Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Hugarburðarbolti - Liverpool aftur á toppinn!
    Liverpool aftur á toppinn eftir magnaðan leik á Anfield Road gegn Brighton. Man City og Arsenal töpuðu bæði. Dominic Solanke skein skært hjá Spurs gegn Aston Villa. Viðurinn heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. Dýrlingarnir með sinn fyrsta sigur í deildinni og Harry Wilson hetjan á Craven Cottage.
    1 hr 2 min
  • Enski boltinn - Liverpool á toppnum og velkominn Amorim
    Það eru viðburðarríkir dagar að baki í enska boltanum og nóg um að ræða að venju.
    Liverpool er á toppnum eftir frábæra byrjun og Manchester United var að ráða nýjan stjóra. Svo er Nottingham Forest heitasta lið deildarinnar.
    Magnús Haukur Harðarson og Gylfi Tryggvason settust niður og ræddu málin í dag ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni.
    57 min
  • Rólegi stríðsmaðurinn sem aldrei vék frá Stjörnunni
    Daníel Laxdal lagði skóna á hilluna á dögunum eftir stórkostlegan feril með Stjörnunni.
    Daníel lék allan sinn feril í Garðabænum og skilur eftir sig mikla arfleifð hjá félaginu. Mikill stríðsmaður innan vallar en afar rólegur samt sem áður.
    Þessi mikli Stjörnumaður mætti í hlaðvarp á Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi aðeins um ferilinn, ákvörðunina um að hætta og hvað sé næst.
    42 min
  • Tveggja Turna Tal - Haraldur Árni Hróðmarsson
    Gestur vikunnar er í einu áhugaverðasta starfi í íslenskum fótbolta. Haraldur Árni Hróðmarsson þjálfar lið frá bæjarfélagi þar sem enginn býr, því miður.Við ræddum saman um fótboltaferilinn, 48 tíma reglu Bo Hendrikssen, hvernig það var að þjálfa með Heimi Guðjóns, Tufa og Jóni Þór ásamt því sem Haraldur spáir því að trúðurinn Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna.Kvikmyndaunnendur landsins munu líka njóta þessa þáttar enda er Halli kvikmyndafræðingur eftir að hafa gert lokaverkefni um sjálfan Jón Pál Sigmarsson !Við Turnarnir bjóðum Visitor velkomin í hópinn sem stuðningsaðilar. Þau bætast í hópinn með okkar hundtryggu aðdáendum í Nettó, Lengjunni, Netgíró, Hafinu fiskverslun, Fitness sport og Tékkanum Budvar!Turnarnir eru í útrás - fylgist með :)
    2 hr 20 min
  • Útvarpsþátturinn - Besta, Valur og Amorim tekur við
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Farið er yfir helstu tíðindi Bestu deildarinnar eftir að tímabilinu lauk, og nýr formaður fótboltadeildar Vals, Björn Steinar Jónsson er á línunni.
    Í seinni hlutanum mætir Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins, og gerir upp fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar. Ráðning Manchester United á Rúben Amorim er sérstaklega skoðuð.
    1 hr 53 min
  • Halldór Árnason - Íslandsmeistari í fyrstu tilraun
    Halldór Árnason gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum síðasta sunnudag eftir úrslitaleik gegn Víkingi í Fossvogi.
    Halldór var á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari Breiðabliks en hann hafði áður verið aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar með liðið.
    Halldór mætti í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir frábært tímabil Blika, sem og sína leið í þjálfun.
    0 min
  • Hugarburðarbolti GW9 Erik ten Hag rekinn!
    Chris Wood heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. 2-2 sanngjarnt jafntefli í stórleiknum á Emirates. Jarrod Bowen setti síðasta naglann í kistu Erik ten Hag. Haaland skoraði eina markið gegn dýrlingunum. Cole Palmer átti enn einn góða leikinn fyrir Chelsea og Welbeck skoraði auðvitað fyrir Brighton í hörku 2-2 jafntefli gegn Úlfunum.
    1 hr 12 min
  • Innkastið - Grimmir Blikar verðskuldaðir meistarar
    Síðasta Innkast tímabilsins. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke ræða um síðustu umferðina og gera upp tímabilið.
    Lið ársins og verðlaunaafhending. Opinberað er val .Net á leikmanni ársins, þeim efnilegasta, dómara ársins og þjálfara ársins.
    Til hamingju Íslandsmeistarar Breiðabliks! HK-ingar féllu með hvelli og Valur tryggði sér Evrópusæti.
    1 hr 11 min