Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Skagahátíð og Lengjuuppgjör 1-11
    Innkastið eftir 13. umferð Bestu deildarinnar. Í seinni hluta þáttarins er uppgjör á umferðum 1-11 í Lengjudeildinni; úrvalslið og ýmis verðlaun.
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars fara yfir leikina og helstu fréttir úr íslenska boltanum.
    1 hr 16 min
  • Tiltalið: Úlfur Ágúst Björnsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður FH og Duke Blue Devils Úlfur Ágúst Björnsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 23 min
  • Útvarpsþátturinn - Kjartan Henry, EM og íslenski
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.
    Rætt er um EM og íslenska boltann en gestur er Kjartan Henry Finnbogason aðstoðarþjálfari FH og EM sérfræðingur.
    Einnig er Ögmundur Kristinsson nýr markvörður Vals á línunni frá Aþenu og Anton Freyr fréttamaður Fótbolta.net er á írskum dögum á Akranesi.
    1 hr 31 min
  • EM hringborðið - Systurnar fara yfir 16-liða úrslitin
    Í gær kláruðust 16-liða úrslitin á Evrópumótinu og er það ljóst núna hvernig átta-liða úrslitin verða.
    Það var margt áhugavert sem gerðist í 16-liða úrslitunum: Bellingham var ótrúlega lélegur en var samt hetja leiðinlegra Englendinga, Ronaldo grét þegar mikið var eftir, Þjóðverjar fóru áfram eftir VAR-leikinn mikla, Spánverjar eru ofboðslega skemmtilegir og Frakkar eru þéttir til baka.
    Systurnar Ásta Eir og Kristín Dís Árnadætur komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir 16-liða úrslitin og framhaldið.
    57 min
  • Útvarpsþátturinn - Innkastið í beinni á X977
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 29. júní.
    Innkastið í beinni útsendingu þar sem Elvar Geir, Benedikt Bóas og Baldvin Borgars skoða 12. umferð Bestu deildarinnar, helstu tíðindi og fréttir og Lengjudeildina. Góð umferð að baki fyrir Víking.
    Svo er hitað upp fyrir 16-liða úrslit EM. Örvar Arnarsson fréttaritari Fótbolti.net í Austurríki er á línunni.
    1 hr 51 min
  • EM hringborðið - Riðlunum lokið og útsláttarkeppni framundan
    Riðlakeppninni á Evrópumótinu í Þýskalandi er lokið og framundan eru 16-liða úrslitin.
    Almarr Ormarsson og Adda Baldursdóttir, sem eru bæði að vinna í kringum mótið fyrir RÚV, komu í heimsókn í dag og ræddu um riðlakeppnina og 16-liða úrslitin sem eru framundan.
    Það verður áhugavert að sjá hvernig mótið þróast en 16-liða úrslitin hefjast á laugardaginn.
    1 hr 3 min
  • Innkastið - Blikar brugðust og lið umferða 1-11
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn gera upp 11. umferð Bestu deildarinnar.
    Blikum tókst ekki að fara á toppinn, KR mætti með varnarleikinn að vopni og náði í stig gegn Víkingi og markvörður Vestra var í vandræðum gegn Val.
    Í þættinum er opinberað val á liði umferða 1-11, besta leikmanninum, besta þjálfaranum, besta unga leikmanninum og besta dómaranum.
    1 hr
  • Útvarpsþátturinn - Freysi og kraftaverkið í Kortrijk
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 22. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Freyr Alexandersson þjálfari Kortrijk er gestur þáttarins. Víða er komið við í spjalli við Frey en hann náði á magnaðan hátt að halda liðinu uppi í belgísku úrvalsdeildinni þegar nær allir voru búnir að útiloka það. Hvernig fór hann að því?
    Einnig er rætt um landsliðið, Bestu deildina, EM og fleira.
    1 hr 49 min
  • EM hringborðið - Lárus Orri og Óðinn Svan ræða fyrstu vikuna
    Þeir Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður, og Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður RÚV, eru gestir í fyrsta uppgjörsþættinum á þessu Evrópumóti.
    Sæbjörn Steinke stýrir þættinum og fer yfir fyrstu vikuna á EM með þeim Lárusi og Óðni.
    Þjóðverjar hafa farið vel af stað, eitthvað slen er yfir Englendingum og Belgar í brasi. Farið er yfir það helst á mótinu til þessa og spáð í spilin. Þá tók Lárus Orri góða ræðu um VAR en hann vill fá myndbandstæknina til Íslands sem allra fyrst.
    Þátturinn var tekinn upp fyrir leik Spánar og Ítalíu
    38 min
  • Innkastið - Gregg rekinn og deildin opnast upp á gátt
    Innkastið eftir 10. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er íþróttafréttamaðurinn og markvarðasérfræðingurinn Runólfur Trausti.
    Runólfur er stuðningsmaður KR en í morgun var staðfest að Gregg Ryder hefði verið rekinn. Það er fyrsta mál á dagskrá þáttarins.
    Þá er farið yfir alla leiki umferðarinnar, þar á meðal stórskemmtilegan toppslag Vals og Víkings. Deildin er galopin á toppi og botni.
    1 hr 15 min