Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Svo gott sem komið hjá Liverpool
    Liverpool er komið með níu og hálfan fingur á enska meistaratitilinn. Það má í raun segja að þetta sé komið.
    Liverpool vann stórgóðan 0-2 sigur gegn Manchester City í gær á meðan Arsenal tapaði gegn West Ham á heimavelli deginum á undan. Meistaradeildarbaráttan er gríðarlega spennandi en fallbaráttan er minna spennandi.
    Bræðurnir Hinrik og Magnús Haukur Harðarsynir fara yfir málin í ensku úrvalsdeildinni að þessu sinni ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Eiður Ben Eiríksson
    Gestur vikunnar er Eiður Ben Eiríksson. Eiður er í þjálfarateymi Íslandsmeistara Breiðabliks og á nokkuð áhugaverðan feril að baki. Hann byrjaði mjög ungur að þjálfa og var orðinn þjálfari í efstu deild kvenna rétt rúmlega fermdur. Eiður hefur komið víða við og unnið með mörgu góðu fólki. Við ræddum þetta allt, fórum vítt yfir sviðið. Eiður er áhugaverður náungi. Hann segir frá því þegar Pétur Péturs skammaði hann eins og son sinn, hvenær hann vissi af Blikar yrðu meistarar, afhverju hann straujar nærbuxurnar sínar og svo fórum við í þyngri málefni.Njótið vel.
    3 hr 6 min
  • Útvarpsþátturinn - Gylfaginning og ársþingið
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í fyrri hlutanum er farið yfir fréttir vikunnar, dramatíkina alla í kringum skipti Gylfa yfir til Víkings og Evrópuleik Víkings gegn Panathinaikos.
    Í seinni hlutanum mætir Þórir Hákonarson, bæjarstjóri og sérfræðingur um fótboltapólitíkina, í tilefni af ársþingi KSÍ.
    1 hr 44 min
  • Ótímabæra spáin fyrir Bestu deild kvenna
    Það styttist í fótboltasumarið á Íslandi en Besta deild kvenna rúllar af stað þann 15. apríl næstkomandi.
    Endirinn á síðasta tímabili var svo sannarlega eftirminnilegur þar sem úrslitin réðust á hreinum úrslitaleik á Hlíðarenda. Áhorfendamet var sett þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari eftir markalaust jafntefli gegn Val.
    Nú þar sem það styttist í næsta mót þá ákváðu Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnús Haukur Harðarson að setja saman ótímabæra spá fyrir deildina miðað við stöðuna í dag þegar um tveir mánuðir eru í mót.
    Rætt var um öll lið deildarinnar og staðan tekin fyrir komandi sumar.
    0 min
  • Og allt í einu er Gylfi kominn í Víking
    Það voru risastór tíðindi í íslenskum fótbolta í dag þar sem Gylfi Þór Sigurðsson skipti frá Val í Víking. Kaupverðið er um 20 milljónir króna.
    Víkingur og Breiðablik lögðu fram tilboð í Gylfa sem voru samþykkt, en Víkingur hafði betur í baráttunni.
    Það myndaðist ákveðin drasmatík í kringum þessi skipti en formaður Vals hefur sakað Gylfa um vanvirðingu gagnvart liðsfélögum sínum og félaginu.
    Þessar fréttir auka spenninginn fyrir Bestu deildina sem hefst í byrjun apríl.
    Guðmundur Aðalsteinn, Valur Gunnarsson og Víkingurinn Tómas Guðmundsson fóru yfir þessar risastóru fréttir í stuttu hlaðvarpi í dag en hægt er að hlusta á það í spilaranum hér að ofan og í hlaðvarpsveitum.
    0 min
  • Enski boltinn - Er botninum náð?
    Manchester United situr í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Já, 15. sæti deildarinnar.
    United tapaði 1-0 gegn Tottenham núna um helgina í uppgjöri þeirra lið sem hafa ollið mestum vonbrigðum á tímabilinu. Er botninum náð eða verður þetta verra?
    Liverpool harkaði inn sigur gegn Wolves og Mikel Merino var hetja Arsenal gegn Leicester. Næstu leikir verða áhugaverðir í titilbaráttunni á milli þessara tveggja liða.
    Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri Björgvinsson fara yfir leiki helgarinnar ásamt Guðmundi Aðalsteini. Þeir ræða líka aðeins um stórtíðindi dagsins; að Gylfi Þór Sigurðsson sé farinn í Víking.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Guðjón Pétur Lýðsson
    Guðjón Pétur Lýðsson er einhver mestu do-er sem fyrir finnst á Íslandi. Hann er með öll járn heimsins i eldinum ásamt því að reka fjölskyldu og spila fótbolta.Guðjón Pétur hefur spilað með mörgum félögum á Íslandi, sumum oftar en tvisvar og hann nennir engu kjaftæði.Við fórum yfir víðan völl. Hver kenndi honum að sparka í bolta, afhverju varð atvinnumennskan ekki lengri, þjálfaradraumar og margt margt fleira.Njótið Vel!Styrktaraðilar þáttarins eru vinir okkar frá :Visitor Ferðaskrifstofa: www.visitor.isHafið Fiskverslun: www.hafid.isLengjan: lengjan.isBudweiser BudvarWorld Class: Worldclass.is
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Sögulegur sigur, Siggi Raggi og ungir leikmenn
    Tómas Þór og Benedikt Bóas sigla flaggskipinu á X977 þessa vikuna.
    Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal umræðuna um Gylfa. Sögulegur sigur Víkings gegn Panathinaikos í Helsinki er auðvitað gerður upp.
    Þá mætir Sigurður Ragnar Eyjólfsson og ræðir um stöðu ungra íslenskra leikmanna og notkun á þeim.
    1 hr 47 min