Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Jói Kalli, Bjarki Már og Elvar Geir um landsliðið
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 er á hlaðvarpsformi þessa vikuna og var tekinn upp í dag, föstudaginn 22. mars.
    Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp sigur Íslands á Ísrael í gær. Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarþjálfari Íslands er á línunni og fer yfir leikinn með þeim.
    Þá er hringt í Bjarka Má Elísson landsliðsmann Íslands í handbolta sem var á leiknum í gær ásamt heimsþekktum handboltastjörnum.
    Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net var á leiknum og hann var einnig á línunni í símatímanum og fór yfir sína upplifun í Búdapest.
    1 hr 14 min
  • Beint frá Búdapest - Hetjan sem mátti ekki tala
    Aldrei heim! Ísland gerði sér lítið fyrir og vann 4-1 sigur gegn Ísrael í Búdapest. Eftir ótrúlegan rússíbanaleik er ljóst að það bíður úrslitaleikur gegn Úkraínu sem fram fer í Póllandi á þriðjudaginn. Úrslitaleikur um sæti á EM í Þýskalandi.
    Eftir langan vinnudag ræddu Elvar Geir og Sæbjörn Steinke við Helga Sigurðsson fréttamann 433.is um þetta skemmtilega kvöld þar sem Albert Guðmundsson stal fyrirsögnunum en mætti ekki í viðtöl.
    50 min
  • Beint frá Búdapest - Áfall að morgni leikdags
    Það er leikdagur í Búdapest. Ísland og Ísrael mætast í kvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM.
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke spjalla um komandi leik við Stefán Árna Pálsson íþróttafréttamann á Stöð 2 Sport og Vísi.
    22 min
  • Viktor Unnar: Fann strax að þetta er eitthvað sem á við mig
    Viktor Unnar Illugason var á sínum tíma einn efnilegasti fótboltamaður Ísland en í dag er einn efnilegasti þjálfari landsins.
    Viktor hefur starfað sem yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki undanfarin ár en var í vetur ráðinn til Vals. Þar stafar hann sem þjálfari 2. flokks og 4. flokks, en er einnig með puttana í meistaraflokknum.
    Viktor Unnar settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir leik Vals gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær þar sem hann spjallaði um leikinn og sinn metnað í þjálfun.
    9 min
  • Aron Jó: Cole Campbell tekur sínar eigin ákvarðanir
    Aron Jóhannsson, leikmaður Vals, settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir tap Valsmanna gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær.
    Í spjallinu fór Aron aðeins yfir leikinn, komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins, nýjan samning sinn á Hlíðarenda og Cole Campbell sem ákvað nýverið að spila fyrir bandaríska landsliðið.
    14 min
  • Hugarburðarbolti Þáttur 8
    Fantasy spilarar slógu öll met um helgina. Fulham unnu Lundúnaslaginn. Burnley náðu í kærkomin og gríðarlega mikilvæg 3 stig. Man Utd unnu Liverpool eftir framlengingu í FA bikarnum í rosalegum leik. Bestu 3 í umferðinni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    56 min
  • Beint frá Búdapest - Skiptar skoðanir á ákvörðuninni um Albert
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru staddir í Búdapest og fá Helga Sigurðsson fréttamann 433.is í spjall þar sem komandi landsleikur er skoðaður.
    Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM.
    Rætt er um undirbúning íslenska liðsins, æfingarnar sem búnar eru, tignarlegt hótel liðsins, Albert Guðmundsson og ýmislegt fleira.
    30 min
  • Hákon Rafn - Umspilið og leiðin til Brentford
    Sæbjörn Steinke spjallar við Hákon Rafn Valdimarsson landsliðsmarkvörð á hóteli íslenska liðsins í Búdapest.
    Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM.
    Hákon ræðir um umspilið og einnig um Brentford en hann var keyptur til enska úrvalsdeildarfélagsins í janúarglugganum.
    46 min
  • Enski boltinn - Töfrar í bikarnum
    Einn besti leikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni var í gær þegar erkifjendurnir Manchester United og Liverpool áttust við í FA-bikarnum.
    Leikurinn var magnaður og má svo sannarlega tala um rússíbanareið.
    Jóhann Páll Ástvaldsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Thule-stúdíóið í dag og fóru yfir stórleikinn, sem og aðra leiki helgarinnar.
    1 hr 3 min
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðsvalið fyrir bardagann í Búdapest
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. mars.
    Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Sæbjörn Steinke fréttamaður Fotbolti.net er með þeim í þættinum.
    Landsliðsvalið er krufið og sigurmöguleikar okkar í umspilsleiknum gegn Ísrael eru skoðaðir.
    Einnig er rætt um komu Gylfa í Bestu deildina og aðrar fréttir íslenska boltans skoðaðar. Að auki er horft út í heim, Meistaradeildin og enski boltann.
    Þá er Logi Bergmann á línunni og segir frá nýrri heimildarmynd um Ásgeir Elíasson.
    1 hr 45 min