Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Hugarburðarbolti GW 22 Þáttastjórnandi telur Manchester United vera betri en Arsenal!
    Man Utd sýndu gamla góða takta í 2-0 sigri á Man City á Old Trafford. Arsenal breikkaði bilið á toppnum í 7 stig þrátt fyrir 0-0 jafntefli gegn Notthingham Forest í Skýriskógi. Liverpool missteig sig gegn nýliðum Burnley 1-1 á Anfield. Það gengur ekkert upp hjá Tottenham í deildinni. Sunderland halda áfram að vera í Evrópubaráttu. Aston Villa tapaði heimaleik eftir svakalega sigurgöngu.
    0 min
  • Fótbolta nördinn - SÝN vs FH
    Fjórði þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Ágúst Orri Arnarson fyrir SÝN og Björn Daníel Sverrisson fyrir FH. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
    44 min
  • Alfreð: Tækifæri sem var of gott til að segja nei við
    Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason var ráðinn í upphafi árs nýr yfirmaður fótboltamála hjá norska stórliðinu Rosenborg.
    Hann kemur til félagsins eftir að hafa starfað hjá Breiðabliki í um eitt og hálft ár sem tæknilegur ráðgjafi.
    Fótbolti.net sló á þráðinn til Alfreðs og ræddi við hann um nýja starfið í Þrándheimi. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
    0 min
  • Enski boltinn - Michael Carrick og Michael Scott
    Manchester er rauð eftir að United fór með sigur af hólmi gegn City í fyrsta leik Michael Carrick. Sigurinn var óvæntur en yfirburðirnir voru miklir sem var ekki síður óvænt.
    Farið var yfir þennan leik og aðra leiki helgarinnar í Pepsi Max stúdíóinu á þessum ágæta mánudegi.
    Rætt var til að mynda um nýjan stjóra Chelsea sem er athyglisverður, jafntefli Liverpool gegn Burnley og Tottenham sem er á óskiljanlegan hátt ekki búið að reka Thomas Frank. Þá er Arsenal ekki alveg að grípa tækifærið.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Björn Daníel Sverrisson, Part II
    Þáttur vikunnar er seinni hluti viðtalsins við Björn Daníel Sverrisson. Þátturinn byrjar á stuttum hljóðbrotum við fyrrum þjálfara og vini Björns en svo tekur Björn við að segja frá stórkostlegum ferli sínum á Íslandi, Noregi og í Danmörku.Njótið!
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Föstudagsfjör og Balkanbræður
    Það er víða víða komið við í þætti vikunnar en hann er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu á föstudegi að þessu sinni. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór.
    Rætt er um fréttir vikunnar og leikjaniðurröðun Bestu deildarinnar.
    Gestur er Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður og er rætt við hann um Balkanbræður, stórmót og handbolta.
    Balkanbræður eru nýir útvarps og hlaðvarpsþætir - Þorkell fjallar þar um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að.
    1 hr 22 min
  • Fótbolta nördinn - RÚV vs Víkingur
    Þriðji þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson fyrir RÚV og Helgi Guðjónsson fyrir Víking. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
    36 min