Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Tveggja Turna Tal - Gunnlaugur Jónsson
    Gunnlaugur Jónsson er gestur vikunnar. Við félagarnir fórum yfir víðan völl enda áhugasvið og ferill Gulla afar athyglisverður.Nýdönsk, afhverju vann FH ekki 89?, Draumalið ÍA frá 1980, Gaui Þórðar, Teitur Þórðar, Selfoss, Valur, Þróttur og fjölmiðlabakterían bar á góma! Við lentum í tómum vandræðum með þjófavörnina, brunavarnirnar og margt fleira.Við þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fitness Sport og 0% Budvar fyrir samstarfið góða og óskum ykkur öllum þess að njóta vel!Það Er Alltaf Von
    2 hr 54 min
  • Útvarpsþátturinn - Umspilið, Rúnar Kristins og Besta
    Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. september. Sæbjörn Steinke er með þeim í þættinum.
    Rætt er um fréttir vikunnar, umspil Lengjudeildarinnar, bikarúrslitaleikinn, Bestu deildina og fleira.
    Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram.
    1 hr 42 min
  • Leiðin á Laugardalsvöll - Stórskemmtilegt fyrirbæri
    Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Aðeins þarf að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll.
    laugardagur 21. september
    13:00 Selfoss-Árbær (JÁVERK-völlurinn)
    13:00 KFA-Tindastóll (Fjarðabyggðarhöllin)
    Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, ræddi við Fótbolta.net í morgunsárið um sumarið á Selfossi en lið hans flaug upp úr 2. deildinni. Einnig var farið yfir undanúrslitin í þessari keppni sem Bjarni er svo hrifinn af. Hann segir hana stórskemmtilegt fyrirbæri og mikla gulrót fyrir leikmennn að komast á Laugardalsvöll.
    30 min
  • Viktor Örlygur á leið í sinn fimmta bikarúrslitaleik
    Viktor Örlygur Andrason leikmaður Víkinga mætti í hljóðver Fótbolta.net í létta upphitun fyrir úrslitaleik Mjólkurbikarsins sem fram fer næstkomandi laugardag. Þar munu Víkingar mæta KA í úrslitum annað árið í röð og freista þess að vinna sinn fimmta bikartitil í röð.
    30 min
  • Hugarburðarbolti GW4 Haaland heldur bara áfram sínu striki
    Haaland heldur bara áfram sínu striki. Robert Sanchez og Onana vörðu báðir vítaspyrnu í stöðunni 0-0 hjá sínum liðum. Fyrsti sigur Notthingham Forest á Anfield síðan 1969. Arsenal með montréttinn í Norður London eftir helgina og Ollie Watkins er vaknaður. Draumamörk í umferðinni.
    1 hr 3 min
  • Haukur Heiðar - Bikarúrslit, Deano og Alexander Isak
    Á laugardag fer fram bikarúrslitaleikur KA og Víkings á Laugardalsvelli; annað árið í röð mætast liðin í úrslitaleiknum.
    Í tilefni af því var KA-maðurinn Haukur Heiðar Hauksson fenginn til að hita aðeins upp fyrir leikinn.
    Haukur lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021. Hann er uppalinn hjá KA, varð svo Íslands- og bikareistari með KR áður en hann tók skrefið út í atvinnumennsku og varð sænskur meistari með AIK.
    Stiklað er á stóru á ferli Hauks, í viðtalinu er rætt um Dean Martin, Alexander Isak, tilboð frá Leeds, EM 2016 og meiðslin sem settu strik í reikninginn.
    37 min
  • Innkastið - Rembingur og klaufabárðar
    22 umferðum er lokið í Bestu deildinni og komið að tvískiptingunni! Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn gera upp umferðina.
    Víkingur er á toppnum með öfluga markatölu, við höldum áfram að rembast við að búa til úrslitaleik, KR-ingar eru klaufabárðar og liðin í neðri hlutanum töpuðu nánast öll.
    Í þættinum er einnig fjallað um lokaumferð Lengjudeildarinnar og rýnt í umspilið. Svo er bikarúrslitaleikur handan við hornið!
    1 hr 9 min
  • Enski boltinn - Að harka út sigur og getur Liverpool barist um titilinn?
    Landsleikjahléið er búið og fjórða umferðin í ensku úrvalsdeildinni var leikin um helgina.
    Ágúst Unnar Kristinsson og Óliver Elís Hlynsson, leikmenn ÍR, mættu í heimsókn og fóru yfir málin.
    Arsenal vann meistarasigur gegn erkifjendum sínum í Tottenham, raunveruleikatékk fyrir Arne Slot, Haaland er vélmenni og Manchester United komst aftur á sigurbraut gegn Southampton.
    Þetta og fleiri í þætti dagsins af Enski boltinn.
    Enski boltinn er í boði Nova.
    55 min
  • Tveggja Turna Tal - Ólafur Helgi Kristjánsson
    Óli Kristjáns er gestur sem allir þekkja. Óli var góður leikmaður fyrir FH, KR, AGF og Íslenska landsliðið og fáir Íslendingar hafa átt eins áhugaverðan þjálfaraferil.Það geta allir lært helling af því að hlusta á Ólaf. Skiptir þá engu hvort um sé að ræða þjálfun eða lífið sjálft.Við þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni fyrir samstarfið góða og óskum ykkur öllum þess að njóta vel!Það Er Alltaf Von
    0 min