Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Maggi.net og martröð Man City
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, er sérstakur gestur þáttarins en liðið vann Lengjudeildina og komst í bikarúrslit á tímabilinu.
    Í seinni hluta þáttarins ræðir fjármálasérfræðingurinn Sævar Þór Sveinsson, ritstjóri Utan vallar, um brot Manchester City og Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net, skoðar fréttir frá vikunni og Þjóðadeildina þar sem Ísland hefur leik gegn Eistlandi.
    1 hr 39 min
  • Harkið - Uppgjörsþáttur úr 2 deild
    Harkið tók góða yfirferð á 2 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins
    Gestir þáttarins voru Frosti Brynjólfsson leikmaður Selfoss og Ólafur Darri Sigurjónsson leikmaður Hauka
    Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Harkið er í góðu samstarfi með Serrano, Macron. og Ab sportvörum.
    2 hr 9 min
  • 38 umferðir - Er Thierno Barry næsti Thierry Henry?
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu.
    Fresturinn til að gera breytingar fyrir næstu umferð er laugardaginn 10. október kl. 12:30 en þeir félagar munu taka upp annan þátt þegar nær dregur og leggja spilin á borðið fyrir þá umferðina.
    0 min
  • Enski boltinn - Leeds gegn Víkingi á næsta tímabili?
    Það er góður andi yfir Leeds þessa dagana en liðið hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
    Agnar Þór Hilmarsson og Árni Þór Birgisson, stuðningsmenn Leeds, mættu í Coke stúdíóið í dag og fóru yfir stöðuna hjá sínum mönnum.
    Leeds er enn taplaust fyrir landsleikjahléið langa og ekki er hægt að útiloka að liðið blandi sér í baráttuna um Evrópukeppni á þessu tímabili.
    Einnig var farið yfir úrslitin síðustu helgi og stöðuna í ensku úrvalsdeildinni núna þriggja vikna pása er framundan.
    55 min
  • Uppbótartíminn - Geggjuð vegferð, biluð barátta og stórar landsliðsfréttir
    Það er nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um íslenskan kvennabolta, að þessu sinni.
    Þróttur varð bikarmeistari á dögunum, fyrsti stóri tillinn í sögu félagsins. Þróttur hefur verið á mikilli vegferð síðustu árin og þetta var toppurinn á henni, allavega hingað til.
    Nokkrar áhugaverðar fréttir voru til umræðu í þættinum og svo var rætt um bilaða Bestu deild þar sem gríðarlega spenna er á botni og toppi deildarinnar. Þá var snert á landsliðinu í lokin þar sem stórar fréttir hafa borist að undanförnu.
    Guðmundur Aðalsteinn og Snæbjört Pálsdóttir stýra þættinum.
    1 hr 7 min
  • Harkið - Uppgjörsþáttur úr 3 deild
    Harkið tók góða yfirferð á 3 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins
    Gestir þáttarins voru Hafþór Bjarki Guðmundsson leikmaður KH og Nadir Simon Moukhliss leikmaður Víðis.
    Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Harkið er í góðu samstarfi með Serrano, Macron. og Ab sportvörum.
    1 hr 49 min
  • Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi
    Sérstök útgáfa af Innkastinu þar sem Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Þróttar og leikmaður ársins í Lengjudeildinni, er sérstakur gestur.
    Rætt er um sigur Þróttar í 100 milljóna leiknum, lið ársins í Lengjudeildinni, ríginn rosalega milli KR og Víkings, sunnudagsleikina í Bestu og fleira.
    Umsjón: Elvar Geir og Valur Gunnars.
    1 hr 1 min
  • Innkastið - Skortur á reisn
    Innkastið eftir lúxus laugardag. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.Víkingur varð meistari á Meistaravöllum. Það voru læti.Bestu liðin komust upp í Bestu deildina. Til hamingju Þróttur.KA rúllaði yfir Þór í seinni hálfleik.
    1 hr 8 min
  • Útvarpsþátturinn - 100 milljónir í rúllettu
    Þátturinn er frumfluttur á föstudegi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir rosalega fótboltahelgi.
    Víkingur getur orðið meistari á Meistaravöllum, það verður barist upp á líf og dauða í Akureyrarslag og þá tilkynnti Arnar Gunnlaugsson landsliðshóp og lagði starfið að veði á fréttamannafundi fyrir Þjóðadeildina.
    Þróttur og Fylkir mætast í 100 milljóna króna leiknum. Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar og Kári Sigfússon leikmaður Fylkis eru í viðtölum.
    Á Michael Carrick framtíð sem stjóri Manchester United?
    1 hr 26 min
  • 38 umferðir - Pascal engan undra hversu góður Gross er í fantasy
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.
    Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 365 stigum eftir 4 umferðir.
    Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 5 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Brentford - Chelsea kl 19:00 síðar sama dag.
    1 hr 15 min