Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Niðurtalningin - FH ætlar hærra en þetta
    Við höldum áfram með Niðurtalninguna þegar það eru sex dagar í að Besta deild kvenna fari af stað. Í sjöunda sæti í spánni er FH.
    Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH, og Guðni Eiríksson, þjálfari liðsins, komu í heimsókn og ræddu um Fimleikafélagið. Þau stefna á stærri hluti en sjöunda sætið.
    32 min
  • Frábær þrenna, tvö stig og einn rosalega skrítinn leikur
    Íslenska kvennalandsliðið tók tvö stig í leikjum sínum gegn Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni. Stelpurnar fara í eiginlegan úrslitaleik við Noreg um annað sætið í riðlinum í næsta mánuði.
    Það var margt jákvætt í þessum tveimur leikjum en líka heilmargt sem hefði mátt fara betur.
    Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Sverrir Örn fóru yfir það helsta þegar Ísland á núna þrjá leiki fram að Evrópumóti.
    52 min
  • Niðurtalningin - Framarar með fulla skúffu af trixum
    Niðurtalningin heldur áfram. Það eru sex dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni en Fram er spáð áttunda sæti deildarinnar.
    Fram er að koma upp sem nýliðar en þær halda sér uppi ef spáin rætist. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, og Alda Ólafsdóttir, leikmaður liðsins, komu í heimsókn og tóku stöðuna fyrir komandi sumar.
    39 min
  • Hugarburðarbolti GW 31 Eru Liverpool sprungnir ?
    Fulham skellti toppliði Liverpool 3-2 á Craven Cottage. Man Utd og Man City skildu jöfn í borgarslagnum. Arsenal missteig sig í Guttagarði. West Ham og Bournemouth skildu jöfn 2-2 í skemmtilegum leik. Aston Villa skellti sterkum Notthingham Forest piltum á Villa Park og Jacob Murphy svarthvíta hetja Newcastle gegn Leicester.
    0 min
  • Niðurtalningin - Austurland á fulltrúa í fyrsta sinn síðan 1994
    Niðurtalningin fyrir Bestu deild kvenna er hafin. Það er vika í fyrsta leik í deildinni en núna er komið að því að ræða FHL sem er fulltrúi Austurlands í deildinni.
    Rósey Björgvinsdóttir og Bjarndís Diljá Birgisdóttir, leikmenn FHL, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu uppgang félagsins síðustu ár og komandi sumar í Bestu deildinni.
    0 min
  • Niðurtalningin - Staðan tekin á Stólunum á Spáni
    Núna byrjum við Niðurtalninguna fyrir Bestu deild kvenna. Það er akkúrat vika í það að mótið fari af stað en í neðsta sæti í spánni er Tindastóll.
    Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði, og Donni, þjálfari, ræddu við fréttamann Fótbolta.net um síðustu ár og komandi keppnistímabil á Sauðárkróki.
    Þau eru núna í æfingaferð en hringt var til Spánar til að taka stöðuna fyrir komandi tímabil.
    26 min
  • Útvarpsþátturinn - Í beinni á leikdegi í Bestu
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 5. apríl.
    Besta deildin að fara í gang. Rýnt er í spá Fótbolta.net fyrir lokastöðu deildarinnar, leikir fyrstu umferðar skoðaðir, farið yfir helstu fréttir, bestu leikmenn undirbúningstímabilsins valdir og rennt yfir ýmsa topplista.
    Tómas Þór, Elvar Geir, Valur Gunnars og Benedikt Bóas í beinni frá Suðurlandsbrautinni.
    1 hr 48 min
  • Hugarburðarbolti GW 30 Salah í dvala
    Liverpool vann borgarslaginn. Notthingham Forest skelltu Man Utd.
    Newcastle á góðri siglingu. Ipswich lagði Bournemouth á útivelli. Saka stimplaði sig strax inn eftir meiðsli hjá Arsenal. Aston Villa með gæðasigur á Brighton og Dýrlingarnir náðu í stig gegn Palace.
    1 hr 13 min
  • Enski boltinn - Ein ljótasta tækling sem maður hefur séð
    Liverpool er svo gott sem orðið meistari en dómgæslan stal senunni þegar nágrannaliðin Liverpool og Everton áttust við á Anfield.
    Það var heil umferð í ensku úrvalsdeildinni og mættu þeir Magnús Haukur Harðarson og Kristján Atli Ragnarsson í stúdíó til þess að ræða um allt það helsta.
    Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir þættinum.
    49 min