Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Hugarburðarbolti GW 24 Sporðdreki í norður London!
    Arsenal eru með 6 stiga forskot eftir leiki helgarinnar. Tottenham og Man City gerðu 2-2 jafntefli í Norður London. Liverpool sigruðu Newcastle 4-1 á Anfield Road. Man Utd með 3-2 sigur á Fulham í spennu trylli. Aston Villa þurftu að lúta í gras á heimavelli gegn góðu Brentford liði 0-1. Þetta og allt hitt í GW24.
    1 hr 6 min
  • Enski boltinn - Leikhús draumanna stóð undir nafni
    Arsenal styrkti stöðuna á toppi deildarinnar með sannfærandi sigri á Leeds. Thomas Frank og lærisveinar hans í Tottenham tóku stig gegn City og Benjamin Sesko reyndist hetjan í dramatískum sigri Manchester United á Fulham í leikhúsi draumana.
    Þá vann Liverpool vann sinn fyrsta deildarleik á árinu og gott gengi Chelsea undir Liam Rosenior hélt áfram.
    Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson og Sölvi Haraldsson fóru yfir allt það helsta úr 24. umferð enska boltans ásamt því að fara yfir helstu vendingar janúargluggans.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Ólga í FH og Lengjudeildin aldrei verið stærri
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni frá Suðurlandsbraut. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og Tómas velur sitt landslið úr Bestu deildinni.
    Baldvin Már Borgarsson sérfræðingur þáttarins opinberar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina og skoðar hvað félögin þar hafa verið að gera í vetur.
    Skoðað verður hvað Íslendingar voru að gera í Evrópukeppnum og þá er sérstakt handboltahorn þar sem rætt er um frammistöðu íslenska liðsins á EM.
    1 hr 51 min
  • Fótbolta nördinn - Bomban vs Grindavík
    Fimmti þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Gunnar Hilmar Kristinsson fyrir Bomban hlaðvarp og Damir Muminovic fyrir Grindavík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
    0 min
  • Hugarburðarbolti GW 23 Martröðin raungerðist!
    Man Utd skellti toppliði Arsenal á Emirates vellinum 2-3. Chelsea og Man Utd komust upp fyrir Liverpool með tapi þeirra síðast nefndu gegn Bournemouth 3-2 á suðurströndinni. Crystal Palace tapaði 1-3 gegn Chelsea í Lundúna slag. West Ham unnu annan leik sinn í röð. Newcastle tapaði gegn Aston Villa á sínum heimavelli 0-2 um helgina og Everton og Leeds skildu jöfn.
    1 hr 18 min
  • Enski boltinn - Dansað á Emirates og stjórar valtir í sessi
    Manchester United fer býsna vel af stað undir stjórn Michael Carrick. Eftir sigur á Manchester City í síðustu umferð, þá fóru þeir á Emirates í gær og tóku sigur. Matheus Cunha sýndi brasilísk dansspor eftir að hann gerði sigurmarkið.
    Núna er toppbaráttan aftur orðin spennandi þar sem Aston Villa og Manchester City eru núna bara fjórum stigum á eftir toppliðinu.
    Liverpool tapaði á dramatískan hátt gegn Bournemouth og áfram gengur ekkert hjá Tottenham. Hvernig er Thomas Frank enn í starfi?
    Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta í Pepsi Max stúdíóinu eftir helgina.
    1 hr 1 min
  • Kjaftæðið - Takk Man Utd!
    Baldvin Borgars, Nonni Kristján og Öddi Chelsea gómur fóru yfir helgina í enska, íslenska og svo komandi Meistaradeildarmiðvikudag.
    1 hr 12 min
  • Útvarpsþátturinn - Arnar Gunnlaugs og Eyjó Héðins
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er tekinn upp á bóndadeginum. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Það eru tveir gestir þessa vikuna. Sá fyrri er landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson sem ræðir um verkefni ársins 2026 og um þróun liðsins undir hans stjórn.
    Svo kemur Eyjólfur Héðinsson, nýr yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki. Hann ræðir um ýmislegt tengt Kópavogsliðinu og sínu starfi. Einnig er rætt aðeins um sameinað Breiðholt.
    0 min