Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Víkingur vinnur leiki sem Valur vinnur ekki
    Innkastið eftir 2. umferð Bestu deildarinnar. Það er besti sportbar landsins (samkvæmt Reykjavík Grapevine), Ölver í Glæsibæ, sem býður upp á þáttinn. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp alla leiki umferðarinnar.
    Hlíðarendi nötrar strax eftir fyrsta hliðarspor, Viktor Jóns sökkti HK, FH sótti öll stigin norður, Breiðablik með yfirburði gegn Vestra og Framarar tóku á móti Íslandsmeisturunum.
    1 hr 22 min
  • Niðurtalningin - Ásþórsdætur í Fylkisspjalli
    Það er núna akkúrat vika í það að Besta deild kvenna fari af stað en sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Fylkir muni enda í níunda sæti deildarinnar.
    Við á Fótbolti.net munum hita upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil.
    Systurnar Eva Rut og Sara Dögg Ásþórsdætur mættu í heimsókn og fóru yfir stöðuna hjá Fylki.
    36 min
  • Niðurtalningin - Ekki afskrifa Keflvíkingana
    Það er núna akkúrat vika í það að Besta deild kvenna fari af stað en sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Keflavík muni enda í tíunda sæti deildarinnar.
    Við á Fótbolti.net munum hita upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil.
    Viðtölin eru gefin út á hlaðvarpsformi en fyrir hönd Keflavíkur mættu Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, aðstoðarþjálfari, og Kristrún Ýr Holm, fyrirliði.
    31 min
  • Útvarpsþátturinn - Kraftur í KR og umdeild dómgæsla
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Fjallað um sigur KR í Garðabænum og hitað upp fyrir aðra leiki umferðarinnar.
    Gestur þáttarins er Gunnar Jarl Jónsson, fyrrum dómari og nú meðlimur dómaranefndar KSÍ. Dómgæslan hefur verið mikið í umræðunni og ýmislegt að fara yfir.
    1 hr 44 min
  • Enski boltinn - El Meistaradeildarveisla
    El Jóhann, sem fer oft hamförum á X, var gestur þeirra Sæbjörns og Guðmunds í þætti dagsins.
    Í fyrri hluta þáttarins var áherslan á leikjunum í Meistaradeildinni í liðinni viku og svo var rætt um titilbaráttuna í ensku úrvalsdeildinni í seinni hlutanum.
    Tvær vítaspyrnur á Emirates? Rautt á Kane? Veislan á Bernabeu og getur Mbappe komið til baka?
    51 min
  • Innkastið - Fljúgandi start og fullar stúkur
    Innkastið eftir 1. umferð Bestu deildarinnar 2024. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp alla leiki umferðarinnar.
    FH átti að fá víti í Kópavogi, Gylfi geggjaður, markaregn í Árbæ, Fram vann nýliðana, KA óð í færum og Víkingar öruggir gegn Stjörnunni.
    1 hr 14 min
  • Hugarburðarbolti Þáttur 11
    Kevin De Bruyne með sýningu á Selhurst Park. Kai Haverts er búinn að troða sokk ofan í gagnrýnisraddir. Ollie Watkins mættur aftur og setti tvö. Luton með gríðarlega mikilvægan sigur í fallbaráttunni.
    Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 4 min
  • Mögnuð saga Diljár - Næstum hætt en ætlar nú á EM með Íslandi
    Diljá Ýr Zomers átti sinn besta landsleik til þessa þegar Ísland vann 3-0 sigur gegn Póllandi síðasta föstudag. Hún var frábær á kantinum og skoraði annað mark íslenska liðsins í leiknum.
    Um var að ræða annað markið sem Diljá gerir í ellefu A-landsleikjum, en hún spilaði sinn fyrsta landsleik á síðasta ári og hefur síðan þá unnið sér sæti í byrjunarliðinu.
    Diljá, sem hefur átt magnað tímabil með Leuven í Belgíu, hefur ekki alltaf fengið traustið á ferli sínum og fyrir ekki svo mörgum árum síðan var hún nálægt því að hætta í fótbolta. En í staðinn breyttist ferill hennar til hins betra á augabragði.
    Diljá settist niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Hollandi í dag og fór þar aðeins yfir ferilinn til þessa, og sína frekar óhefðbundnu leið í landsliðið.
    30 min
  • Útvarpsþátturinn - Besti upphitunarþátturinn
    Hitað er rækilega upp fyrir Bestu deild karla í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Elvar Geir og Tómas Þór skoða alla leiki fyrstu umferðar og spá í spilin fyrir deildina. Með þeim er Ingólfur Sigurðsson sérstakur sérfræðingur.
    Farið er yfir helstu fréttirnar í aðdraganda mótsins og heyrt í þjálfurum úr deildinni.
    1 hr 54 min
  • Niðurtalningin - Gylfi Sig mættur á Hlíðarenda
    Í dag er komið að þessu. Besta deildin er að fara af stað. Í efsta sæti í spá okkar Fótbolta.net fyrir tímabilið eru Valsmenn.
    Jóhann Skúli Jónsson og Jóhann Alfreð Kristinsson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að fara yfir stöðuna hjá Val fyrir tímabiliið sem framundan er.
    Þá er sjálfur Adam Ægir Pálsson á línunni í seinni hluta þáttarins.
    52 min