Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Nýju gæjarnir flottir og Slot grjótharður
    Enska úrvalsdeildin er hafin að nýju!
    Nýju gæjarnir hjá Manchester United voru flottir, Slot var grjótharður í fyrsta leiknum hjá Liverpool, Arsenal byrjaði á sigri, Brighton skellti sér á toppinn og hafnaboltapælingin hjá Chelsea virkar ekki í fótbolta.
    Baldvin Már Borgarsson og Sölvi Haraldsson mættu í heimsókn í dag og fóru yfir leiki helgarinnar og helstu sögulínur.
    Enski boltinn er í boði Nova.
    52 min
  • Útvarpsþátturinn - Gulli Jóns og tvíburarnir
    Útvarpsþátturinn 17. ágúst.
    Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars. Með þeim er Gunnlaugur Jónsson fjölmiðlamaður og fyrrum fótboltamaður.
    Sjónvarpsþættir um tvíburana Arnar og Bjarka, sviptingar hjá KR, sigur Breiðabliks gegn Vals, enski boltinnn og fleira til umfjöllunar.
    1 hr 42 min
  • Enski boltinn - Sá fimmti í röð hjá City?
    Manchester City er að fara inn í komandi tímabil til að vinna ensku úrvalsdeildina fimmta árið í röð.
    Eiríkur Þorvarðarson og Magnús Ingvason mættu í heimsókn í dag til að fara yfir síðasta tímabil og komandi leiktíð hjá Englandsmeisturunum.
    Pep Guardiola stýrir skútunni áfram hjá City og sá maður elskar að vinna titla.
    Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.
    49 min
  • Hugarburðarbolti GW1 Pakkaferð á leik í vinning!
    Enska deildin fer af stað á morgun og fórum við yfir liðin sem við ætlum að stilla upp í byrjun tímabils. Gunni og Dóri eru með nánast alveg eins lið en Vignir er með allt aðrar pælingar en þeir. Svo eru risa fréttir! TA-Sport eru gengnir til liðs með okkur og ætla að gefa sigurverara deildarinnar pakkaferð á leik í ensku úrvalsdeildinni! Við munum að sjálfsögðu halda áfram með vikulega vinninga og fullt af flottum vinningum í allan vetur svo endilega skráið ykkur í deildina það kostar ekkert og kóðinn í deildina er: zmgv1y
    https://tasport.is/premierferdir/
    1 hr 4 min
  • Enski boltinn - „Fagleg" umræða um Arsenal
    Arsenal ætlar sér að vinna ensku úrvalsdeildina á komandi tímabili. Þetta er árið.
    Gunnar Birgisson og Jón Kári Eldon, tveir veikustu Arsenal stuðningsmenn landsins, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir sviðið. Umræðan var „fagleg" að þeirra mati.
    Arsenal hefur lent í öðru sæti síðustu tvö tímabil en ætla sér að taka gullið í ár. Jón Kári og Gunnar sætta sig við tvo titla, en vilja helst fá þrjá titla á komandi leiktíð.
    Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.
    55 min
  • Enski boltinn - Nýr kafli skrifaður í sögu Liverpool
    Það verður nýr kafli skrifaður í sögu Liverpool á komandi tímabili; Jurgen Klopp er farinn eftir níu ára veru hjá félaginu.
    Í staðinn er Hollendingurinn Arne Slot tekinn við stjórnartaumunum.
    Atli Már Steinarsson og Magnús Haukur Harðarson, tveir grjótharðir Liverpool stuðningsmenn, mættu í heimsókn í dag og fóru yfir stöðuna eftir breytingarnar. Mun Liverpool kaupa leikmann áður en glugginn lokar?
    Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.
    1 hr 11 min
  • Innkastið - Bölvun aflétt með nýjum þjálfara og glórunni tapað
    Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Óskar Smári.
    Óskar Hrafn byrjar aðstoðarþjálfaraferilinn á sigri, Skagamenn náðu aftur í sigur, Arnar Gunnlaugs urðaði yfir dómarastéttina, allir brjálaðir í Garðabæ, mistök að fara á Hlíðarenda, Lengjudeildarhornið og fleira.
    1 hr 22 min
  • Enski boltinn - Ætla aftur í hópferð til Tottenham
    Tottenham er að fara inn í sitt annað tímabil með Ange Postecoglou við stjórnvölinn og menn eru bara nokkuð brattir.
    Hjálmar Örn Jóhannsson, Hjammi, og Ingimar Helgi Finnsson, litla flugvélin, mættu í heimsókn á skrifstofu í dag og fóru yfir stöðuna fyrir tímabilið sem er framundan.
    Dominic Solanke, Mikey Moore, Oliver Skipp koma við sögu í þættinum og þá ræða þeir um mögulega hópferð til Tottenham í vetur.
    Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.
    46 min
  • Útvarpsþátturinn - Fjósamennska í íslenska boltanum
    Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. ágúst.
    Lengjudeildin skoðuð, Kristinn Kjærnested fer yfir Bestu deildina og helstu fréttamál þaðan og Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA er á línunni frá Akranesi.
    Í lok þáttarins er rætt um enska boltann.
    1 hr 38 min