Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Hugarburðarbolti Þáttur 17 Uppgjör tímabilsins
    Man City vann deildina fjórða tímabilið í röð. Einstakt afrek. Pep er klárlega besti knattspyrnustjóri sögunar. Arsenal sitja eftir í öðru sæti með 89 stig. Chelsea fer inn í Evrópudeildina. Aston Villa í fyrsta sinn í meistaradeildinni á næsta tímabili. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað. Tímabilið gert upp.
    1 hr 19 min
  • Enski boltinn - Þegar partýið er búið
    Enska úrvalsdeildin kláraðist núna um helgina en Manchester City varð Englandsmeistari fjórða árið í röð.
    Jurgen Klopp stýrði sínum síðasta leik hjá Liverpool og Manchester United tryggði sér áttunda sætið.
    Magnús Haukur Harðarson og Jón Kaldal mættu í heimsókn í dag og fóru yfir lokaumferðina, sem og tímabilið í heild sinni. Þeir völdu lið ársins, leikmann ársins og stjóra ársins. Og líka mestu vonbrigðin.
    Núna er partýið búið en það er stutt í það næsta.
    1 hr 28 min
  • Útvarpsþátturinn - Hvítasunnuhringborðið
    Elvar Geir stýrir hringborðsumræðum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Við hringborðið er farið yfir fréttir vikunnar en meðal annarra umræðuefna er: Þeir bestu og mestu vonbrigðin í Bestu deildinni, leikir vikunnar í Mjólkurbikarnum, komandi umferð í Bestu, Lengjudeildin og lokaumferðin í ensku úrvalsdeildinni.
    Með Elvari við hringborðið eru Baldvin Borgarsson þjálfari og sérfræðingur og Sæbjörn Steinke og Sverrir Örn Einarsson fréttamenn Fótbolta.net.
    1 hr 35 min
  • Hugarburðarbolti þáttur 16
    Úrslitin um titilinn ráðast á sunnudag. Man City er með þetta í sínum höndum. Tottenham gáfu City hörku leik í vikunni en nýttu ekki færin. Chelsea mögulega að ná inn í Evrópudeildina með mjög góðum endaspretti. Foden eða Rice leikmaður tímabilsins? Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 27 min
  • Enski boltinn - Viltu að liðið þitt tapi?
    Það er mjög svo spennandi lokaumferð framundan í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag og svo gríðarlega áhugaverður leikur í kvöld sem gæti haft mikil áhrif á það hvaða lið verður meistari.
    Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmaður Tottenham, og Magnús Valur Böðvarsson, stuðningsmaður Crystal Palace, mættu í heimsókn í dag til að taka stöðuna.
    Hvort verður Arsenal eða Manchester City enskur meistari?
    57 min
  • Innkastið - Hrikalegir dagar fyrir Gregg Ryder
    Innkastið eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Það er sportbarinn Ölver sem býður upp á Innkastið.
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke skoða alla leiki umferðarinnar. Víkingur vann toppslaginn, pressan eykst á Gregg Ryder, HK í fantastuði, gæði Breiðabliks gerðu gæfumun, Valur vann KA og ÍA vann Vestra.
    Dómararnir áttu góða umferð!
    1 hr 12 min
  • Útvarpsþátturinn - Böddi gestur og vangaveltur um Óskar Hrafn
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. maí. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór.
    Böðvar Böðvarsson leikmaður FH er gestur en hann kom aftur heim fyrir tímabilið eftir atvinnumennsku. FH-ingar hafa farið vel af stað á tímabilinu og leika toppslag gegn Víkingum.
    Rætt er um stórtíðindin í gær en Óskar Hrafn Þorvaldsson sagði óvænt upp hjá Haugesund. Þruma úr heiðskíru. Í hvaða starf fer hann næst?
    Í þættinum er 1-1 jafntefli Stjörnunnar og Fram gert upp ásamt því að aðrir leikir umferðarinnar í Bestu deildinni eru skoðaðir. Þá er lið umferðarinnar í Lengjudeildinni opinberað og fleira.
    1 hr 47 min
  • Hugarburðarbolti Þáttur 15
    Haaland í stuði á Etihad. 6 mörk á Anfield. Arsenal heldur titildraumunum lifandi. Crystal Palace burstuðu Man Utd. Lánleysi Burnley heldur áfram. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 2 min
  • Enski boltinn - Alveg búinn á því og hvar ræðst titilbaráttan?
    Áhugaverð helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni, en umferðin kláraðist með ótrúlegum leik Crystal Palace og Manchester United í gær. United fékk þar vænan skell.
    Þeir Chelsea félagar Jón Aðalsteinn Kristjánsson og Stefán Marteinn Ólafsson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir umferðina.
    Spennan er heldur betur farin að magnast. Hvaða lið vinnur deildina og hvaða lið fer eiginlega í Sambandsdeildina?
    53 min