Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið.
    Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um sínar pælingar varðandi umræðuna um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar.
    Þá mætir Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðsins, en liðið er einu einvígi gegn Grikklandi frá því að komast á EM.
    1 hr 49 min
  • Gummi Torfa fer yfir allt sviðið fyrir stórleikinn
    Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár.
    Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Guðmundur Torfason, meðlimur í 19 marka klúbbnum, er formaður fótboltadeildar Fram.
    Gummi mætti á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi við Sæbjörn Steinke í tilefni af stórleik Fram og KR sem fram fer annað kvöld og góðu tímabili Framara.
    49 min
  • Íslandsmeistarar fara yfir tímabilið
    Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings.
    Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar og urðu þar með fyrsta liðið í tæpan áratug sem tekst að verja titilinn.
    Meðal umræðuefna var árangurinn í deildinni, rígurinn gegn KR og Evrópa.
    0 min
  • 38 umferðir - Wildcard og vítamín
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð.
    Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.
    1 hr 30 min
  • Innkastið - Ósáttir en ósigraðir
    Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni.
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri.
    Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í riðli sínum og Besta deildin hefst loks að nýju eftir endalausan landsleikjaglugga.
    54 min
  • Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?
    Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar.
    Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt.
    Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin að við fáum úrslitaleik í lokaumferðinni.
    Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir þetta allt saman.
    54 min
  • Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur
    Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum.
    Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð og hitað upp fyrir leik gegn Búlgaríu.
    Þá er farið yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum; mögulegar breytingar á Bestu deildinni, U21 landsliðið, mál Manchester City og fýluna í Ronaldo.
    Á línunni: Börkur Edvardsson og Benedikt Bóas Hinriksson.
    1 hr 45 min
  • Hvað verður um Man City?
    Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom í hljóðver og ræddi við Kára Snorrason um stóra Manchester City-málið.
    Farið var yfir brotin, mögulegar refsingar, áfrýjunina og hvað gæti tekið við.
    34 min
  • Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin
    Það er komið að Uppbótartímanum eftir 20. umferð Bestu deild kvenna.
    Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll komu sér fyrir í Coke stúdíóinu ásamt Herði Bjarnari Hallmarssyni, þjálfara Hauka, og fóru yfir umferðina.
    Valur og Víkingur gerðu jafntefli og eru fyrir lokaumferðina í fallsætum. Þór/KA getur líka mögulega fallið.
    Á hinum enda töflunnar missteig FH sig og Breiðablik er með pálmann í höndunum. Þá skoraði hin 16 ára gamla Bríet Fjóla Bjarnadóttir þrennu í sigri Þróttar gegn Stjörnunni.
    Í lok þáttarins var aðeins snert á landsliðinu og Lengjudeildinni.
    1 hr 2 min