Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Það á að vera gaman að horfa á Liverpool
    Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst næstkomandi föstudag.
    Liverpool tók þá ákvörðun eftir síðasta tímabil að reka Arne Slot og ráða Andoni Iraola og núna hefst áhugaverður kafli hjá félaginu.
    Það á að vera skemmtilegt að horfa á Liverpool en það var ekki raunin að mestu leyti undir stjórn Slot. Stuðningsmenn vonast til að það verði breyting á því undir stjórn Iraola.
    Kristján Atli Ragnarsson og Baldvin Már Borgarsson, stuðningsmenn Liverpool, mættu í Coke stúdíóið í spjall til að fara yfir stöðuna hjá félaginu sínu núna þegar stutt er í tímabil.
    52 min
  • Harkið - VÖK sýningin
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í sautjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum.
    Uppgjör 3. deild: 07:30
    Uppgjör 2. deild: 42:58
    Spá: 01:27:52
    Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    1 hr 36 min
  • 38 umferðir - Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag
    Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.
    Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á samfélagsskildinum, helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast þar þangað til fresturinn til að gera breytingar rennur út kl 17:30 á föstudag.
    Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov
    1 hr 27 min
  • Innkastið - Rokk og ról í Vesturbæ
    Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Maggi Hödd, Magnús Haukur Harðarson.
    Sex marka jafntefli á fullum Meistaravöllum, Víkingar stöðvuðu göngu FH, Fram vann Stjörnuna, KA og Valur gerðu átta marka jafntefli, ÍA vann í Eyjum og Þór tapaði fyrir vængbrotnu Keflavíkurliði.
    1 hr 12 min
  • Útvarpsþátturinn - Gluggadómar, fyrirliðinn í Krikanum og enski að byrja
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Skoðað er hvaða félög gerðu bestu hlutina í sumarglugganum, hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni, rætt um Evrópuleiki Víkings og Vals og Lengjudeildin skoðuð.
    Í seinni hluta þáttarins er Ísak Óli Ólafsson fyrirliði FH á línunni og Daníel Geir Moritz ræðir um enska boltann sem er að rúlla af stað.
    0 min
  • Enski boltinn - Næsta skref hjá Aston Villa eftir Evróputitilinn
    Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju.
    Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót.
    Þeir Jón Haukur Baldvinsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson komu í Coke stúdíóið til að ræða um sitt uppáhalds félag, Aston Villa.
    Aston Villa vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð og fer núna aftur inn í Meistaradeildina. Unai Emery er heldur betur búinn að gera magnaða hluti fyrir félagið.
    35 min
  • Harkið - Slagsmál í Mosó
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í sextándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum.
    uppgjör 3.deild: 11:17
    uppgjör 2.deild: 44:06
    Spá:01:28:28
    Gatorade bikarinn: 01:33:52
    Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron.
    Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    0 min
  • 38 umferðir: Nýtt hlaðvarp fotbolta.net um draumaliðsleik enska boltans
    38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag.
    Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá því sem gerðist í þeirri síðustu og leggja línurnar fyrir þá næstu.
    53 min
  • Enski boltinn - Chelsea fór úr mesta lúðanum í mesta töffarann
    Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju.
    Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót.
    Í dag er komið að því að heyra frá stuðningsmönnum Chelsea, þeim Stefáni Marteini og Haraldi Erni. Þeir mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir stöðu mála.
    Xabi Alonso er tekinn við stjórnartaumunum og það er talsverð breyting frá Liam Rosenior. Chelsea er að koma úr hræðilegu tímabili og núna þurfa menn á Stamford Bridge að gera betur.
    0 min
  • 38 umferðir - Yfirferð yfir öll 20 liðin í deildinni og skoðum liðsuppstillingar með og án Haaland
    Annar þátturinn af 38 umferðum er kominn út en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.
    Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið án Haaland.
    Einnig tilkynntu félagarnir um gjafaleik sem er að fara af stað á Instagram og Tiktok miðlum 38 umferða. Glæsilegir vinningar frá Happatreyjum, Thule, Bullseye og Matarkjallaranum.
    0 min