Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Risarnir tveir slást og annar þeirra stendur uppi sem meistari
    Einn stærsti leikur síðari ára í íslenska fótboltanum fer fram á laugardaginn þegar Valur tekur á móti Breiðabliki.
    Risarnir tveir í kvennaboltanum eigast þarna við í einum leik sem mun skera úr um það hvaða lið verður Íslandsmeistari. Breiðablik er með einu stigi meira fyrir leikinn.
    Það er óhætt að gera kröfu á áhorfendamet en leikurinn fer fram á Hlíðarenda á laugardaginn klukkan 16:15.
    Fótboltaþjálfararnir Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson mættu í heimsókn í dag og fóru vel yfir leikinn sem er framundan.
    48 min
  • Hugarburðarbolti GW6 - Er Cole Palmer stjórnað af gervigreind?
    Cole Palmer með alvöru sýningu á brúnni og er sá fyrsti til þess að skora fernu í fyrri hálfleik frá stofnun úrvalsdeildarinnar 1992. Draumamark bakvarðarins dugði ekki til á Emirates. Liam Delap með tvennu fyrir Traktors strákana. Liverpool fóru á toppinn með því að leggja Úlfana 1-2 á meðan Man City mátti sætta sig við stig gegn sterkum Newcastle mönnum í norðrinu og Man Utd steinlá á heimavelli gegn Tottenham.
    1 hr 15 min
  • Innkastið - Töfrar, tár og trúðaskór
    Uppgjör á 2. umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar og Lengjudeildin gerð upp. Hverjir voru bestir?
    Tarik Ibrahimagic töfraði þrjú stig til Víkings og Breiðablik skoraði sigurmark beint úr horni. Nokkur lið eru hreinlega kominn í vetrarfrí og Vestri vann klaufalegt lið HK. Afturelding er komin upp í Bestu deildina.
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn í Innkastinu.
    1 hr 13 min
  • Enski boltinn - Nú hljóta þeir að reka Ten Hag og Palmer sjóðheitur
    Erik ten Hag getur ekki lifað mikið lengur í starfi hjá Manchester United. Það er bara svoleiðis, United hlýtur að fara að reka hann.
    United tapaði 0-3 gegn Tottenham í gær en það var farið vel yfir það í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Tryggvi Páll Tryggvason var á línunni og fór yfir leikinn í gær.
    Chelsea stuðningsmennirnir Haraldur Örn Haraldsson og Stefán Marteinn Ólafsson eru þá gestir og fara yfir flotta byrjun Chelsea á tímabilinu. Cole (Cold) Palmer fór á kostum um helgina. Liverpool er á toppnum, Arsenal missti frá sér forystu en vann samt og Manchester City missteig sig án Rodri. Og já, Everton vann leik!
    1 hr 2 min
  • Siggi Höskulds fer yfir vonbrigðatímabil
    Þórsarar voru stórhuga fyrir tímabilið og eftir velgengni á undirbúningstímabilinu var trúin fyrir norðan mikil, gera átti alvöru atlögu að sæti í Bestu deildinni.
    Byrjunin í deildinni var fín, vel gekk í bikarnum en svo fór að halla undan fæti og þegar leið á tímabilið var liðið hreinlega í fallhættu. Niðurstaðan varð 10. sætið.
    Sigurður Höskuldsson, þjálfari liðsins, ræddi við Sæbjörn Steinke og var farið yfir tímabilið, stoppað við nokkra leiki og farið dýpra í ýmis mál. Siggi ræddi einnig um framhaldið, fréttir síðustu daga, leikmannamál og deildina í heild sinni.
    1 hr 15 min
  • Innkastið - Túristar urðu sigurvegarar
    Hringborðið dregið fram í Innkasti vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars, Guðmundur Aðalsteinn og svo Haraldur Örn stuðningsmaður KA.
    Bikarinn á Brekkuna! Til hamingju KA. Bikarúrslitaleikurinn er gerður upp en þar sýndi KA fyrirmyndar frammistöðu og vann verðskuldaðan sigur gegn Víkingi.
    Úrslitakeppni Bestu deildarinnar er farin af stað með glæsimörkum, áætlun Aftureldingar er að ganga upp í Lengjudeildarumspilinu og á föstudagskvöld er úrslitaleikur Fótbolti.net bikarsins.
    1 hr 12 min
  • Enski boltinn - Leikur sem spannaði allt sviðið
    Það var sannkallaður stórleikur í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Manchester City spilaði við Arsenal.
    Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, og Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmaður Liverpool, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stórleikinn, og aðra leiki helgarinnar.
    Enski boltinn er í boði Nova.
    1 hr 6 min