Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Lífsbaráttu-laugardagur fyrir höfuðstað Norðurlands
    Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta tímabilið.
    Seinna í dag verður Innkastið svo í beinni útsendingu á X977, klukkan 18, þar sem umferðin verður gerð upp.
    1 hr 22 min
  • 38 umferðir - Engilbert Aron special
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð.
    Einnig kynntu þeir félagar gjafaleik sem þeir eru með í gangi og hlustendur geta tekið þátt í á Instagram. Til mikils að vinna en vinningar að þessu sinni eru 15.000 kr gjafabréf á Matarkjallarann, 2 miðar á Improv Ísland, 2 rútur af Thule, fæðubótarefni frá Ingling og gjafabréf í partípílu á Bullseye.
    Fresturinn til að gera breytingar rennur út föstudaginn 23. október kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich - Nottingham Forest kl 19:00 sama dag.
    1 hr 29 min
  • Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla
    Innkastið eftir næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson.
    Farið er yfir liðna umferð og spáð í spilin fyrir komandi umferð. Þá er sérstakt lokahóf þar sem opinberað er val á liði ársins og bestu mönnum.
    1 hr 23 min
  • Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð
    Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna eftir sigur á Stjörnunni í kvöld, en FH tapaði gegn Þrótti á heimavelli í gær.
    Blikar hafa núna orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð, virkilega vel gert hjá Kópavogsfélaginu.
    Í Uppbótaratímanum fóru Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört yfir leikina í síðustu umferð Bestu deildar kvenna, Íslandsmeistaratitil Blika, íslenska landsliðið og rústið gegn Króatíu og svo slúður.
    0 min
  • Enski boltinn - Best rekna félagið í deildinni?
    Enski boltinn hlaðvarpið með breyttu og fersku sniði á sunnudegi.
    Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir helstu sögulínur í enska boltanum.
    Lisandro Martinez málið, sóknarmenn Liverpool skiluðu, Manchester City vinnur alla leiki þó það sé skuggi þar yfir, Brighton er fáránlega skemmtilegt lið og Fulham vann lífsnauðsynlegan sigur.
    Í lok þáttarins var þá farið í skemmtilegan leik.
    1 hr
  • Útvarpsþátturinn - Spurningar í Bestu og enska hringborðið
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Fyrri hluti þáttarins fer í íslenska boltann, og spurningar fyrir lið Bestu deildarinnar. Valur Páll og Haraldur Örn á völlunum. Þá er rætt um agavandamál íslenska landsliðsins.
    Enska hringborðið er dregið fram seinni hlutann og gamall vinur þáttarins mætir í heimsókn, Kristján Atli Ragnarsson fer yfir stóru málin í enska boltanum.
    0 min
  • 38 umferðir - Er of seint að kaupa De Cuyper?
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð.
    Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag.
    1 hr 13 min
  • Enski boltinn - City á toppnum í storminum og hiti á Carrick
    Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé.
    Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni.
    Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess að hafa verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í landsleikjahléinu. City er á toppnum en það veit enginn hvað gerist í framhaldinu.
    Það er mikill hiti á Michael Carrick eftir 1-1 jafntefli Manchester United og Tottenham, Jordan Henderson blés til sýningar hjá Chelsea og Arsenal vann endurkomusigur á sprækum Leedsurum. Farið var yfir allt þetta helsta.
    Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Arnór Gauti Ragnarsson eru í þættinum.
    0 min