Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Gylfasýning og óvæntustu úrslit sumarsins
    Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars.
    Gylfi var magnaður í sigri Vals í stórleik umferðarinnar, HK með stórkostlega frammistöðu og vann Víking, dómararnir byrja mótið illa og það er óvæntur toppslagur á dagskrá í næstu umferð.
    1 hr 14 min
  • Útvarpsþátturinn - Besta, Lengjan og Arne Slot skýrsla
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 4. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Farið yfir komandi umferð í Bestu deildinni og skoðað hvernig Lengjudeildin fer af stað. Sölvi Haraldsson ÍR-ingur er á línunni eftir óvæntan sigur Breiðhyltinga í Keflavík.
    Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur um Liverpool, kemur og fer yfir hverju megi búast frá Arne Slot sem tekur að öllum líkindum við stjórnartaumunum á Anfield í sumar. Einnig er rætt um titilbaráttuna sem er í fullum gangi.
    Orri á X-inu er í beinni frá Kaplakrika og opinberar val á úrvalsliði FH.
    1 hr 49 min
  • Hugarburðarbolti Þáttur 14
    King Kai Havertz var kóngurinn í Norður Lundúna slagnum á meðan Michael Oliver var hirðfíflið. Man City marði þrjú sterk stig í Nottingham. Liverpool stimplaði sig alveg út úr baráttunni um titilinn. Burnley er enn á lífi í botnbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 17 min
  • Innkastið - Víkingar fá hjálp sem þeir þurfa ekki
    Innkastið gerir upp 4. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunn og Sæbjörn Steinke.
    Víkingar fá óþarfa hjálp frá dómurunum, Valsmenn eru oftar ólíkir sjálfum sér en líkir, Blikar hættu að vera andlausir og leikmaður sem fæddist ári eftir að Fernando Torres tryggði Spáni Evrópumeistaratitilinn skoraði fyrir Fram.
    Hvað eru eiginlega komin mörg gul spjöld í þessari deild?
    1 hr 10 min
  • Enski boltinn - Ef ég tala, þá er ég í miklum vandræðum
    Það var nóg af atriðum til að ræða eftir helgina í ensku úrvalsdeildinni. Það fer að styttast í annan endann á þessu stórskemmtilega tímabili.
    El Jóhann mætti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag til að fara yfir helgina með þeim Gumma og Steinke.
    El Jóhann hefur að sjálfsögðu enn bullandi trú á því að Arsenal geti tekið Englandsmeistaratitilinn í næsta mánuði.
    1 hr 6 min
  • Útvarpsþátturinn - Lengjuspáin, úrvalslið og bikarstuð
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 27. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.
    Lengjudeildin er aðalmálið í þættinum. Baldvin Már Borgarsson, sérfræðingur velur úrvalslið deildarinnar og afhjúpað er hvernig spá þjálfara og fyrirliða lítur út.
    Einnig verður farið yfir bikarleikina, tíðindi gluggadagsins og hitað upp fyrir fjórðu umferð Bestu deildarinnar.
    1 hr 50 min
  • Hugarburðarbolti þáttur 13
    Monster umferð hjá mörgum fantasy spilurum. Man City í bílstjórasætinu. Liverpool missteig sig illa. Arsenal heldur áfram að halda markinu sínu hreinu. Sá stóri í Kristals höllinni heitir Jean Phillip Mateta.
    Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 16 min
  • Enski boltinn - Heimskur og heimskari
    Viðburðarrík helgi að baki í enska boltanum þar sem bæði var spilað í ensku úrvalsdeildinni og þeirri elstu og virtustu, ensku bikarkeppninni.
    Manchester United var stálheppið gegn Coventry, Guardiola brjálaður eftir sigurleik og Arsenal og Liverpool komust aftur á sigurbraut.
    Gummi og Steinke eru á sínum stað en Emil Ásmundsson, leikmaður Fylkis, er sérstakur gestur í þættinum.
    58 min
  • Innkastið - Flugbraut fyrir meistarana og norðlensk neikvæðni
    3. umferð Bestu deildarinnar tekin fyrir í Innkastinu. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars.
    Íslandsmeistarar Víkings eru eina liðið með fullt hús stiga og miðað við næstu leiki er möguleiki á að þeir stingi aftur af!
    Blikar órafjarri Víkingum, Skagamenn elska að vera einum fleiri, Djúpmenn unnu fyrir norðan, Rúnar Kristins skákaði KR, Björn Daníel með Bergkamp takta og pirringur í þjálfara Vals.
    1 hr 24 min
  • Niðurtalningin - Endar titillinn enn eitt árið á Hlíðarenda?
    Besta deild kvenna hefst í dag og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Því er spáð að Valur muni verja Íslandsmeistaratitil sinn í sumar.
    Við höfum hitað upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil.
    Adda Baldursdóttir, aðstoðarþjálfari Vals, og Fanndís Friðriksdóttir, leikmaður liðsins, mættu í heimsókn og fóru yfir stemninguna á Hlíðarenda.
    34 min