Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Hugarburðarbolti Þáttur 7
    Son sá um Villa á Villa park. Tvær gullsendingar bakvarðarins Ben skiluðu þremur stigum. Man Utd með sigur og jafntefli í stórleiknum á Anfield. Semenyo frábær á Vitality vellinum. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og Hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 11 min
  • Gylfi mættur í Val - Lyftir deildinni upp um nokkrar hæðir
    Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val og ætlar sér að verða Íslandsmeistari með liðinu.
    Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða þessar fréttir í sérstökum hlaðvarpsþætti sem tekinn var upp í ljósi þessara risatíðinda.
    Þá ræðir Sæbjörn við Börk Edvardsson formann Vals um komu Gylfa.
    23 min
  • Enski boltinn - Yfirburðir Liverpool og ómögulegt að spá
    Það var svo sannarlega um nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu eftir stórleik Liverpool og Manchester City á Anfield í gær. Leikurinn endaði með jafntefli og titilbaráttan er gífurlega spennandi.
    Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum, er gestur þáttarins í dag.
    Og þá eru stór tíðindi því Sæbjörn Þór Steinke er mættur aftur eftir gott frí í Víetnam.
    1 hr 19 min
  • Útvarpsþátturinn - Dóri Árna og enduskoðuð Lengjuspá
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 9. mars.
    Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas.
    Í fyrri hluta þáttarins: Fótboltafréttir vikunnar og Baldvin Borgars mætir með endurnýjaða ótímabæra Lengjudeildarspá.
    Í seinni hlutanum: Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks er gestur þáttarins og Kristján Atli hitar upp fyrir stórleikinn á Anfield.
    1 hr 50 min
  • Hugarburðarbolti Þáttur 6
    Phil Foden gulls ígildi á Etihad. Það er einn krónprins í Birmingham sem heitir Ollie Watkins. Arsenal áfram á eldi og Liverpool tóku 3 stig á elleftu stundu í Nottingham eins og Hrói Höttur sjálfur. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 14 min
  • Enski boltinn - Martraðartitilbarátta fyrir Man Utd menn
    Stórleikur Manchester City og Manchester United er mikið til umræðu í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag.
    Andri Már Eggertsson og Eysteinn Þorri Björgvinsson eru gestir í þættinum en Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir umræðunni.
    Yfirburðir City voru miklir í leiknum, 27 marktilraunir gegn þremur. Er það boðlegt fyrir Man Utd?
    Einnig var farið yfir aðra leiki helgarinnar og rætt um toppbaráttuna sem er martröð fyrir Man Utd stuðningsmenn. Að lokum var aðeins rætt um íslenska boltann en það er aðeins mánuður í að Besta deildin fari af stað.
    1 hr 9 min
  • Útvarpsþátturinn - Síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina
    Í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna er síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deild karla. Það er um mánuður í mót!
    Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Sérfræðingar: Baldur Sigurðsson og Valur Gunnarsson.
    Í þættinum fræðir Baldur okkur einnig um þætti sína, Lengsta undirbúningstímabil í heimi, og rætt er um formannskosningu KSÍ.
    1 hr 52 min
  • Einvígið gegn Serbíu: Sveindís tók yfir og Ísland áfram á meðal 16 bestu
    Íslenska kvennalandsliðið vann sigur gegn Serbíu í umspili Þjóðadeildarinnar fyrr í þessari viku. Stelpurnar verða því áfram í A-deild sem skiptir máli fyrir undankeppni Evrópumótsins.
    Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Guðna Þór Einarsson og Gylfa Tryggvason, þjálfara kvennaliðs HK, í heimsókn í dag til að fara yfir leikina tvo.
    Rætt var um þróun liðsins og margt fleira en Ísland er áfram á meðal 16 bestu þjóða Evrópu í kvennaboltanu.
    1 hr 2 min
  • Hugarburðarbolti Þáttur 5
    Liverpool vann deildarbikarinn í spennuleik.Bowen sökkti býflugunum. Bitlausir Man Utd menn án Højlund. Arsenal menn áfram á flugi. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 3 min