Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá, Besta og landsliðið
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 15. mars. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir.
    Baldvin Borgarsson kemur með endurskoðaða ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina í sumar.
    Skoðaðar eru helstu fótboltafréttir vikunnar, Baldur Sigurðsson ræðir um Bestu deildina og lengsta undirbúningstímabilið og Sæbjörn Steinke ræðir um landsliðsvalið fyrir einvígið gegn Kósovó.
    1 hr 51 min
  • Arnar Gunnlaugs eftir sinn fyrsta hóp - Klárlega merki um nýja tíma
    Elvar Geir Magnússon ræddi við Arnar Gunnlaugsson á Laugardalsvelli strax eftir að Arnar hafði opinberað val á sínum fyrsta landsliðshóp.
    Það er kominn nýr fyrirliði í íslenska landsliðinu, Orri Steinn Óskarsson. Sveigjanleiki er orð sem verður áberandi í landsliðsþjálfaratíð Arnars.
    Arnar ræddi um valið, frammistöðu okkar fremstu leikmanna að undanförnu, leikina framundan gegn Kosóvó og fleira.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Ólafur Þ. Harðarson
    Ólafur Þ. Harðarson er stjórnmálafræðingur og prófessor emiritus við Háskóla Íslands. Við Ólafur ræddum Donald Trump, Gobbels og Mussolini en ennþá meira um fótboltamenn og annað íþróttafólk sem tekið hefur sæti á Alþingi Íslendinga. Af nægu er að taka og Ólafur er hafsjór fróðleiks!Þátturinn er í boði Visitor Ferðaskrifstofu, Lengjunnar, Hafsins fiskverslun, Budvar, World Class og Golfklúbbsins Keilis !
    2 hr 57 min
  • Enski boltinn - Forest, Bournemouth og Brighton í Meistaradeildina?
    Nottingham Forest sigraði Manchester City um helgina og eru í þriðja sæti deildarinnar þegar nákvæmlega tíu umferðir eru eftir af deildinni. Baráttan um Evrópusætin er gríðarlega spennandi, og möguleiki á því að mikið af stóru liðunum missi af.Magnús Haukur Harðarsson mætti eins og svo oft áður til þess að ræða liðna umferð í boltanum en einnig mætti Arnór Gauti Ragnarsson leikmaður Aftureldingar. Arnór er stuðningsmaður Southampton, og því aðeins farið meira yfir þeirra gengi á tímabilinu.Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að ofan og í öllum hlaðvarpsveitum.
    1 hr 15 min
  • Útvarpsþátturinn - 28 dagar í Bestu og enska hringborðið
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 8. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Það eru 28 dagar í Bestu deildina og farið er yfir helstu fréttir og viðbrögðin eftir ótímabæru spánna. Frammistaða Hákonar í Meistaradeildinni og komandi landsliðsval Arnars eru meðal umræðuefna.
    Kristján Atli, talsmaður Liverpool á Íslandi, sest við enska hringborðið og opinberar val á úrvalsliði annars þriðjungs. Skoðuð er staðan í deildinni miðað við spár og fjallað um Meistaradeildina.
    1 hr 43 min
  • Tveggja Turna Tal - Hermann Hreiðarsson
    Gestur vikunnar er enginn annnar en Hermann Hreiðarsson. Hermann er eini Íslendingurinn sem hefur unnið FA cup bikarinn og hefur spilað 332 leiki í Premier League á 15 árum í ensku deildinum. Í þessum fyrri hluta þáttarins fórum við yfir árin í Eyjum og í ensku úrvalsdeildinni. Við ræddum Harry Redknapp, Atla Eðvalds, Joe Royle, Alan Curbishley og fleiri góða menn. Njótið vel!Styrktaraðilar þáttarinns eru: Visitor FerðaskrifstofaHafið FiskverslunBudweiser BudvarWorld ClassLengjan
    1 hr 19 min
  • Hugarburðarbolti GW 28 Liverpool eru vel smurð vél sem hikstar ekki!
    Liverpool bera af í deildinni og eru að stinga af. Liðin í öðru og þriðja sæti gerðu markalaust jafntefli í Nottingham. Ismaïla Sarr og Mateta í stuði gegn Aston Villa á Selhurst Park. Rauða spjald Patrick Dorgu kom ekki að sök á Old Trafford. Rodrigo Muniz með sigurmarkið gegn Úlfunum á útivelli. Danny Welbeck hetja Brighton gegn Bournemouth. Lánleysi Cole Palmer heldur áfram en Chelsea liðið sigraði Southampton þægilega á brúnni.
    1 hr 29 min
  • Enski boltinn - Þetta er búið
    Skomina dómari getur flautað þetta mót af, Liverpool verður meistari og neðstu þrjú liðin falla. Það er að vísu talsverð spenna um síðustu þrjú Meistaradeildarsætin en að öðru leyti er allt ráðið.
    Sæbjörn Steinke fór yfir umferðina með Aksentije Milisic og var tekin góð umræða um flest öll liðin. Byrjað er á talsvert langri United umræðu en mikið er að á Old Trafford á þessum síðustu og verstu. Sóknarleikur Arsenal, viðsnúningur Everton og hendi á Haaland? Það og fleira er til umræðu í þættinum.
    Þá er einnig spáð er í spilin varðandi úrslitaleikinn í deildabikarnum og rætt um leikbann Arne Slot, svo eitthvað sé nefnt.
    1 hr 26 min