Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Leiðin úr Lengjunni - Upphitun fyrir Lengjudeildina 2025
    Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.
    0 min
  • Niðurtalningin - Verður skjöldurinn áfram í Kópavogi?
    Breiðabliki er spáð Íslandsmeistaratitlinum en Besta deild kvenna byrjar að rúlla í kvöld. Breiðablik tekur á móti Stjörnunni í fyrsta leik.
    Agla María Albertsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir, leikmenn Blika, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna hjá Blikum.
    40 min
  • Niðurtalningin - Breyttir tímar á Hlíðarenda
    Besta deild kvenna fer af stað í kvöld með tveimur leikjum. Í öðru sæti í spánni er Valur.
    Til þess að ræða um Valsliðið, þá komu Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði, og Matthías Guðmundsson, þjálfari, í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net.
    41 min
  • Innkastið - Fyrirliðinn missir hausinn og meistarar hrynja
    Innkastið eftir 2. umferð Bestu deildarinnar. Leikirnir voru svo sannarlega misskemmtilegir í þessari umferð!
    Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Magnús Haukur Harðarson.
    Geggjuð skemmtun í Laugardal, ótrúlegur leikur í Úlfarsárdalnum, Stjarnan með fullt hús, markalaus nýliðaslagur, FH-ingar í vandræðum og bikarmeistararnir fengu skell.
    1 hr 25 min
  • Niðurtalningin - Víkingur með háleit markmið
    Það er aðeins einn dagur í það að Besta deild kvenna fari af stað; fyrstu tveir leikirnir eru á morgun. Við höldum áfram að telja niður en í þriðja sæti í spánni er Víkingur.
    Selma Dögg Björgvinsdóttir og Erna Guðrún Magnúsdóttir, leikmenn liðsins, komu í heimsókn í dag og fóru yfir stöðu mála í Víkinni.
    42 min
  • Tveggja Turna Tal - Gunnar Jarl Jónsson
    Gestur vikunnar er Gunnar Jarl Jónsson – sannkallaður þúsundþjalasmiður!Gunnar spilaði í næstefstu deild en áttaði sig snemma á því að hann átti bjartari framtíð sem dómari. Þar hafði hann heldur betur rétt fyrir sér: hann var valinn dómari ársins sex sinnum á aðeins átta árum.En sagan endar ekki þar. Gunnar hefur þjálfað fótbolta, stofnað útvarpsþátt á Fotbolti.net fyrir löngu síðan, starfað sem kennari, verið lögga, alið upp fimm börn og – að ógleymdu – gert sjónvarpsþáttinn Atvinnumennirnir okkar sem lokaverkefni í Kennaraháskólanum. Bara það er magnaður árangur!Við fórum yfir þetta allt saman – og miklu meira – í þessu kraftmikla og skemmtilega spjalli.Njótið þáttarins!
    2 hr 1 min
  • Útvarpsþátturinn - Nýr formaður KR og meðbyrinn í Vesturbænum
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Hitað er upp fyrir 2. umferð Bestu deildarinnar og rennt yfir helstu fréttir og tíðindi. Marklínutækni, tveggja leikja bann Arons Sig og meiðsli Arons Þrándar er meðal þess sem kemur við sögu.
    Í seinni hlutanum er svo Magnús Orri Schram, nýr formaður knattspyrnudeildar KR, í viðtali. Rætt er um KR-liðið, aðstöðumál, fortíð og framtíð.
    1 hr 43 min
  • Niðurtalningin - Það er frábært að vera fyrir norðan
    Það eru fimm dagar í það að Besta deild kvenna fari af stað og við höldum áfram með Niðurtalninguna. Í fimmta sæti í spánni er Þór/KA.
    Sandra María Jessen, besti leikmaður Íslandsmótsins í fyrra, og Karen María Sigurgeirsdóttir, sem átti einnig mjög gott tímabil í fyrra, eru fulltrúar Þórs/KA í Niðurtalningunni.
    29 min
  • Niðurtalningin - Stjarnan ætlar að skína skært í sumar
    Við höldum áfram að telja niður í Bestu deild kvenna. Núna eru aðeins fimm dagar í það að deildin fari af stað. Stjörnunni er spáð sjötta sæti deildarinnar.
    Anna María Baldursdóttir, fyrirliði, og Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari liðsins, komu í heimsókn til að ræða um Stjörnuna.
    28 min