Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Uppbótartíminn - Þú varst ekkert að spá þessu
    Síðustu leikir í dag Bestu deild kvenna hafa heldur betur verið óútreiknanlegir margir.
    Tvö efstu liðin töpuðu og tvö neðstu liðin unnu bæði. Hvað er eiginlega að gerast í þessari deild?
    Núna eru bara tvær umferðir eftir fram að skiptingu og verður mjög áhugavert að sjá hvernig deildin þróast.
    Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli og Snæbjörtu og fór yfir síðustu leiki ásamt því að ræða aðeins um spennuna sem er í gangi í Lengjudeildinni.
    0 min
  • Harkið - Haukar verða alltaf bestir
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í nítjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum.
    Uppgjör 3.deild:10:00
    Uppgjör 2.deild:41:36
    Spá:01:18
    Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron.
    Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    1 hr 28 min
  • Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi í þjálfaramálum og kraftur í Keflavík
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 22. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Rætt er um stóru fréttirnar í Bestu deildinni. Eiður Smári er tekinn við KA og Stjarnan rak aftur þjálfarann sinn.
    Jónas Guðni Sævarsson yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík er á línunni. Næsta umferð í Bestu er skoðuð og Manchester United tapaði gegn Hull í ensku úrvalsdeildinni.
    0 min
  • Enski boltinn - Arsenal er langlíklegasta liðið
    Arsenal varð Englandsmeistari á síðasta tímabili eftir 22 ára bið. Núna, fyrir komandi keppnistímabil, er Arsenal langlíklegasta liðið til að vinna ensku úrvalsdeildina.
    El Jóhann og Engilbert Aron, stuðningsmenn Arsenal, mættu í spjall í Coke stúdíóið á dögunum og fóru yfir allt það helsta hjá Englandsmeisturunum.
    Fyrsti leikur í ensku úrvalsdeildinni er í kvöld þegar Arsenal tekur á móti Coventry.
    49 min
  • Harkið - Sjóðheitir Sindra menn
    Harkið fór yfir stærstu atvikin í átjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum.
    Uppgjör 3.deild: 07:52
    Uppgjör 2.deild:40:30
    Spá:01:19:15
    Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron.
    Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
    1 hr 27 min
  • Enski boltinn - Ætla að horfa saman á næsta úrslitaleik Tottenham
    Það eru áhugaverðir tímar hjá Tottenham þessa stundina. Eftir tvö mjög erfið tímabil, þá er búið að leggja mikið í leikmannahópinn fyrir komandi tímabil.
    Roberto De Zerbi er á leið inn í sitt fyrsta heila tímabil sem stjóri liðsins og hann ætlar sér stóra hluti.
    Spurs var hársbreidd frá falli á síðustu leiktíð, en hvað gera þeir núna?
    Bogi Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir allt það helsta hjá Spurs.
    0 min
  • Enski boltinn - Miklar breytingar hjá Newcastle
    Upphitunin heldur áfram fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn.
    Núna fáum við að vita meira um stöðuna hjá Newcastle en þar hefur mikið gengið á í sumar.
    Jón Júlíus Karlsson og Ellert Ingi Hafsteinsson, stuðningsmenn Newcastle, komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og spjölluðu um sitt félag.
    Þess má geta að Newcastle klúbburinn á Íslandi er með aðalfund sinn 23. ágúst næstkomandi. Hægt er að skrá sig í klúbbinn hérna.
    0 min
  • Uppbótartíminn - Breiðablik rústaði toppslagnum
    Það var aldrei spurning í toppslagnum í Bestu deild kvenna þar sem Breiðablik fór í Kaplakrika og vann þar þægilegan sigur.
    FH var sigurstranglegra liðið fyrir leikinn en Blikarnir gerðu ótrúlega vel og eru núna með þriggja stiga forystu á toppnum.
    Rætt var ítarlega um þennan stórleik í Uppbótartímanum í dag. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Coke stúdíóinu með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjörtu Pálsdóttur.
    Þau fóru yfir þennan stórleik ásamt síðustu leikjum og helstu sögulínum.
    Þátturinn er í boði Coke og Atlantsolíu.
    56 min