Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Hugarburðarbolti GW 35 Cole Palmer svaf í 110 daga!
    Cole Palmer vaknaði loksins eftir 110 daga.
    Liverpool og Arsenal töpuðu bæði sínum leikjum. Aston Villa ætla sér meistaradeildar sæti. Nottingham Forest sitja í sjötta sætinu og Brighton og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli á Amex. Baráttan um meistaradeildar sætin verður rosaleg!
    1 hr 6 min
  • Betkastið - Upphitun 2 & 3.deild
    Ástríða neðri deildanna hefur loksins snúið aftur í hlaðvarpsheima. Stóra spáin sem allir hafa beðið eftir! Alli Davors, Aron Ýmir og JP mættu ræddu stóru málin.
    - 2. deildar spá
    - 3. deildar spá
    - Öll lið rætt, ásamt félagsskiptum, þjálförum og umgjörð
    - Spurningar úr sal
    - Rýnum í 1. umferð
    - Spáum í 2. umferð
    - Hvernig fer Champions League?
    0 min
  • Innkastið - Markaregn og málaliðar
    Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar.
    Elvar Geir, Baldvin Borgars og með þeim er íþróttafréttamaðurinn og KR-ingurinn Valur Páll Eiríksson.
    Það er ekkert samhengi í Bestu deildinni! Leikurinn í Kópavogi stóð undir væntingum, Afturelding fór illa með Stjörnuna, Gylfi skoraði í sigri Víkings, FH vann fyrsta sigurinn gegn málaliðum Vals, KA í vandræðum og Vestramenn hylltir í Herjólfi.
    1 hr 12 min
  • Leiðin úr Lengjunni - Fyrsta umferð gerð upp
    Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Adda Baldursdóttir
    Ágerður Stefanía, eða Adda eins og hún er oft kölluð, er alinn upp í Breiðabliki en er í dag goðsögn í Stjörnunni og Val, þar sem hún raðaði inn Íslands- og bikarmeistaratitlum. Þegar leikferlinum lauk hélt hún strax áfram að móta sigurlið – nú í þjálfarateymi með Pétri Péturssyni.Í þessum þætti förum við yfir magnaðan feril, hvernig sigurhugarfar mótast, hvað þarf til að byggja upp sigursælt lið og hvernig maður vinnur með mótlæti á leiðinni.Turnarnir eru í boði fiskverslunarinnar Hafsins, Lengjunnar, World Class, Golflklúbbsins Keilis og hins Tékkneska Budvar!Njóttu vel!
    1 hr 8 min
  • Útvarpsþátturinn - Lengjan hafin og Björn Hlynur naut sín í Liverpool
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. maí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir.
    Baldvin Már Borgarsson ræddi um Lengjudeildina og rennt er yfir komandi umferð og helstu tíðindi í Bestu deildinni.
    Gestur þáttarins er Björn Hlynur Haraldsson sem var í Liverpoolborg um síðustu helgi þegar titillinn var tryggður.
    1 hr 36 min
  • Uppbótartíminn - Íslenski kvennaboltinn á mannamáli
    Uppbótartíminn er nýtt hlaðvarp á Fótbolta.net þar sem fjallað er um kvennaboltann á Íslandi.
    Umsjónarmenn eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnús Haukur Harðarson.
    Í þessum þætti er farið yfir stöðu liða eftir fyrstu þrjár umferðirnar í Bestu deild kvenna og einnig er farið aðeins yfir neðri deildir sem eru að fara af stað.
    Hertz er stoltur stuðningsaðili kvennaboltans á Fótbolta.net.
    1 hr 6 min
  • Tveggja Turna Tal - Agla María Albertsdóttir
    Gestur dagsins er Agla María Albertsdóttir, barnastjarna úr Kópavoginum! Agla María hefur spilað á tveimur stórmótum með íslenska landsliðinu, unnið Íslands- og bikarmeistaratitla með bæði Stjörnunni og Breiðabliki og leikið sem atvinnumaður í Svíþjóð. Hún er í dag fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks – og útskrifaðist aðeins 24 ára gömul með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja.Góða skemmtun!
    0 min
  • Innkastið - Enginn skilaréttur!
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór gera upp 4. umferð Bestu deildarinnar í Innkastinu.
    Jafntefli á Hlíðarenda, Framarar grýttu Eldingunni aftur niður á jörðina, Eyjamenn á siglingu, skemmtikraftarnir í KR fóru á kostum, útlitið svart hjá FH og aftur kom Höskuldur Blikum til bjargar.
    1 hr 8 min