Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Landsliðshetjur og Toddi
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 5. október. Umsjón: Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnarsson.
    Gestir þáttarins eru þrír að þessu sinni. Fyrst komu Logi Tómasson og Orri Steinn Óskarsson sem áttu frábæran leik með landsliði Íslands í jafntefli við Wales í gær.
    Svo kom Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og fór yfir málin.
    Að lokum var farið er yfir fréttir vikunnar, landsleikurinnn gerður upp og rætt um Bestu deildina sem hefst að nýju næstu helgi.
    1 hr 36 min
  • Tveggja Turna Tal - Åge Hareide
    Åge Hareide bauð í viðhafnarútgáfu af Tveggja Turna Tali í kvöld. Í fyrsta sinn eru skipafréttir sagðar en Åge seldi togara upp á Skaga fyrir 25 árum sem átti eftir að skipta miklu máli þar í bæ.Við ræddum landsliðsþjálfarastarfið, muninn á Norðmönnum, Íslendingum, Dönum og Svíum og svo kom það í ljós að okkar maður er vinur Haralds Noregskonungs. Við þökkum að okkar bestu samstarfsfélögum í Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fitness Sport, Tékkanum Budvar og Eyjó í Hafinu fiskverslun. Njótið !
    0 min
  • Fullkominn endir: Íslandsmeistararnir Ásta Eir og Kristín Dís
    Íslandsmeistararnir Ásta Eir og Kristín Dís Árnadætur mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og gerðu upp frábært tímabil í Kópavoginum.
    Breiðablik varð meistari eftir hreinan úrslitaleik við Val fyrir framan metfjölda áhorfenda síðasta laugardag. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Blika síðan 2020.
    Einnig var um að ræða síðasta leik Ástu á ferlinum og síðasti leikinn sem þær systur spila saman. Fullkominn endir á mögnuðum tíma ef svo má segja.
    50 min
  • Hugarburðarbolti GW7 Danny Welbeck er eins og Benjamin Button!
    Brighton - Tottenham varð auðvitað veislan sem við spáðum. Liverpool með sterkan 0-1 sigur á Selhurst Park gegn Crystal Palace. Cole Palmer nokkuð rólegur um helgina og Haaland skorar ekki annan leikinn í röð. Saka í góðum gír á Emirates og Forest náðu í sterkt stig á Stamford Bridge.
    1 hr 14 min
  • Frá Eastbourne að Íslandsmeistaratitlinum
    Nik Chamberlain stýrði kvennaliði Breiðabliki til Íslandsmeistaratitils síðasta laugardag eftir hreinan úrslitaleik við Val. Hann var að klára sitt fyrsta tímabil hjá félaginu eftir að hafa gert flotta hluti með Þrótt þar áður.
    Nik, sem er frá Eastbourne á Bretlandseyjum, kom fyrst til Íslands árið 2007 en hann hefur verið hér samfleytt í býsna langan tíma.
    Hann mætti í dag á skrifstofu Fótbolta.net og fór yfir tímabilið með Breiðabliki og tímann sinn á Íslandi. Og auðvitað tígulmiðjukerfið sem hann hefur gert frægt.
    1 hr 18 min
  • Enski boltinn - Eldhressir Mosóbræður í heimsókn
    Andréssynir úr Mosfellsbæ kíktu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru vel yfir málin.
    Bræðurnir eru stórskemmtilegir en í þættinum fara þeir aðeins yfir fótboltasumarið á Íslandi (Afturelding komst upp í Bestu deildina), lífið í akademíu á Englandi og síðastliðna umferð í ensku úrvalsdeildinni.
    Þeir þekkja enska boltann vel eftir að hafa verið báðir á mála hjá Reading, en Jökull er þar enn samningsbundinn.
    1 hr 5 min
  • Innkastið - Vængbrotnir Valsarar hindruðu Blika
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn í Innkastinu eftir þriðju umferð úrslitakeppninnar. Víkingur og Breiðablik leiðast áfram hönd í hönd á toppi deildarinnar en bæði lið gerðu jafntefli. Við færumst nær úrslitaleik.
    Davíð Ingvars funheitur, mark frá miðju í Víkinni, erfitt að skilja Heimi Guðjóns, Fylkismenn eru fallnir, KR-ingar raða inn mörkum og Andri Rúnar nennir ekki Lengjudeildinni.
    56 min
  • Tveggja Turna Tal - Magnús Már Einarsson
    Magnús Már Einarsson, Maggi.net, er gestur vikunnar.Magnús byrjaði 13 ára að starfa sem blaðamaður á fotbolti.net og breytti leiknum í umfjöllunumum íslenskan fótbolta ásamt Hafliða Breiðfjörð á næstu 19 árum.Sonur hans fótbrotnaði á fyrir nokkrum árum og það fékk Magga til að hugsa um hvað hann væri að gera í lífinu. Hann hætti á .net og fór að einbeita sér að þjálfun og að vera pabbi.Árangurinn er að hann á tvö börn, það þriðja er á leiðinni og hann kom Aftureldingu í efstu deild.Við þökkum Nettó, Lengjunni, Netgíró,Fitness Sport, Tékkneskum Budvar fyrir samstarfið og bjóðum Eyjó og Hafið fiskverslun velkomin í hópinn!Það Er Alltaf Von - Njótið!
    1 hr 7 min
  • Útvarpsþátturinn - Mosó í Bestu deildina
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 5. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Gestur þáttarins er Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar en Mosfellingar eru komnir upp í Bestu deildina.
    Farið er yfir fréttir vikunnar, Bestu deildina, tap Víkings í Sambandsdeildinni, Sæbjörn Steinke skoðar landsliðshópinn og Kristján Atli ræðir um enska boltann.
    1 hr 47 min