Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina.
    Lokaumferðir eru framundan um helgina, síðasta umferð fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar og svo ræðst hvaða lið fellur með Ægi úr Lengjudeildinni.
    Í lok þáttar er sumarglugginn í ensku úrvalsdeildinni skoðaður með Kára Snorrasyni, fréttamanni Fótbolta.net.
    1 hr 32 min
  • Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál
    Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna.
    Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg.
    Þá var rætt um stórt kærumál sem getur haft mikil áhrif á framhaldið í Bestu deildinni.
    Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
    51 min
  • 38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.
    Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 216 stigum eftir 2 umferðir.
    Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich og Liverpool kl 19:00 á föstudagskvöld.
    1 hr 25 min
  • Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað
    Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City.
    Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir tímabil var þeim spáð 20. sæti í flestöllum spám.
    Guðmundur Aðalsteinn fékk því Friðleif Friðleifsson, mikinn Hull stuðningsmann, í heimsókn í Coke stúdíóið í kvöld. Haraldur Örn Haraldsson fór einnig yfir sterka byrjun Xabi Alonso hjá Chelsea.
    Félagaskiptaglugginn lokaði þá í kvöld og var farið yfir allt það helsta sem gerðist í lok þáttarins.
    Þátturinn er í boði Nova.
    1 hr
  • Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu
    Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti.
    Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað er síðan farið yfir allar helstu sögulínur í kringum hina leiki umferðarinnar.
    1 hr 14 min
  • Harkið - Hiti í 3. deildinni
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum.
    Uppgjör 3.deild: 07:14
    Uppgjör 2.deild:44:48
    Spá: 01:29:00
    Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron.
    Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    1 hr 39 min
  • Útvarpsþátturinn - Helgin er svo lengi að líða
    Elvar Geir og Benedikt Bóas eru í hljóðveri í þætti dagsins og með þeim er Valur Páll íþróttafréttamaður á Sýn.
    Hitað verður sérstaklega upp fyrir komandi stórleik í Bestu deildinni, viðureign KR og Víkings á þriðjudag. Aðrir leikir í Bestu deildinni, Lengjudeildin, Infantino og enski boltinn koma svo auðvitað líka við sögu.
    1 hr 47 min
  • 38 umferðir - Chelsea kom, Joao og sigraði
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.
    Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í fyrstu umferð náði sér í 102 stig hvorki meira né minna.
    Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 2 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Crystal Palace og Manchester City kl 19:00 á föstudagskvöld.
    0 min
  • Enski boltinn - Martraðarbyrjun Man Utd og hver stoppar Arsenal?
    Enska úrvalsdeildin hófst um helgina með látum en fyrstu umferðinni lauk í gærkvöldi.
    Manchester United og Tottenham fengu martraðarbyrjun, Arsenal lita illviðráðanlega út og það var baulað á Alexander Isak í endurkomunni á St James' Park. Er Chelsea kannski liðið sem mun veita Arsenal mesta samkeppni?
    Guðmundur Aðalsteinn fékk Eið Orra Ragnarsson og Þorlák Breka Baxter, leikmenn Keflavíkur, í spjall í Coke stúdíóinu um fyrstu umferðina og var farið yfir allt það helsta.
    0 min