Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Láki og leikurinn stóri
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað vel upp fyrir úrslitaleik Víkings og Breiðabliks.
    Gestur er Þorlákur Árnason nýr þjálfari ÍBV, Hilmar Jökull stuðningsmaður Breiðabliks kemur í heimsókn og Haraldur framkvæmdastjóri Víkings er á línunni.
    Hitað er upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar, rætt um Evrópusigur Víkings og farið yfir fréttir vikunnar.
    1 hr 53 min
  • Hugarburðarbolti GW8 Jón Steinsson var aftur hetja bláliða!
    Curtis Jones var munurinn á liðunum í leik Liverpool og Chelsea. Tvö frábær mörk hjá Man Utd í seinni hálfleik tryggðu sigurinn gegn Brentford. Man City eru ekki bara með gæðin heldur lukkudísirnar líka. Tottenham með glæstan sigur um helgina í Lundúnaslag gegn West Ham og Arsenal tapaði fyrsta útileik sínum á árinu sanngjarnt á suðurströndinni gegn Bournemouth.
    1 hr 32 min
  • Enski boltinn - Klopp ekki ómissandi og Sir Alex bolað burt
    Landsleikjahléið er búið og enska úrvalsdeildin er farin aftur af stað. Til allrar hamingju.
    Kristján Atli Ragnarsson og Óskar Smári Haraldsson, stuðningsmenn Liverpool, mættu í heimsókn í dag og fóru yfir áhugaverða umferð í ensku úrvalsdeildinni.
    Það er svo sannarlega nóg til að ræða eftir helgina.
    1 hr 21 min
  • Innkastið - Stjórnlaust hringleikahús
    Innkastið eftir hreint rosalega umferð í Bestu deild karla þar sem allt var á ystu nöf. Það er búið að leggja upp fyrir rosalega lokaumferð.
    Dómaraskandallinn og dramatíkin á Skaganum, Blikar stóðust pressuna, Gylfi íhugar að hætta, flautumark og fáránleiki í Kórnum og andlausir Vestramenn.
    1 hr 11 min
  • Tveggja Turna Tal - Árni Freyr Guðnason
    Gestur vikunnar er nýráðinn þjálfari Fylkis, Árni Freyr Guðnason.Árni er alinn upp í Hafnafirði. Hann spilaði upp yngri flokka FH en hans bestu ár sem leikmaður komu í Breiðholtinu sem leikmaður ÍR.Ásamt því að spila þá þjálfaði hann yngri flokka FH en hann hefur einnig þjálfað kvennalið FH og verið yfirþjálfari yngri flokka í Kaplakrika.Árni Freyr tók við ÍR þegar félagið var í vandræðum í 2.deildinni í Júní 2022 en skilur við liðið í 1.deild sem eitt af liðum ársins í Íslenskum fótbolta.Við Árni Freyr ræddum fótboltaþjálfun, golf, tónlist og dramatíkina vegna félagsskipta hans til Fylkis.Við þökkum Nettó, Lengjunni, Netgíró, Fitness Sport, Tékkanum Budvar og Hafinu Fiskverslun fyrir samstarfið og hlökkum til framhaldsins.Það Er Alltaf Von - Njótið!
    1 hr 54 min
  • Útvarpsþátturinn - Framtíð Norðmannsins og fall Fylkis
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 19. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Farið er yfir fótboltatíðindi vikunnar, landsliðið, lokabaráttuna í Bestu deildinni og fleira.
    Hörður Snævar Jónsson ritstjóri 433.is er á línunni og ræðir um landsliðið og framtíð Age Hareide landsliðsþjálfara en Hörður telur framfarirnar ekki nægilega miklar undir hans stjórn.
    Ragnar Páll Bjarnason formaður fótboltadeildar Fylkis ræðir um vonbrigðatímabil í Árbænum og spennandi þjálfararáðningu.
    Reiði stuðningsmanna ÍR, nýtt undirlag Laugardalsvallar og ýmislegt fleira kemur við sögu!
    1 hr 31 min
  • Innkastið - Af hverju VAR ekki dæmt?
    Landsleikur Íslands og Tyrklands var gerður upp í þætti kvöldsins. Lokatölur urðu 2-4 fyrir gestina frá Tyrklandi.
    Fréttamenn Fótbolta.net, þeir Sæbjörn Steinke, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir leikinn, vafaatriðin og frammistöðuna.
    Það var ekki mikil ánægja með dómara leiksins og VAR myndbandstæknina á Laugardalsvelli.
    Þá var einnig rætt hvers vegna Gylfi Þór Sigurðsson kom ekki við sögu í leiknum og þetta örlitla sem hefði þurft að gerast svo Ísland ætti möguleika á sigri í riðlinum.
    1 hr 10 min
  • Tveggja Turna Tal - Þorsteinn Halldórsson
    Gestur vikunnar er Þorsteinn Halldórsson þjálfari Íslenska kvennalandsliðsins. Steini kemur frá Norðfirði en flutti ungur á mölina og fór í KR og lék þar lengi ásamt að hafa átt góð ár í FH og Þrótti Reykjavíkur.Þjálfaraferillinn er langur og við ræddum að mestu tímann hjá Breiðablik og landsliðinu samt því að hafa fórum yfir hvernig það væri að vera pabbi íþróttafólks.Við þökkum Nettó, Lengjunni, Netgíró,Fitness Sport, Tékkneskum Budvar og Hafinu Fiskverslun fyrir samstarfið og hlökkkum til framhaldsins!Það Er Alltaf Von - Njótið!
    1 hr 17 min