Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Bestu og verstu kaupin í Bestu, bikarinn og EM
    Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. júní.
    Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net.
    Rætt er um bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni, besta leikmann Lengjudeildarinnar, leiki vikunnar í bikarnum, landsliðið og fleira.
    Í seinni hlutanum er sjónum síðan beint að EM. Björn Már Ólafsson sérfræðingur í ítalska boltanum rýnir í liðið sem ríkjandi Evrópumeistarar senda á mótið.
    1 hr 40 min
  • Leiðin á Laugardalsvöll - Ástríðan í Fífunni og Bjarni Jó í viðtali
    Önnur útgáfan af Fótbolti.net bikarnum hefst á sjálfan þjóðhátíðardaginn á mánudaginn þegar KFA og ÍH mætast. Svo eru hinir leikirnir spilaðir á miðvikudaginn.
    Í kringum keppnina verða hlaðvarpsþættir hér á síðunni og er þetta fyrsti þátturinn í sumar.
    Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri, leikmenn Augnabliks, mættu í spjall um ástríðuna í Fífunni og fóru yfir leikina í 32-liða úrslitunum.
    Þá var Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, á línunni undir lok þáttarins en hann er virkilega spenntur að taka þátt í þessu móti í fyrsta sinn.
    1 hr 2 min
  • Allir riðlarnir á EM skoðaðir með Gunna Birgis og Jóa Ástvalds
    Evrópumótið í fótbolta hefst núna á föstudaginn með opnunarleik Þýskalands og Skotlands. Það er afar spennandi mót framundan og mörg lið sigurstrangleg.
    Guðmundur Aðalsteinn fékk nýverið Gunnar Birgisson og Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, í heimsókn til að hita upp fyrir mótið.
    Farið var í gegnum alla riðlana og liðin skoðuð. Skemmtileg yfirferð svona stuttu fyrir mót.
    1 hr 27 min
  • Útvarpsþátturinn - Birkir Már og landsliðsgleðin á Wembley
    Útvarpsþátturinn 8. júní. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stýrið og að sjálfsögðu er sigur Íslands í vináttulandsleiknum gegn Englandi á Wembley fyrirferðarmikill.
    Birkir Már Sævarsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, er gestur þáttarins en hann er eini Íslendingurinn sem hefur fengið rautt spjald á Wembley.
    Þá er fjallað um íslenska boltann.
    1 hr 45 min
  • Guðrún Elísabet og Jasmín: Heiður að taka þátt í vegferðinni
    Fyrsti þriðjungur af deildarkeppni Bestu deildar kvenna - fyrir skiptingu - er lokið og má með sanni segja að deildin sé að spilast á mjög svo áhugaverðan hátt.
    Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir, leikmenn Íslandsmeistara Vals, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu aðeins byrjunina á mótinu, tímann sinn hjá Val til þessa og margt fleira.
    Guðrún Elísabet er á sínu öðru tímabili með Val og Jasmín er á sínu fyrsta tímabili hjá Íslandsmeisturunum, en þær eru báðar að finna sig vel í öflugu umhverfi á Hlíðarenda.
    54 min
  • Innkastið - Ömurlegur varnarleikur í markaveislu
    Innkastið eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnarsson stýrir að þessu sinni en með honum eru Haraldur Árni Hróðmarsson og Tómas Þór Þórðarson.
    Það var sett markamet fyrir eina umferð en varnarleikurinn var ekki upp á marga fiska, þá sérstaklega ekki hjá KR í Vesturbænum.
    Ísak Snær sendi skilaboð í Kórnum, Víkingur þurfti að hlaupa mikið gegn Fylki, Vestri barði á Stjörnumönnum, ÍA lagði vonlausa KA-menn og FH tapaði niður þriggja marka forystu gegn Fram.
    1 hr 14 min
  • Útvarpsþátturinn - Sérfræðingurinn Sævar Atli og fjármálaskýrsla
    Útvarpsþátturinn á kosningadegi. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.
    Sævar Atli Magnússon, leikmaður Lyngby, er með þeim í þættinum. Þeir þrír fara yfir helstu fótboltafréttir vikunnar, leiki Bestu deildarinnar og Lengjudeildarinnar og ýmislegt fleira.
    Í seinni hlutanum kemur Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins í fótboltapólitíkinni. Hann hefur skoðað samantektarskýrslu Deloitte og KSÍ um fjármál íslenskrar knattspyrnu og fer yfir það sem honum finnst áhugaverðast.
    1 hr 50 min
  • Enski boltinn - Úrslitaleikurinn og tímabil Man Utd
    Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn fóru yfir bikarúrslitaleikinn og tímabilið hjá Manchester United með Sæbirni Steinke.
    Man Utd varð bíkarmeistari eftir sigur á Man City um síðustu helgi, úrslit sem komu mörgum á óvart.
    Einstakir leikmenn í liðinu voru til umræðu og rætt vel um framtíð stjórans. Þá voru vangaveltur um hvaða leikmenn þyrfti að selja og hvaða stöður þyrfti að styrkja
    36 min
  • Innkastið - Baulað í Vesturbæ og Hrafninn í stúkunni
    Innkastið eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Baldvin Borgars og með þeim er Örn Þór Karlsson fótboltaþjálfari.
    KR tapaði niður tveggja marka forskoti gegn nýliðunum, umdeild vítaspyrna réði úrslitum á Akranesi, stór dómaramistök á Hlíðarenda og sex stiga fallbaráttuslagur í Árbæ.
    1 hr 2 min
  • Útvarpsþátturinn - Þarfir toppliðanna, svekktir eftir landsliðsvalið og enskt uppgjör
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna. Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn í hljóðveri.
    Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um íslenska boltann. Þarfagreining fyrir toppliðin í Bestu deildinni, landsliðsval Age Hareide, Lengjudeildina og fleira.
    Í seinni hlutanum er uppgjör Kristjáns Atla á tímabilinu í enska boltanum.
    1 hr 38 min