Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Ferna og Everton fellur
    Vonin um fernuna lifir hjá Liverpool, Man City einbeitir sér að tveimur keppnum og Burnley er á lífi í fallbaráttunni - og rúmlega það.
    Farið var yfir síðustu vikuna í enska boltanum, fall Derby tekið fyrir og enski bikarinn tekinn meðfram leikjum síðustu helgar í úrvalsdeildinni.
    Þeir Ingimar Helgi Finnsson, Jón Júlíus Karlsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson fóru yfir gang mála í deildinni með Sæbirni Steinke og eru þeir allir á því að Burnley haldi sér uppi. Tottenham tekur fjórða Meistaradeildarsætið en hvaða lið verður meistari.
    Hvað mun Erik ten Hag gera með United? Hvaða leikmenn Newcastle verða í liðinu eftir tvö ár? Það og margt fleira í þættinum.
    Enski boltinn er í boði Domino's (fyrir alla) og WhiteFox (fyrir átján ára og eldri).
    1 hr 13 min
  • Heimavöllurinn: Upphitun fyrir Bestu deildina
    Besta deildin hefst eftir fimm daga og það er komin tími á upphitun í boði Dominos og Heklu. Mist Rúnarsdóttir og Hulda Mýrdal hita upp fyrir deildina með Sæbirni Þór Steinke íþróttafréttamanni á Fótbolti.net.
    1 hr 44 min
  • Spjallað við Steina - Í bílstjórasætinu og EM framundan
    Kvennalandsliðið sótti sex stig í landsleikjaglugganum fyrr í þessum mánuði. Hvítrússar og Tékkar sigraðir og liðið í bílstjórasætinu í undankeppninni fyrir HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári.
    Tveir leikir eru eftir í riðlinum og verða þeir spilaðir í haust. Nú fer hins vegar einbeitingin öll á lokakeppni EM sem fram fer á Englandi í júlí.
    Sæbjörn Steinke ræddi við landsliðsþjálfarann Þorstein Halldórsson og er farið yfir ýmislegt með Steina.
    Oftar en einu sinni er farið fram og til baka með ýmsar vangaveltur svo sem leikmannamál, af hverju er þessi valin en ekki hin, undirbúningur fyrir EM, Manchester City Academy Stadium, markmannamálin, Söru Björk, Elínu Mettu og fleira.
    35 min
  • Innkastið - Besta deildin ætlar að standa undir nafni
    1. umferð Bestu deildarinnar er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Sverrir Mar ræða um leikina.
    Íslandsmeistararnir byrja á endurkomusigri, lömb leidd til slátrunar í Kópavogi, Eyjamenn bensínlausir eftir flotta frammistöðu á Hlíðarenda, KR-ingar sýndu nýliðum Fram enga miskunn, Skagamenn sóttu stig í Garðabæ og Akureyringar fögnuðu á Dalvík.
    57 min
  • Enski boltinn - Úrslitin sem þeir hlutlausu vildu
    Það var heil umferð spiluð um liðna helgi í ensku úrvalsdeildinni og hápunkturinn var stórleikur Man City og Liverpool á sunnudag.
    Það er orðið þannig að liðin vilja ekki ná fjórða sætinu og var Tottenham eina liðið sem vann af liðunum í 4.-8. sæti.
    Þeir Ingimar Helgi Finnsson og Sigurður Orri Kristjánsson fóru yfir helgina með Sæbirni Steinke.
    Þátturinn er í boði WhiteFox (18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).
    1 hr 14 min
  • „Erum hungraðir eftir vonbrigða tímabil í fyrra"
    „Mér líst allt í lagi á þessa spá, þetta er kannski eðlilegt miðað við gengi okkar í fyrra en við ætlum okkur stærri hluti - það er ekkert flóknara en það. Ég held að það sé alveg klárt að við ætlum að berjast um þá titla sem eru í boði," sagði Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, í viðtali við Fótbolta.net. Tilefnið var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en FH er spáð fjórða sæti í sumar.
    11 min
  • BÁN - Upphitunarþáttur: Jói og Donni á línunni
    Það er farið að vora, bikarinn er farinn af stað og liðin að klára sinn undirbúning fyrir Íslandsmót. Það er því ekki seinna vænna að hita upp fyrir boltann á Norðurlandi í sumar og nákvæmlega það gerðu þeir Egill Sigfússon og Sæbjörn Steinke.
    Rætt var við Völsunginn Jóhann Kristinn og Sauðkrækinginn Donna. Þá var rætt um hin liðin á Norðurlandi og rýnt í stöðu þeirra.
    Fyrsti leikur KA fer fram á Dalvík eftir rúma viku, Þórsarar komnir með nýjan þjálfara í brúna og Þór/KA fengið stórar og þekktar stærðir aftur heim.
    1 hr 14 min
  • Ástríðan - Spá fyrir 3. deild

    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu?

    Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

    1 hr 48 min
  • Ástríðan - Spá fyrir 2. deild

    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 2. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu?

    Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

    2 hr