Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Á kaffihúsi í Svíþjóð með Brynjari Birni - Frá Lengjudeildinni í Superettan
    Brynjar Björn Gunnarsson tók við liði Örgryte í Svíþjóð í maí. Hann hafði þess áður verið aðalþjálfari HK en skipti um lið þegar bara 2 leikir voru búnir af mótinu hér heima. Þetta hefur verið erfitt tímabil hjá Örgryte þar sem þeim var spáð góðu gengi fyrir mót en sitja nú í fallsæti.
    Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, settist niður með Brynjari á kaffihúsi í Gautaborg og spjallaði við hann. Það var farið yfir feril hans sem leikmaður, tími hans sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, þjálfaratímann hjá HK og að lokum allt á bak við ráðnigu hans til Örgryte og hvernig hefur gengið síðan.
    54 min
  • Ástríðan - 12. umferð - Ólsarar vakna en þungt ský yfir Grafarvogi
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Óskar Smári og Sverrir Mar mættu og fóru yfir 12. umferð í báðum deildum. - Ólafsvík með sigur en Ægismenn sleppa með skrekkinn- Líf í Magnamönnum en Njarðvík hangir á lyginni- Munu Haukar blanda sér í toppinn?- Talið upp hvaða Káramenn vantaði- Mörg töp í röð hjá Vængjum og ÍH- Víðismönnum fannst létt að spila á HöfnHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 30 min
  • EM Innkastið - Markmiðið náðist ekki en þjóðin er stolt
    Sjötta og síðasta EM Innkastið þetta sumarið. Ísland er úr leik og komið að kveðjustund á hótelbarnum í Crewe.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn eru komnir "heim" til Crewe eftir tveggja daga sólarlandaferð til Rotherham.
    Leikurinn við Frakkland er gerður upp, farið yfir leikdaginn, byrjunarliðið óvænta, einkunnir Íslands, alla 1-1 leiki ferðarinnar og það áhugaverðasta úr viðtölum eftir leik.
    Þá er valinn besti leikmaður Íslands á mótinu.
    46 min
  • EM Innkastið - Eyjastemning í Rotherham
    EM Innkastið er sent út frá sveitinni að þessu sinni, rétt fyrir utan Rotherham.
    Elvar, Steinke og Gummi (stundum kallaður Gvendur) eru á sínum stað en sérstakur heiðursgestur er Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttakona á Stöð 2.
    Það er Eyjaþema í þættinum þar sem hitað er upp fyrir lokaleik riðilsins, leikinn erfiða gegn Frakklandi. Í þættinum er rætt um Rotherham, New York völlinn, einræðisherrann við stjórnvölinn og svör Steina á fréttamannafundinum í dag.
    46 min
  • EM Innkastið - Færi í súginn og þörf á Krísuvíkurleið
    Aftur varð niðurstaðan 1-1 jafntefli, núna gegn Ítalíu. Ísland þarf að komast Krísuvíkurleiðina ef sæti í úrslitakeppninni á að nást.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbarnum fræga í Crewe og gera upp leikinn og skoða möguleika Íslands.
    Í lok þáttarins er svo farið yfir víðan völl og rætt um Evópuleiki og Lengjudeildina.
    44 min
  • EM Innkastið - Að duga eða drepast í Manchester
    Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, er heiðursgestur EM Innkastsins að þessu sinni.
    Hann ræðir við Elvar, Steinke og Gumma um komandi leik gegn Ítalíu, sífelldar ferðir hans og Eggerts ljósmyndara til Manchester og hverju má búast við í leiknum á morgun. Hver fer á vítapunktinn ef við fáum víti?
    Í lok þáttar er farið um víðan völl og meðal rætt um skoðunarferð til Liverpool, Kristal Mána og Víking og fleira.
    39 min
  • Heimavöllurinn: Klúður gegn Belgíu, næst eru rassskelltir Ítalar og 100 leikja Fanndís Friðriksdóttir
    Í boði Landsbankans, Orku Náttúrunnar, Dominos og Heklu er fyrsti leikur Íslands á EM gerður upp með Báru Kristbjörgu knattspyrnusérfræðing ásamt því að fara yfir einstaklingsframmistöður og möguleika Íslands í riðlinum. Við heyrðum einnig í Fanndísi Friðriksdóttir sem hefur farið á öll stórmót Íslands hingað til og er einn af þeim Íslendingum sem hefur tekist að skora mark á stórmóti í knattspyrnu
    1 hr 16 min
  • Ástríðan - 11. umferð - Tímabilið hálfnað en engar línur að skýrast
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust síðla kvölds og ræddu stóru málin í 2. og 3. deild karla. Tímabilið er hálfnað og margt í gangi. Þjálfaraskipti, félagaskipti, lið að snúa genginu við í báðar áttir og spennan magnast upp!-Njarðvík óstöðvandi.-Ægir með yfirburði í toppslagnum.-Fjarðabyggðarhöllin er ekkert til að grínast með.-Hvaða annað lið ætti að falla úr 2. deild?-Dalvík/Reynir blésu lífi í sínar vonir.-Kári að koma bakdyramegin í toppbaráttuna í 3. deild?-Elliðamenn vanstilltir þegar allt var undir.-KFS með magnaða endurkomu.Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 57 min
  • EM Innkastið - Leikur sem átti að vinnast
    EM Innkastið er sent út beint frá Englandi þar sem Evrópumót kvennalandsliða fer fram. Fréttamenn Fótbolta.net ræða málin.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbar íslenska fjölmiðlahótelsins.
    Í þessum öðrum þætti er 1-1 jafnteflisleikurinn gegn Belgíu gerður upp. Ísland fékk heldur betur tækifæri á að taka öll stigin en það gekk ekki upp. Hvernig líta möguleikarnir út núna?
    Í þættinum er einnig rætt um skrautlega stuðningsmenn, kynninguna á Haaland, maður dagsins er valinn og ýmislegt fleira.
    48 min
  • Heimavöllurinn á EM: Troðfullt í leikhúsi draumanna og veislan loks hafin
    Það er enskt þema á Heimavellinum í dag. EM í Englandi er hafið og leitað var til tveggja enskra sérfræðinga til að fara yfir málin. Þeir Nik Chamberlain og Jamie Brassington, aðal- og markmannsþjálfari Þróttar, mættu og ræddu EM, England, Ísland og í raun allt milli himins og jarðar. Gáfu meðal annars nokkur góð ferðaráð enda fjölmargir stuðningsmenn íslenska landsliðsins á leið til Englands að styðja við stelpurnar okkar. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos, Heklu, Orku Náttúrunnar og Landsbankans og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir að styðja við umfjöllun um knattspyrnu kvenna.
    1 hr 30 min