Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Niðurtalningin - Blikar ætla áfram að vera bestir
    Þá er komið að síðasta liðinu í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Það er Breiðablik sem er spáð Íslandsmeistaratilinum.
    Félagarnir Eysteinn Þorri Björgvinsson og Sigurjón Jónsson komu við á skrifstofunni til að ræða um ríkjandi Íslandsmeistara.
    43 min
  • Niðurtalningin - Nýr kafli í sögu Víkinga
    Það eru aðeins tveir dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Víkingum er spáð öðru sæti deildarinnar af Fótbolta.net.
    Halldór Smári Sigurðsson og Tómas Guðmundsson, fyrrum leikmenn Víkinga, komu í heimsókn til að ræða um Fossvogsfélagið.
    50 min
  • Niðurtalningin - Valur geti alveg unnið Íslandsmeistaratitilinn
    Það eru þrír dagar í fyrstu leik í Bestu deildinni og við á Fótbolta.net höldum áfram að telja niður fyrir deildina. Í dag er komið að því að ræða Val sem er spáð þriðja sæti.
    Vinirnir Arnar Sveinn Geirsson og Jóhann Skúli Jónsson komu í heimsókn til að ræða Val. Mjög skemmtilegt spjall svo ekki sé meira sagt.
    42 min
  • Niðurtalningin - Eftirvænting fyrir Óskarsbolta á Meistaravöllum
    Það eru fjórir dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni og við höldum áfram að telja niður í deildina. Núna er komið að því að ræða KR sem er spáð fjórða sætinu.
    Snorri Sigurðsson, formaður KR klúbbsins, og Valur Páll Eiríksson, íþróttafréttamaður, komu í heimsókn til að ræða um Vesturbæjarstórveldið.
    37 min
  • Niðurtalningin - Silfurskeiðin mætir með læti
    Það eru fimm dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni og við höldum áfram að telja niður í deildina. Núna er komið að því að ræða Stjörnuna sem er spáð fimmta sætinu.
    Davíð Svavarsson og Eyjólfur Jónsson úr Silfurskeiðinni, stuðningsmannahóp Stjörnunnar, mættu í heimsókn á skrifstofuna og fóru yfir málin.
    43 min
  • Niðurtalningin - Frændurnir fara yfir allt það helsta á Skaganum
    Það eru fimm dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni og við höldum áfram að telja niður í deildina. Núna er komið að því að ræða ÍA sem er spáð sjötta sætinu. Skagamenn komu upp sem nýliðar í fyrra og áttu frábært tímabil.
    Frændurnir Andri Júlíusson og Sverrir Mar Smárason komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til þess að ræða um sitt félag.
    45 min
  • Tveggja Turna Tal - Danni og Jói Laxdal
    Gestir vikunnar eru Daníel og Jóhann Laxdalbræður. Við fórum yfir leikinn í Kaplakrika 2014, þar sem kemur í ljós að þeir þakka Allah fyrir að ekki var komið VAR í fótboltann á Íslandi. Við tókum líka fyrir tónlistarsmekkinn, Evrópukeppnina, atvinnumennsku og landsliðið ásamt því sem þeir sögðu frá þjálfurunum sem hafa þjálfað þá. Stórskemmtilegir náungar. 
    1 hr 53 min
  • Útvarpsþátturinn - A&B, vika í Bestu og Dóri Árna
    Útvarpsþátturinn laugardaginn 29. mars.
    Það er vika í að Besta deildin fer af stað og Gunnlaugur Jónsson mætir í þáttinn. Auk þess að hita upp fyrir komandi tímabil ræðir Gulli um þættina um Arnar og Bjarka sem eru að fara í sýningu.
    Þá kemur Halldór Árnason, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, en Blikar munu mæta Aftureldingu í opnunarleik Bestu deildarinnar 5. apríl.
    1 hr 45 min
  • Niðurtalningin - Er fólk að sofa á FH?
    Það eru átta dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að FH sem er spáð sjöunda sætinu í spá Fótbolta.net.
    Til þess að ræða FH, þá komu Freyr Árnason og Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmenn liðsins, í heimsókn á skrifstofuna. Var farið yfir gullaldarárin, síðustu tímabil og komandi sumar.
    47 min
  • Niðurtalningin - Bikarinn er á brekkunni
    Það eru átta dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að KA sem er spáð áttunda sætinu í spá Fótbolta.net.
    Til þess að ræða KA, þá komu Haraldur Örn Haraldsson og Egill Sigfússon, stuðningsmenn liðsins, í heimsókn á skrifstofuna. Var meðal annars vel farið yfir bikarmeistaratitilinn frá því í fyrra.
    38 min