Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Sá síðasti í Guttagarði, töfrar í bikar og vesen á City
    Það var söguleg stund í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar síðasti nágrannaslagur Everton og Liverpool á Goodison Park fór fram. Eftir tímabilið fer Everton á nýjan heimavöll.
    Það var heldur betur drama í þessum leik en Magnús Haukur Harðarson og Jóhann Páll Ástvaldsson fóru yfir það ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni.
    Einnig var farið yfir leiki síðustu helgar í FA-bikarnum, Meistaradeildina og stórleikinn á eftir á milli Víkings og Panathinaikos.
    0 min
  • Tveggja Turna Tal - Finnur Orri Margeirsson
    Finnur Orri Margeirsson tilkynnti fyrir nokkrum dögum að hann hefði lagt skóna á hilluna þó svo að ég sé nokkuð viss um að hann vilji spila einn leik til!Finnur spilaði á Íslandi með Breiðablik, KR og FH, sem hann tvísamdi við. Hann átti líka gott tímabil með Lillestrom í Noregi.Við fórum yfir ferilinn, ræddum Metoo, hann valdi bestu leikmenn sem hann spilaði með í liðunum á Íslandi og síðast en ekki síst sagði ég honum sögur af tengdapabba hans!Við Turnarnir erum í boði Visitor ferðaskrifstofu, Lengjunnar, World Class, Hafsins Fiskverslun og Budweiser Budvar. Þökkum fyrir það og hvetjum okkar besta fólk til að beina viðskiptum þangað.Finnur Orri er einlægur, klár, skemmtilegur og á frábæran feril.Njótið vel!
    0 min
  • Útvarpsþátturinn - Heima í Helsinki og ótímabær Lengjuspá
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 8. febrúar. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir.
    Farið yfir helstu fréttir vikunnar, öflugir leikmenn komu heim í Bestu deildina og Víkingur er að halda til Helsinki og mæta Panathinaikos. Heimir Gunnlaugsson formaður fótboltadeildar Víkings er á línunni.
    Þá mætir sérfræðingurinn Baldvin Már Borgarsson og afhjúpar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina í sumar.
    1 hr 48 min
  • Fótbolta nördinn - Undirbúningstímabil: Trivíaleikarnir
    Fyrstu seríunni er lokið af Fótbolta Nördanum en við erum hvergi nærri hættir. Fram að næstu seríu verða aukaþættir með ójöfnu millibili til þess að svala þorstann hjá öllum nördunum í samfélaginu. Í þetta skiptið mættu menn úr geysivinsæla hlaðvarpinu Trivíaleikarnir. Það voru þeir Ingi Eddu Erlingsson og Stefán Geir Sveinsson.
    25 min
  • Hugarburðarbolti GW 24 Arsenal slátraði meisturum Man City 5-1!
    Arsenal slátraði Man City 5-1 á Emirates!
    Það er búið að vera kveikt Viðnum allt tímabilið. Sjóðandi heitur!! Mo Salah skildi Bournemouth og Liverpool að í flottum fótboltaleik. Fulham vann sterkan útisigur á Newcastle á St James's Park 1-2. Jean Philip Mateta með bæði mörk Crystal Palace gegn lánlausum Man Utd mönnum í 0-2 sigri á Old Trafford og Tottenham vann frábæran 0-2 sigur á Brentford á erfiðum útivelli.
    0 min
  • Enski boltinn - Stay humble, janúarglugginn og Luka pælingar
    Í gær kláraðist 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar með leik Chelsea og West Ham á Stamford Bridge.
    Stórleikur umferðarinnar var á sunnudag þegar Arsenal fór illa með Manchester City en það var nóg að ræða í kringum þann leik.
    Farið er yfir alla leiki umferðarinnar, janúargluggann sem var að klárast og svo er snert aðeins á körfubolta í lokin þegar rætt er um skipti Luka Doncic til Los Angeles Lakers. Eru þau tengd inn í fótboltann í þættinum.
    Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir og með honum eru Haraldur Örn Haraldsson og afmælisbarnið Magnús Haukur Harðarson.
    1 hr 11 min
  • Tveggja Turna Tal - Ómar Ingi Guðmundsson
    Ómar Ingi Guðmundsson er yfirmaður hæfileikamótunar KSI, þjálfari U-15 ára landsliðsins og aðstoðarþjálfari U-19 ára landsliðsins. Ómar Ingi þjálfaði yngri flokka HK ásamt því að vera yfirþjálfari félagsins í áratugi áður en hann óvænt tók við meistaraflokk karla hjá félaginu og setti stigamet hjá félaginu í efstu deild. Ómar Ingi hefur líka þjálfað í Mosfellsbæ og í Hveragerði og hvar sem hann kemur getur hann sér góðs orðs enda eðaldrengur. Við Turnarnir viljum þakka Visitor, World Class, Hafinu fiskverslun, Lengjunni og að sjálfsögðu Budvari félaga okkar fyrir samstarfið. Við Ómar Ingi fórum vítt yfir sviðið. Afreksþjálfun, yfirþjálfun, ferillinn hans í HK, hvernig hann náði í stráka úr E-deild og gerði þá að alvöru leikmönnum og nöfn barnanna okkar. Robbie Fowler kom svo við sögu! Og fleira, miklu fleira. Njótið vel!
    2 hr 39 min
  • Útvarpsþátturinn - Ótímabæra spáin þegar það eru tveir mánuðir í Bestu
    Besta deild karla fer af stað laugardaginn 5. apríl og ótímabæra spáin fyrir deildina er aðalatriðið í þættinum.
    Tómas Þór Þórðarson, Valur Gunnarsson og Elvar Geir Magnússon skoða stöðu mála hjá öllum tólf liðum deildarinnar, rýna í undirbúningstímabilið, félagaskiptamarkaðinn og helstu fréttir.
    Þá er skoðað hvaða leikmenn þurfa að stíga upp og hverjum verður sérstaklega spennandi að fylgjast með.
    1 hr 54 min
  • Fótbolta nördinn - Úrslit: Víkingur vs Fylkir
    Þá er komið að úrslita þættinum af fyrstu seríunni og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Fylki og Víking. Fyrir Fyllki keppti Ragnar Bragi Sveinsson en fyrir Víking keppti Davíð Örn Atlason. Þátturinn var tekinn upp live síðasta laugardag á Arena en tæknimálin fóru aðeins úrskeiðis og því eru hljóðgæðin því miður ekkert sérlega góð.
    40 min