Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Hákon Arnar, þrot hjá Tottenham og umtalað rautt spjald
    Það er viðburðarrík helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni.
    Tottenham er í algjöru rugli, leikmaður Arsenal fékk eitt umtalaðasta rauða spjald síðari ára og Manchester City vann stórleik gegn Chelsea. Þá er Hákon Arnar Haraldsson orðaður við nokkur af stærstu félögum deildarinnar, þar á meðal Manchester United.
    Baldvin Már Borgarsson og Magnús Haukur Harðarson eru gestir í þessum þætti en Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir.
    57 min
  • Tveggja Turna Tal - Davíð Snorri Jónasson
    Davíð Snorri Jónasson er alinn upp í Fellahverfinu í Breiðholti. Hann er kennararmenntaður og hefur starfað sem slíkur ásamt því að hafa náð frábærum árangri sem knattspyrnuþjálfari. Davíð Snorri er í dag aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla en hefur einnig þjálfað 21 árs landslið Íslands, yngri landslið ásamt því í að hafa þjálfað hjá Leikni og Stjörnunni. Við fórum yfir feril Davíðs Snorra, hvernig maður býr til liðsheild, byggir upp sjálfstraust, lið og margt fleira. Davíð Snorri hefur einstaklega þægilega nærveru og vonandi skilar það sér til ykkar. Þátturinn er í boði Visitor, Lengjunnar, Hafsins Fiskverslunar, World Class og að sjálfsögðu Tékkneska ríkisins í gegn Budvar. Njótið kæru vinir!
    2 hr 38 min
  • Útvarpsþátturinn - Nýtt teymi í Víkinni, VV og KA skýrsla
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjónarmenn: Elvar Geir og Tómas.
    Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal nýja þjálfarateymið hjá Víkingi og gengi landsliðsmanna okkar.
    Valgeir Valgeirsson, nýr leikmaður Íslandsmeistarara Breiðabliks, er gestur þáttarins. Svo mætir Haraldur Örn og kynnir úrslit Fótboltanördans, skoðar gang mála hjá KA og skoðar erlendar fréttir ásamt Guðmundi Aðalsteini.
    1 hr 31 min
  • Hugarburðarbolti GW 22 Justin Kluivert með Dillon þrennu!
    Justin Kluivert með svakalega þrennu á St.James's Park gegn Newcastle. Darwin Nunez hetja Liverpool á móti Brentford. Foden er vaknaður! Aston Villa sótti stig á Emirates til Arsenal. Forest halda áfram að vinna leiki. Fulham og Crystal Palace með sterka útisigra og Man Utd tapar enn einum leiknum í deildinni.
    0 min
  • Beta um nýtt starf og tímann eftir Kristianstad
    Elísabet Gunnarsdóttir var í gær ráðin landsliðsþjálfari Belgíu eftir að hafa verið í smá fríi frá fótbolta. Hún skrifaði undir samning til sumarsins 2027.
    Belgía er í 19. sæti styrkleikalista FIFA (Ísland er í fjórtánda sæti) og verður eins og Ísland meðal þátttökuþjóða á EM í sumar. Belgía er með Portúgal, Ítalíu og Spáni í riðli.
    Beta, eins og hún er oftast kölluð, hefur verð án starfs síðan hún hætti sem þjálfari Kristianstad haustið 2023. Hún var sterklega orðuð við Aston Villa á Englandi í fyrra en ekkert varð úr því að hún tæki við liðinu. Þar á undan var hún orðuð við stórlið Chelsea og norska landsliðið.
    Beta er 48 ára og hefur á sínum ferli stýrt ÍBV, Val og Kristianstad. Hún var í fimmtán ár hjá Kristianstad og gerði mjög eftirtektarverða hluti með liðið.
    Í dag ræddi Beta við Fótbolta.net um nýja starfið og tímann eftir Kristianstad.
    23 min
  • Enski boltinn - Góð gen, Darwizzy og brotið sjónvarp á Old Trafford
    Liverpool jók forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar um helgina þar sem Arsenal missteig sig.
    Manchester United var skellt aftur á jörðina og Bournemouth sýndi magnaða frammistöðu gegn Newcastle. Þá skoraði Manchester City sex mörk á milli þess sem félagar verslar inn leikmenn.
    Þá er Tottenham í frjálsu falli og Ange Postecoglou er í veseni.
    Baldvin Már Borgarsson og Sölvi Haraldsson eru gestir í þessum þætti en Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir.
    1 hr 1 min
  • Útvarpsþátturinn - Arnar valinn til að leiða land og þjóð
    Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, er gestur í útvarpsþættinum þessa vikuna. Elvar Geir og Benedikt Bóas taka á móti Jörundi í hljóðveri.
    Þjálfaramál landsliðsins urðu endanlega ljós í vikunni þegar Arnar Gunnlaugsson var ráðinn landsliðsþjálfari. Rætt er við Jörund um ráðninguna og það sem framundan er hjá KSÍ.
    Þá er farið yfir fréttir vikunnar með Baldvini Borgars. Freyr skrifaði undir hjá Brann, Sölvi er að taka við Víkingi og það eru einhverjar hreyfingar á leikmannamarkaðnum hér heima.
    1 hr 51 min
  • Hugarburðarbolti GW 21 Arsenal setur pressu á Liverpool!
    Arsenal setur pressu á Liverpool. Alexander Isak skorar og skorar. Amad Diallo kom Man Utd til bjargar. Matz Sels með enn einn stórleikinn fyrir Forest. Loks náðu Brighton í sigur. Ollie Watkins minnir á sig og Erling Braut Haaland skrifaði undir nýjan langtímasamning við Man City sem misstigu sig í vikunni gegn býflugunum í Brentford.
    1 hr 10 min
  • Enski boltinn - Þurfa að reka Ten Hag aftur og FSG á leið á svarta listann
    Andri Rúnar Bjarnason, sóknarmaður Stjörnunnar, er sérstakur gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu þennan föstudaginn. Andri er stuðningsmaður Manchester United sem hefur farið býsna vel af stað á árinu 2025.
    Man Utd vann endurkomusigur á Southampton í gær þar sem Amad Diallo skoraði þrennu.
    Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir þættinum og Magnús Haukur Harðarson er að venju með. Farið er yfir síðustu leiki og stöðuna í deildinni.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Þórarinn Ingi Valdimarsson
    Þórarinn Ingi Valdimarsson hitti mig í World Class Laugum og ræddi Vestmannaeyjar, Noreg og þurra Norðmenn, FH, Stjörnuna auk þess sem hann valdi lið af mönnum til að taka með sér á þjóðhátíð sem kemur á óvart!Visitor, Lengjan, Hafið Fiskverslun, World Class eru með okkur í liði ásamt auðvitað Budweiser Budvar!Njótið vel!
    1 hr 17 min