Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Niðurtalningin - Bara ein leið til að toppa síðasta tímabil
    Þetta er að byrja! Á morgun hefst Besta deildin 2024 þegar Víkingur og Stjarnan eigast við í opnunarleiknum.
    Víkingum er spáð öðru sæti deildarinnar en liðið er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari.
    Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Símanum, og Þórður Ingason, fyrrum markvörður Víkinga, mættu í heimsókn á skrifstofu .net og fóru þar yfir stöðuna hjá Víkingum.
    Þá er Halldór Smári Sigurðsson á línunni í seinni hluta þáttarins en hann er orðinn titlaóður.
    1 hr 15 min
  • Hugarburðarbolti Þáttur 10
    Tryllt þrenna hjá Foden og ekki sú fyrsta á tímabilinu. Cole Palmer er kóngurinn á brúnni. Alexis McAllister með einn eitt gullmarkið fyrir Liverpool. Fantasy spilarar grátt leiknir þessa umferðina. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 1 min
  • Enski boltinn - Ekki bara bestu kaup tímabilsins
    Það var spilað í miðri viku í ensku úrvalsdeildinni, en umferðin kláraðist í gær með tveimur leikjum.
    Körfuboltaþjálfarinn Hrafn Kristjánsson mætti á skrifstofu .net í dag og fór yfir umferðina ásamt Gumma og Steinke.
    Núna erum við að fara inn í lokasprettinn og titilbaráttan hefur sjaldan verið eins spennandi.
    58 min
  • Niðurtalningin - Ungu strákarnir þekkja ekkert annað
    Besta deildin hefst á morgun! Í þriðja sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið er Stjarnan.
    Hinn skemmtilegi Þorkell Máni Pétursson mætti í heimsókn á skrifstofu .net og ræddi um Stjörnuna en hann er mikill stuðningsmaður félagsins.
    Þá er Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, á línunni í seinni hluta þáttarins.
    49 min
  • Niðurtalningin - Höfðinginn og Sörens hlæja að spánni
    Besta deildin hefst eftir tvo daga en í fjórða sæti spá Fótbolta.net fyrir mótið er Breiðablik.
    Kristján Óli Sigurðsson, betur þekktur sem Höfðinginn, og Sigurjón Jónsson, Sörens, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu stöðuna hjá Blikum.
    Þá er Damir Muminovic, varnarmaður Blika, á línunni í seinni hluta þáttarins.
    55 min
  • Niðurtalningin - Tími breytinga á Meistaravöllum
    Áfram höldum við að telja niður fyrir Bestu deildina en mótið hefst á laugardaginn. Núna er komið að KR sem er spáð fimmta sæti.
    Sindri Snær Jensson, fyrrum markvörður KR, og íþróttafréttamaðurinn Valur Páll Eiríksson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru þar yfir stöðuna hjá Vesturbæjarstórveldinu.
    Þá er Elmar Bjarnason, leikmaður liðsins, á línunni í seinni hluta þáttarins.
    49 min
  • Niðurtalningin - F er fyrir fótbolta og H er fyrir Hödda Magg
    Áfram höldum við að telja niður fyrir Bestu deildina en mótið hefst á laugardaginn.
    Í sjötta sæti í spánni er FH en feðgarnir Hörður Magnússon og Magnús Haukur Harðarson komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða Fimleikafélagið.
    Þá er markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson á línunni í seinni hluta þáttarins.
    58 min
  • Enski boltinn - Óhefðbundið topplið
    Þeir Elvar Geir og Tómas Þór, þáttarstjórnendur útvarpsþáttarins Fótbolti.net, gerðu upp umferðina í ensku úrvalsdeildinni með Sæbirni Steinke.
    Tómas var á Etihad á sunnudeginum og sagði frá skemmtilegu atviki sem tengist Robert Pires sem einnig var á leiknum. Liverpool gat heldur betur fagnað því sigur vannst gegn Brighton og á sama tíma gerðu samkeppnisaðilarnir jafntefli í stórleiknum.
    Man Utd fékk á sig endalaust af skotum gegn Brentford og Chelsea gat ekki klárað tíu leikmenn Burnley. Newcastle náði ótrúlegri endurkomu gegn Hömrunum og Meistaradeildarbaráttunni er svo gott sem lokið. Þetta og miklu meira í þættinum.
    59 min
  • Niðurtalningin - Stór prófíll norður eftir heldur rólegan vetur
    Við á .net höldum áfram að opinbera hvar liðin eru í spá okkar fyrir Bestu deild karla. Það eru aðeins fimm dagar í fyrsta leik en KA er í sjöunda sæti.
    Haraldur Örn Haraldsson og Skúli Bragi Geirdal, stuðningsmenn KA, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna hjá Akureyrarfélaginu.
    Það skal tekið fram að þeirra partur var tekinn upp áður en Viðar Örn Kjartansson gengur í raðir.
    Svo er rætt við Ívar Örn Árnason, fyrirliða KA í seinni hlutanum.
    1 hr 2 min
  • Niðurtalningin - Þungamiðja menningar í hverfinu
    Við á .net höldum áfram að opinbera hvar liðin eru í spá okkar fyrir Bestu deildar karla eftir stutt páskafrí. Það eru núna aðeins fimm dagar í að deildin fari af stað.
    Í áttunda sæti í spánni er Fram en Stefán Pálsson, sagnfræðingur, mætti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í síðustu viku og ræddi þar um sitt uppáhalds félag, ásamt Luton á Englandi.
    Þá er markahrókurinn Guðmundur Magnússon á línunni í seinni hluta þáttarins þar sem hann fer yfir síðasta tímabil og komandi sumar.
    47 min