Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Freysi fer yfir síðustu daga - Fundaði með KSÍ en tók við Brann
    Freyr Alexandersson er tekinn við sem þjálfari Brann í Noregi og hann stefnir á að hjálpa liðinu að vinna sinn fyrsta meistaratitil síðan 2007 þegar þrír Íslendingar léku með liðinu.
    Það er gríðarlegur áhugi á Brann í borginni Bergen og hefur Freyr aldrei kynnst annarri eins fjölmiðlaathygli eins og síðustu daga.
    Hann gaf Fótbolta.net hálftíma í dag til að fara yfir nýja starfið.
    Freyr var líka inn í myndinni hjá KSÍ varðandi landsliðsþjálfarastarf Íslands en í viðtalinu hér að ofan ræðir Freyr jafnframt um dagana áður en hann tók við Brann.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Að gera Bestu deildina enn betri
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 11. janúar.
    Elvar Geir og Tómas Þór skoða landsliðsþjálfaramálin, félagaskipti og fréttir vikunnar og fá síðan góða gesti frá Toppfótbolta.
    Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF, og Björn Þór Ingason, markaðsstjóri ÍTF, koma í heimsókn. Rætt er um þróun Bestu deildarinnar, peningana í kringum hana, fyrirkomulagið og hvar svigrúm sé til bætinga.
    1 hr 49 min
  • Hugarburðarbolti GW 20 Er Brian Mbeumo sonur Bob Marley?
    2-2 jafntefli í veislu á Anfield hjá erkifjendunum Liverpool og Man Utd. Brian Mbeumo með sýningu á St.Mary's. Brighton náði í stig gegn Arsenal í annað skiptið í vetur. Ipswich náði í stig gegn Fulham á Craven Cottage. Aston Villa lönduðu þremur punktum gegn nýliðum Leicester á heimavelli. Matz Sels er stigahæsti markvörðurinn í fantasy og ekki að ástæðulausu.
    1 hr 11 min
  • Enski boltinn - Alvöru slagur þegar erkifjendur mættust
    Erkifjendurnir Liverpool og Manchester United áttust við í ensku úrvalsdeildinni í gær og enduðu leikar með jafntefli í fjörugum leik.
    Það má svo sannarlega telja þetta til óvæntra úrslita þar sem flestir bjuggust nú við öruggum sigri Liverpool.
    Drummerinn sjálfur, Jóhann D Bianco, var ekki einn þeirra en hann er mikill stuðningsmaður Manchester United og hafði trú á sínum mönnum fyrir leikinn. Joey var gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag og fór yfir málin ásamt Guðmuni Aðalsteini og Magnúsi Hauki Harðarsyni.
    Farið var mikið yfir leik Liverpool og Man Utd, og þá var snert á öðrum leikjum helgarinnar.
    59 min
  • Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra og enska hringborðið
    Elvar Geir og Tómas Þór í fyrsta þætti ársins 2025.
    Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina afhjúpuð og farið yfir fréttir úr íslenska boltanum.
    Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins í enska boltanum velur sérstakt úrvalslið og hitar upp fyrir viðureign Liverpool og Manchester United.
    1 hr 46 min
  • Hugarburðarbolti GW 19 Versta byrjun nýs stjóra Man Utd í 103 ár!
    Liverpool svífa hátt á toppi deildarinnar! Þeir kjöldrógu Hamrana á útivelli. Ipswich unnu fyrsta heimasigur sinn í úrvalsdeildinni síðan 2004 þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og skelltu stórliði Chelsea 2-0. Öskubusku ævintýri Notthingham Forest ætlar engan endi að taka. Morgan Rogers heldur áfram góðri spilamennsku og þakkar fantasy spilurum traustið. Tottenham og Man Utd halda áfram að vera í vandræðum og þetta er versta byrjun nýs stjóra Man Utd í 103 ár!
    1 hr 5 min
  • Enski boltinn - Man Utd gælir við falldrauginn eftir vonlaus jól
    Gleðilegt nýtt ár! Enski boltinn var á fleygiferð í kringum jólahátíðina en í þessum þætti er farið yfir það helsta.
    Manchester United er mikið á milli tannana á fólki þessa dagana en falldraugurinn gælir við liðið. Það er aðeins sjö stig í fallsvæðið eftir þrjá tapleiki í röð.
    Liðið er hreint út sagt ömurlegt og það er dimmt yfir Old Trafford.
    Liverpool er sem fyrr á toppnum, Arsenal átti góð jól en það sama er ekki hægt að segja um Chelsea sem svo gott sem stimplaði sig út úr titilbaráttunni.
    Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fór yfir málin með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Hjálmari Aroni Níelssyni, stuðningsmanni Newcastle.
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Kæfan 2024
    Gleðin er við völd í Kæfunni þegar fótboltaárið er gert upp og veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í beinni í síðasta þætti ársins frá fiskabúrinu á Suðurlandsbrautinni. Gestur þáttarins er hinn þrælskemmtilegi og öflugi markvörður Jökull Andrésson.
    Einnig kemur Breki Logason í heimsókn og Tómas Meyer er á línunni.
    1 hr 47 min