Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Hver á að endurlífga Man Utd?
    Það var nóg að ræða í Pepsi Max stúdíóinu í dag.
    Stuttu eftir að síðasti þáttur var tekinn upp, þá ákvað Manchester United að reka Rúben Amorim. Hvað gerist næst?
    Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Magnús Hauk Harðarson og útvarpsgoðsögnina Sigga Hlö í heimsókn til að fara yfir málin. Siggi er grjótharður stuðningsmaður United.
    Þá var rætt um leikina í FA-bikarnum sem fóru fram um helgina og síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Ein óvæntustu úrslit í sögu FA-bikarsins áttu sér stað núna síðasta laugardag.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Nýjustu sambýlismennirnir
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. janúar.
    Gestir þáttarins eru Júlíus Mar Júlíusson og Hrannar Snær Magnússon sem eru farnir frá KR og Aftureldingu og gengnir til liðs við Kristiansund þar sem þeir verða sambýlismenn.
    Rætt er um þjálfaramál ÍBV, farið yfir lista yfir mest spennandi kaupin í Bestu deildinni og farið yfir fréttir vikunnar.
    Að auki er enski boltinn til umræðu en Manchester United er í stjóraleit eftir að Rúben Amorim var látinn taka pokann sinn.
    1 hr 24 min
  • Hugarburðarbolti GW 21 Var lesin eins og "Litla gula hænan"
    Stórmeistara jafntefli 0-0 á Emirates hjá Arsenal og Liverpool í mígandi rigningu. Igor Thiago er ekkert að grínast með formið á sér. Fulham skellti Chelsea í kotinu. Man City og Aston Villa náðu ekki sigrum í sínum leikjum. Svakalegur leikur á St.James's Park þegar Newcastle lagði Leeds 4-3. Antoine Semenyo átti fallega kveðjustund fyrir Kirsuberin í 3-2 sigri gegn Tottenham. Degi seinna keypti Man City hann. Man Utd voru að spila gegn Burnley úti eftir að Ruben Amorim var rekinn.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Aron Baldvin Þórðarson
    Aron Baldvin Þórðarson er aðstoðarþjálfari Sölva Geirs Ottesen hjá karlaliði Víkings í fótbolta. Aron Baldvin komst í fréttirnar í vikunni þegar Eyjamenn reyndu að fá drenginn til Eyja úr hamingjunni.Víkingar vildu ekki selja.Í þessum þætti kynnumst við Aroni og áttum okkur glögglega á því hversvegna Víkingar vildu ekki missa hann frá borði! 
    Taktískar pælingar með Arnari Gunnlaugs, stóísk ró Sölva Geirs, afhverju töpuðu Víkingar fyrir Bröndby, Einar Guðna og hvernig teymir maður hafsent Blika til að pressa eins eins og hægri vængmaður!
    Skylduhlustun.
    0 min
  • Enski boltinn - Kaldar nýárskveðjur og er Amorim búinn?
    Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur.
    Það hefur verið mikið um að vera í enska boltanum síðustu daga. Tvær umferðir voru spilaðar síðustu vikuna.
    Enzo Maresca og aðdáendur enska boltans fengu kaldar nýárskveðjur og allt gengur upp hjá Arsenal þessa dagana. Það er einhver hiti á bak við tjöldin hjá Manchester United og spurning hvort Rúben Amorim sé einfaldlega búinn hjá félaginu.
    Það var rætt um þetta og fleira í Pepsi Max stúdíóinu í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn stýrir en með honum eru Magnús Haukur Harðarson og Kári Kristjánsson, nýr leikmaður FH.
    1 hr 4 min
  • Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
    Annar þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net og Guðmundur Tyrfingsson fyrir Fylki. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
    0 min
  • Leiðin úr Lengjunni: Ótímabæra spáin
    Mjög snemmbúinn upphitunar þáttur fyrir Lengjudeildina þar sem við spáðum fyrir því hvernig deildin mun fara. Stefán Marteinn, Haraldur Örn og Sverrir Örn mættu til að fara yfir sviðið.
    1 hr 10 min