Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Liverpool er Englandsmeistari 2025 (Staðfest)
    Liverpool vann í gær sinn 20. Englandsmeistaratitil. Þetta hafði verið lengi í loftinu en Liverpool er búið að vera langbesta liðið þetta tímabilið.
    Baldvin Már Borgarsson og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag og gerðu upp magnað tímabil hjá Liverpool.
    Einnig var rætt um komandi Evrópuleiki og aðeins farið í spænska boltann í lokin.
    55 min
  • Tveggja Turna Tal - Guðjón Örn Ingólfsson
    Fyrir 15 árum síðan var Guðjón Örn Ingólfsson að lyfta með Blaz Roca þegar Erpur hvatti hann til að mennta sig í styrktarþjálfun — ráð sem átti eftir að móta feril hans. Síðan þá hefur Guðjón verið lykilmaður í ótrúlegri uppbyggingu hjá Víkingi Reykjavík, þar sem hann varð Íslandsmeistari tvisvar sinnum og bikarmeistari fjögur ár í röð. Einnig tók hann þátt í velgengni FH á sínum tíma. Í dag starfar Guðjón sem styrktarþjálfari hjá KR, þar sem hann vinnur náið með Óskari Hrafni Þorvaldssyni.Í þættinum ræðum við vegferð Guðjóns, hvernig góð styrktarþjálfun getur gert gæfumuninn í knattspyrnu — og hvaða lærdóma hann hefur tekið með sér á leiðinniGóða skemmtun
    1 hr 14 min
  • Grasrótin - Upphitun fyrir 4 og 5. deild
    Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Í þessum þætti er hitað upp fyrir 4 og 5. deild karla sem fer senn að hefjast. Rætt er um öll liðin og spáð fyrir um það hvar þau enda á komandi tímabili.Þáttastjórnendur eru Haraldur Ingi og Tómas Helgi.
    1 hr 8 min
  • Útvarpsþátturinn - Allt galopið í Bestu og eftirvænting í Liverpoolborg
    Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. apríl.
    Besta deildin á hug okkar að vanda. Helstu tíðindi, gluggapælingar og næsta umferð. Daði Berg Jónsson hefur farið á kostum með Vestra og er á línunni.
    Enski boltinn er til umræðu. Kristján Atli Ragnarsson sérfræðingur mætir en mikil eftirvænting er í Liverpoolborg. Þá er einnig rætt um Evrópudrauma Arsenal og Manchester United.
    1 hr 43 min
  • Hugarburðarbolti GW 33 Liverpool aðeins einum sigri frá því að verða meistarar.
    Liverpool aðeins einum sigri frá því að verða meistarar. Trent með góða kveðjugjöf eða hvað? Aston Villa burstaði Newcastle en tapaði svo gegn Man City. Nottingham Forest með mikilvægan útisigur á Tottenham á annan í páskum. Spennan verður svakaleg um þetta 3-5 sæti sem gefur meistaradeildarsæti. Svo óskum við Leeds og Burnley stuðningsmönnum til hamingju með úrvalsdeildarsætið.
    1 hr 3 min
  • Grasrótin - Upphitun fyrir 3. deild
    Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Í þessum þætti er hitað upp fyrir 3. deild karla sem fer senn að hefjast. Rætt er um öll liðin og spáð fyrir um það hvar þau enda á komandi tímabili.Þáttastjórnendur eru Haraldur Ingi og Tómas Helgi.
    1 hr 2 min
  • Grasrótin - Upphitun fyrir 2. deild
    Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi.Í þessum þætti er hitað upp fyrir 2. deild karla sem fer senn að hefjast. Rætt er um öll liðin og spáð fyrir um það hvar þau enda á komandi tímabili.Þáttastjórnendur eru Haraldur Ingi og Tómas Helgi.
    57 min
  • Útvarpsþátturinn - Mjólkin býður upp á það óvænta
    Elvar Geir og Baldvin Borgars með sérstaka páskayfirferð í útvarpsþættinum þessa vikuna.
    Fjallað er um 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins sem hafa boðið upp á óvænt úrslit. Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV sem rúllaði yfir Víking, og Marinó Hilmar Ásgeirsson, leikmaður Kára sem sló út Fylki, verða á línunni.
    Þá verður fótboltavikan gerð upp og horft í tíðindi hér heima og erlendis. Það er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum í Evrópukeppnunum.
    1 hr 35 min
  • Hugarburðarbolti GW 32 Það eru 9 fingur á bikarnum hjá Liverpool!
    Liverpool eru með 9 fingur á Englandsbikarnum. Newcastle á fullri ferð inn í meistaradeildina í 3.sætinu. Notthingham Forest og Arsenal töpuðu bæði stigum í umferðinni. Aaron Ramsdale markvörður Southampton gerði sér lítið fyrir og varði 2 vítaspyrnur gegn Aston Villa.
    Svarthvíta hetjan Harvey Barnes var frábær í þessum tveimur leikjum hjá Newcastle.
    1 hr 10 min