Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    1 day ago

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Ástríðan - 20. umferð - Dalvíkingur dæmir hjá Dalvík og Þróttur í Lengjudeildina
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.
    Allir mættir til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 20.umferð í báðum deildum.
    Meðal umræðuefnis:
    - Víðismenn dottnir úr baráttunni í 3.deild- Tvo leiki í röð dæmir Dalvíkingur leik hjá Dalvík- Meintir fordómar á Höfn- Var Baddi Borgars fat shameaður?- Þróttur R. komnir upp og vel að því komnir- Spennan magnast á botni 3.deildar þar sem fleiri lið eru að dragast niður í baráttunaHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 37 min
  • Enski boltinn - Velkomnir úr draumalandinu og flókið draumalið
    Þeir Sæbjörn Steinke og Aksentije Milisic fara yfir sjöttu umferðina í ensku úrvalsdeildinni.
    Það urðu nokkur ansi athyglisverð úrslit um helgina og mörg vafaatriði sem hægt var að tala um.
    Man Utd vann sinn fjórða leik í röð þegar liðið lagði topplið Arsenal, Liverpool tapaði stigum í fjórða leiknum á tímabilinu, City náði ekki að leggja Villa og Chelsea var stálheppið að vinna. Brighton heldur svo áfram að heilla og Ivan Toney var maður helgarinnar.
    Í lok þáttar eru svo valin draumalið skipað leikmönnum deildarinnar. Reglurnar eru þrjár: 11 leikmenn, að hámarki einn úr hverju liði og að hámarki einn af hverju þjóðerni.
    Þátturinn er í boði White Fox, en það er bara fyrir 18 ára og eldri.
    1 hr 24 min
  • Útvarpsþátturinn - Gósentíð í íslenska og enska
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. september. Það er allt í gangi í boltanum og nóg að fara yfir við hringborðið.
    Elvar Geir, Benedikt Bóas og Orri Freyr rýna í undanúrslitaleikina áhugaverðu i bikarnum sem fram fóru í vikunni. Víkingur og FH munu mætast í úrslitum.
    Hitað er upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni.
    Fjallað er um enska boltann, gluggakaupin og Kristján Atli gerir upp Everton - Liverpool.
    Þá ræðir Guðmundur Aðalsteinn um leið íslenska kvennalandsliðsins á HM.
    1 hr 45 min
  • Heimavöllurinn: Mætum og klárum dauðafærið!
    FH-konur hafa verið á flugi og leika í Bestu deildinni að ári. Valskonur svífa vængjum þöndum og eru á leið til Prag. Eru stelpurnar okkar á leiðinni á HM? Það gæti skýrst á næstu dögum. Fyrrum landsliðskonurnar og legendin, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir, fara yfir allt saman á Heimavellinum. Auðvitað í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.
    58 min
  • Ástríðan - 19. umferð - Hart barist á báðum endum í 3.deild, fáum við fallbaráttu í 2.deild?
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 19.umferð í báðum deildum.Meðal umræðuefnis:
    - Ofsaleg toppbarátta í 3.deild- ÍH og Vængir opnuðu fallbaráttuna- Kári Péturs og Andri Júl að lauma sér í markakónginn- Höttur/huginn er heitasta lið 2.deildar- Maggi Matt með pillu á Badda Borgars sem skipti svo sjálfum sér inná í næsta leik- Dómarar dæma hjá sínum liðumHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 24 min
  • Innkastið - Uppgjör á slóðum séra Friðriks
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp 19. umferðina í Bestu deildinni og ræða helstu fréttir tengdar deildinni.
    Þátturinn var tekinn upp á Hlíðarenda, strax eftir 1-1 jafntefli Vals og Fram.
    Völsurum mistókst að henda sér í alvöru Evrópubaráttu, Víkingar unnu KA í leikjum sem var fullur af umdeildum atvikum, Atli Jónasson fékk á sig fjögur gegn Breiðabliki, ÍA elskar að spilar í Keflavík, hundleiðinlegur leikur á Meistaravöllum og ráðgjafinn fjarverandi þegar ÍBV vann Stjörnuna.
    53 min
  • Enski boltinn - Salah pirrar marga, Nallarar missa sig og óvænt verkefni
    Gummi og Steinke settust niður í dag og fóru yfir fjórðu umferðina í ensku úrvalsdeildinni í hlaðvarpinu Enski boltinn.
    Það var margt áhugavert sem átti sér stað í umferðinni sem var um helgina.
    Man Utd er hægt og rólega að hrökkva í gang, Liverpool svaraði með flugeldasýningu, Brighton er á flugi, Chelsea vann einum færri, Haaland í stuði, Nallarar í skýjunum, Tottenham er vél sem mallar og Gerrard verður fyrst rekinn.
    Þetta og margt fleira í þætti dagsins. Það var jafnframt boðið upp á óvænt verkefni sem þáttastjórnanda datt í hug rétt áður en farið var í upptöku.
    1 hr 26 min
  • Útvarpsþátturinn - Besta, Dagur Dan og enski
    Útvarpsþátturinn laugardaginn 27. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Rætt um Bestu deildina og val á úrvalsliði umferða 10-18 opinberað. Guðmundur Steinarsson ræður um Vaduz í Sambandsdeildini.
    Dagur Dan Þórhallsson leikmaður Breiðabliks og U21 landsliðsins er gestur og Tryggvi Páll Tryggvason ræðir við Tom um Man Utd og enska boltann.
    1 hr 32 min
  • Heimavöllurinn: París kallar, bestar í 2/3 og bikartryllingur
    Það er þéttsetið á Heimavellinum þessi misserin enda nóg um að vera. Landsliðskonurnar okkar eru að ganga til liðs við stórlið á meginlandinu, landsliðshópurinn er klár fyrir lokasprettinn á leiðinni á HM og bikarúrslitaleikurinn fer fram á laugardag. Þá er einnig nóg um að vera í öllum deildum hérlendis og komið að því að tilkynna um bestu leikmenn í öðrum þriðjungi Bestu deildarinnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir og þátturinn er í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.
    1 hr 28 min
  • Ástríðan - 17. og 18. umferð í 3. deild - Nú byrjar ballið og megi besta liðið vinna
    Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spilaðar voru 17. og 18. umferð í 3. deildinni.
    Meðal umræðuefnis:
    - Ofsaleg toppbarátta- ÍH eru að bjarga sér annað árið í röð- KFG að kólna- Brotlentir Vængir- Stigasöfnun ElliðaHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
    1 hr 23 min