Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Furðulegur heimur Chelsea
    Það hefur mikið gengið á hjá Chelsea í sumar, alveg eins og búist var við. Leikmenn hafa komið og farið, og það er kominn nýr stjóri. Ekkert óvænt þar.
    Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson eru fárveikir Chelsea menn.
    Þeir mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru aðeins yfir stöðuna hjá sínu félagi; fóru yfir furðulegan heim Chelsea.
    51 min
  • Innkastið - Brotið mark og óútreiknanlegt liðsval
    Innkastið fer yfir leiki vikunnar í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Haraldur Örn fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður KA.
    Brotið mark í Kórnum, tap í fyrsta leik Túfa, fjör í markalausu jafntefli, áhugamennskulegt hjá Fylki, óútreiknanlegt liðsval Jökuls og Víkingssigur í Krikanum.
    Einnig er rætt um Evrópuleik Víkings og Lengjudeildina.
    1 hr 25 min
  • Tiltalið: Hallbera Guðný Gísladóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar áhugaverða einstaklinga úr knattspyrnunni á Íslandi bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er fyrrum landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 32 min
  • Leiðin á Laugardalsvöll - Einn leikur í viðbót og töfrar á Króknum
    Í gær voru átta-liða úrslitin í Fótbolti.net bikarnum, þeirri yngstu og sprækustu, spiluð í heild sinni og er núna ljóst hvaða lið spila í undanúrslitum. Nú þarf bara að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll.
    Liðin sem eru komin í undanúrslit:
    Selfoss (2. deild)
    KFA (2. deild)
    Árbær (3. deild)
    Tindastóll (4. deild)
    Það verður dregið í undanúrslitin á morgun en Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, og Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, mættu í stúdíó í dag og fóru aðeins yfir málin. Arnar Ólafsson, hetja Tindastóls, er einnig á línunni og fer yfir ævintýrið á Sauðárkróki.
    55 min
  • Hugarburðarbolti Upphitun
    Hugarburðarbolti fór aftur á stað í kvöld með upphitun fyrir komandi tímabil. Farið var yfir breytingar á reglum í fantasy leiknum og breytingar á þættinum þar sem nýr sérfræðingur gekk til liðs við félaganna. Sérfræðingarnir fóru yfir nokkur ráð fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Palmer fékk mestu hækkun sem leikmaður hefur fengið á milli tímabila og er fyrsta pikkið hans Vignirs. Vignir hlær að því að Gunni og Dóri séu ekki með neina Arsenal menn í sínum liðum eins og er og þeir reyna að færa rök fyrir afhverju.
    1 hr 29 min
  • Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi á færibandi
    Þetta var ótrúleg fréttavika í íslenska fótboltanum. Elvar Geir og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta í útvarpsþættinum Fótbolti.net.
    Risafréttir í þjálfaramálunum á Íslandi, Evrópuleikir, heimkoma Arons Einars, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira.
    Þátturinn er auðvitað í verslunarmannahelgargírnum og heyrt er í Tom í Herjólfi, Steinke á Akureyri, Páli Sævari um KR og Kela í París.
    1 hr 34 min
  • Enski boltinn - Man Utd aftur í Meistaradeildina
    Manchester United endaði síðasta tímabil vel og nokkur ánægja er með félagaskiptagluggann til þessa og frekari liðsstyrkur er orðaður við félagið.
    Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon eru djúpir í United fræðunum og fóru yfir hópinn, sumarið og spáðu í spilin með Sæbirni Steinke.
    Hvar þarf að styrkja hópinn frekar? Hverjir geta komið inn? Hverjir eru á förum? Ungir leikmenn sem gætu komið inn í hlutverk og fleira skemmtilegt til umræðu. Þá er einnig horft í hin toppliðin og félagaskiptagluggann almennt.
    50 min
  • Túfa tekur aftur til starfa á Hlíðarenda: Þetta gerðist allt mjög hratt
    Það var tilkynnt seint í gærkvöldi að Arnar Grétarsson hefði verið látinn taka pokann sinn hjá Val. Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, tekur við og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Haukur Páll Sigurðsson verður aðstoðarmaður Túfa.
    Tíðindin komu nokkrum klukkutímum eftir að Valur hafði tapað gegn St. Mirren frá Skotlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
    Túfa hefur síðustu árin þjálfað Öster og Skövde í B-deild Svíþjóðar. Áður en hann hélt út, þá var hann aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá Val og aðalþjálfari KA og Grindavíkur.
    Túfa ræddi við Fótbolta.net í dag um nýja starfið sitt. „Ég er bara góður og mjög spenntur fyrir verkefninu. Ég er mjög þakklátur fyrir tækifærið. Ég er byrjaður að vinna. Ég mætti á Hlíðarenda snemma í dag og byrjaði vinnuna mína," sagði hann.
    27 min
  • Útvarpsþátturinn - Gluggaslúður, Evrópa og þeir bestu í 2. deild
    Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. júlí.
    Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net. Sæbjörn Steinke er á línunni frá Akureyri.
    Misjafnt gengi íslensku liðanna í Evrópu, gluggaslúður, Óskarlistinn, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira.
    Í seinni hlutanum er rætt um 2. deild karla og hverjir hafa verið bestu leikmenn deildarinnar í sumar? Brynjar Kristmundsson þjálfari Víkings í Ólafsvík kemur í heimsókn.
    1 hr 52 min