Hvenær við fáum fleiri tvöfaldar umferðir?
    Þetta og margt annað. Allt í boði Nemíu, Massabón en fyrst og fremst Patreon.
    Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér.
    1 hr 3 min