Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Staðan tekin í Bestu deild kvenna nú þegar deildin er skipt
    Fyrstu leikirnir í Bestu deild kvenna eftir að deildinni var skipt fóru fram í kvöld.
    Fyrr í dag komu þjálfararnir Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson við á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna í deildinni, lið fyrir lið.
    Það er mikil spenna í titilbaráttunni og á hinum enda töflunnar er þriggja liða barátta í baráttunni um að halda sér uppi.
    Einnig var aðeins snert á Lengjudeild kvenna og ævintýri FHL í þættinum.
    1 hr 2 min
  • Tveggja Turna Tal - Arnar Grétarsson
    Arnar Grétarsson á mjög áhugaverðan feril sem leikmaður, þjálfari og yfirmaður knattspyrnumála á Íslandi, Grikkland og í Belgíu. Við fórum fyrir yfir allt á milli himins og jarðar frá því að hann sat 16 ára gamall á skrifstofunni hjá Sir Alex Ferguson yfir í tíma hans hjá Val. Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður með þjálfurum, þverrt á íþróttagreinar, og ræðir þjálfun með gestum sínum. Þættirnir eru á öllum helstu hlaðvarpsveitum og er í boði Nettó, Netgíró og Lengjunnar.Njótið!
    0 min
  • Arnar Gunnlaugsson fer vel yfir málin
    Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga tók símtal við fréttaritara Fótbolta.net eftir markalaust jafntefli Víkinga gegn Santa Coloma í Andorra í viðureign liðanna í umspili um sæti í Sambandsdeild Evrópu. Eftir 5-0 sigur í heimaleiknum var nokkuð ljóst að leið Víkinga í deildarkeppnina væri nokkuð greið.
    19 min
  • Tveggja Turna Tal - Fjalar Þorgeirsson
    Fjalar Þorgeirs settist niður með mér og fór yfir sviðið. Hvernig var að vera leikmaður undir Ásgeiri El, Willum og Atla Eðvalds?
    Fjalar byrjaði þjálfaraferilinn í kampavínspartýinu í Garðabæ og upplifði drauga fortíðar bíta menn í FH. 
    Fjalar er í dag markmannsþjálfari Íslenska karlalandsliðsins og við veltum fyrir okkur markmannsþjálfun í fortíð, nútíð og framtíð!
    Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður með þjálfurum, þverrt á greinar, og ræðir þjálfun með gestum sýnum. Þættirnir eru á öllum helstu hlaðvarpsveitum og er í boði Nettó, Netgíró og Lengjunnar.
    Njótið!
    1 hr 55 min
  • Tveggja Turna Tal - Sigurður Ragnar Eyjólfsson
    Sigurður Ragnar Eyjólfsson settist niður með mér og fór yfir knattspyrnuferlinn og þjálfun. Sigga Ragga þykir vænt um landsliðsstelpurnar gömlu þó honum hafi sárnað viðskilnaðinn. Siggi Raggi er klár í að byrja þjálfa á nýjan leik og hjálpa KSI að bæta fótboltann á Íslandi með ýmsum hætti. Þátturinn er í boði Nettó, Netgíró og Lengjunnar.
    1 hr 46 min
  • Enski boltinn - Ten Hag tíminn, Noni í stuði og Guardiolabolti í Liverpool
    Önnur umferðin í ensku úrvalsdeildinni var skemmtileg en hún kláraðist í gær.
    Orri Fannar Þórisson, þjálfari KV, og Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir umferðina ásamt öllu því helsta.
    Manchester United tapaði enn og aftur í uppbótartíma undir stjórn Erik ten Hag, Noni Madueke talaði illa um Wolverhampton og skoraði svo þrennu og Arne Slot boltinn minnir meira á Pep Guardiola en Jurgen Klopp.
    Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.
    1 hr 5 min
  • Útvarpsþátturinn - Brotnir KR-ingar, Euro-Vikes og enskt hringborð
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. ágúst.
    Elvar Geir og Tómas Þór skoða helstu fótboltafréttir vikunnar; Sambandsdeildin, Besta deildin og Lengjudeildin eru til umræðu.
    Í seinni hlutanum er fjallað um upphaf ensku úrvalsdeildarinnar og sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli, kemur með sína spá um það hvernig þetta mun enda.
    0 min